Bændablaðið - 11.06.2002, Síða 21
Þriðjudagur ll.júm'2002
BÆNDABLAÐIÐ
21
Kynningarfundur á forritum BÍ
Kynningarfundur á forritum BÍ á vegum Bændasamtaka
íslands og Búnaðarsamtaka Vesturlands verður haldinn
fimmtudaginn 13. júní kl. 10:00 á Hótel Borgarnesi. Jón B
Lorange, forstöðumaður tölvudeildar BÍ, og
héraðsráðunautur frá Búnaðarsamtökum Vesturlands sjá um
kynninguna.
Dagskrá:
kl. 10.00 Fjárvís - forrit fyrir sauðfjárbændur. Einnig rætt
um vinnu við nýtt forrit fyrir sauðfjárbændur á
netinu
kl. 11.00 NPK-jarðræktarforrit.
kl. 12.00 ÍSKÝR - forrit fyrir kúabændur. Einnig rætt um
vinnu við gerð gagnagrunns í nautgriparækt á
netinu.
kl. 13.00 WorldFengur - ættbók íslenska hestsins.
Á fundinum verða ofangreind forrit kynnt og hvað sé framundan í
þróun forritanna hjá Bændasamtökunum. Þá verður óskað eftir
óskum bænda í þessum efnum til að fá fram þeirra sjónarmið.
Allir velkomnir. Vinsamlega látið vita um þátttöku á skrifstofu
Búnaðarsamtakanna s. 4371215 eða með tölvupósti (netfang:
buvest@vesturland.is). Kaffi og meðlæti, súpa og brauð í
boði Bændasamtaka íslands.
landbunadur.is
Handverksmenn í
sveitum landsins!
Hvernig væri að selja handverkið á netinu?
Handverksfólki í sveitum býðst að nota
landbúnaðarvefinn til að selja verk sín. Þeir sem vilja
taka þátt hafi samband við Áskel í síma 893 6741 -
563 0375 sem allra fyrst. Tölvupóstur ath@bondi.is
Frjósemin sífellt vaxandi
Ekki er annað að heyra á sauðfjárbændum í
Skagafirði en að þeir beri sig nokkuð vel eftir
sauðburðinn. Tíðarfar var þokkalegt, að vísu
kalt fram eftir maí en eftir kosningahelgina brá
til hlýinda þannig að gróður tók vel við sér og
gróður í úthaga var kominn vel af stað upp úr
mánaðamótum. Frjósemi fjárins virðist víðast
hafa verið svipuð, eða jafnvel meiri en áður. Nú
telst vart til tíðinda þótt ær séu þrílembdar, miklu
frekar þegar ær bera fjórum Iömbum en frétta-
maður hefur nokkrar spurnir af slíku. Þá er vitað
um eitt tilfelli þar sem veturgömul ær bar þremur
lifandi lömbum, nokkuð sem er afar fátítt. Hins
vegar er hætt við að þar sem fæðast um og yfir tvö
lömb á hverja á komi það eitthvað niður á meðal-
þunganum í haust. Hér má sjá þær Maríu og
argréti með nýfædda gemlingsþrflembinga í
Fljótum á dögunum./ÖÞ.
Fegurri
sveiflr
Verkefnið Fegurri sveitir er sem
kunnugt er átaksverkefni á
vegum landbúnaðarráðuneytis
um hreinsun á landi og fegurri
mannvirki, með áherslu á sveitir
landsins.
Sumarið 2002 leggur verkefnis-
stjóm Fegurri sveita áherslu á
áróður fyrir bættri umgengni,
heimsóknir til bænda, fræðslu og
ráðgjöf í vatnsveitu- og frá-
rennslismálum, vandað fræðslu-
efni. Öll sveitarfélög landsins, og
aðrir er málið varðar, fá möppu
með aðgengilegu fræðsluefni um
umhverfismál í sveitum.
Einnig verður veitt aðstoð við
greinargerðir, en í bráðabirgða-
ákvæði III segir að sveitarstjómir
skuli eigi síðar en árið 2002 hafa
lokið úttekt á ástandi skv. 44.
grein nýju náttúmvemdarlaganna
og skilað Náttúmvernd ríkisins
greinargerð þar að lútandi. Loks er
lögð áhersla á tengingu við gæða-
stýringarverkefni, svo sem í sauð-
fjárrækt, búsáætlanagerð, góða
samvinnu við ráðunauta, spilli-
efnanefnd, úrgangsnefnd, Hollu-
stuvernd, félagasamtök og aðra
tengiliði.
fóður
Smáauglýsingar Bændablaðsins 5630300
Þú fellur aldrei á tíma
- í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
Greiðslubyrði fólks sveiflast iðulega milli mánaða og hjá öðrum
sveiflasttekjurnar einnig. Þegar endar ná ekki saman vill raunin oft
verða sú að fólk dregur að greiða einhverja reikninga og endar síðan
í vítahring dráttarvaxta og vanskila.
... í stað þess að greiða vexti
Komdu skipulagi á fjármálin á einfaldan og þægilegan hátt með
útgjaldadreifingu Búnaðarbankans. Þú losnar við sveiflur í útgjöldum
milli mánaða, sleppur við dráttarvexti og átt jafnvel góðan afgang.
0 Heimilislínan
^ ■ >■ -fjármálin I öruggum höndum
$) BÚNAÐARBANKINN
-traustur banki