Bændablaðið - 11.06.2002, Page 23
Þriðjudagur ll.júní2002
BÆNDABLAÐIÐ
23
Jónatan Hermannsson
tilraunastjóri á Korpu:
Kornræktarmenn
eiga mikla míiguleika
Kornrækt er mjög vaxandi bú-
grein hér á landi og margir
halda því fram að hún sé einn
helsti vaxtarbroddur í hefð-
bundnum búskap á íslandi enda
ónýttir möguleikar hennar
miklir. Undir þetta tekur
Jónatan Hermannsson, jarð-
ræktarfræðingur og tilrauna-
stjóri Korpu, einn helsti sér-
fræðingur landsins í kornrækt.
Hann segir að nú séu fluttar til
landsins 60 til 70 þúsund lestir af
byggi eða sambærilegu komi til
kjamfóðursgjafar. Ræktunin innan-
lands var á milli 6 og 7 þúsund
lestir í fyrrasumar. Hann segir að í
raun mæli ekkert á móti því að
hægt sé að rækta innanlands allt
það kom sem þörf er á. Mögu-
leikamir séu það miklir að
ræktunin gæti tífaldast.
„Ég sé því ekkert til fyrirstöðu.
Landið er fyrir hendi og kunnáttan
líka en því menn hafa smátt og
smátt verið að læra að rækta kom.
Hér er um að ræða atvinnuveg sem
krefst kunnáttu, þekkingar og
æfingar. Með því að fara rólega af
stað fara menn ekki fram úr
sjálfum sér og taka ekki til við að
rækta kom fyrr en þeir kunna það,"
segir Jónatan.
Kynbœtt yrki
Hann segir komrækt mjög
vaxandi hér á landi, enda þótt hitafar
á íslandi sé á mörkum þess að dugi
til komþroska. Þetta er fyrst og
ffemst vegna þess að síðustu ár
hefur verið unnið að ýmsum rann-
sóknum í þágu komræktar. Meðal
annars hefiir bygg verið kynbætt til
að laga það að íslenskum aðstæðum.
„Fyrsta yrkið sem við höfum
kynbætt hefur verið í sölu í tvö til
þrjú ár. í ár vom flutt inn 120 tonn
af sáðkomi sem ræktað var fyrir
okkur í Svíþjóð. Það þýðir að því
hefur verið sáð í um 600 hektara.
Það er tæpur þriðjungur þess
lands sem sáð er í á landinu. Þær
kynbætur sem gerðar eru hér á
landi miða að því að gera byggið
fljótþroska og vindþolið. Þetta er
bara það fyrsta af mörgum
kynbættum yrkjum sem eru á
leiðinni, en þetta fyrsta kynbætta
yrki gengur ekki vel alls staðar á
landinu. En þegar koma fleiri
kynbætt yrki munu þau duga betur
á öðmm stöðum," segir Jónatan.
Um það bil þriðjungur af því
komi sem ræktað er í landinu er af
þessu íslenska kynbætta komi.
Þegar fleiri afbrigði koma á
markaðinn, sem em löguð að
veðurfari og öðmm aðstæðum í
hinum ýmsu sveitum, mun hlutfall
íslensks kynbætts yrkis vaxa stór-
lega.
Norskt korn dugar vel
Jónatan segir að sumstaðar á
landinu geti erlend ókynbætt
afbrigði, sem em annað hvort úr
Þrændalögum í Noregi eða úr
Suður-Svíþjóð, gengið ágætlega.
Sérstaklega sé það á Norðurlandi
sem komið ffá Þrændalögum henti
ágætlega, en það dafnar ekki eins
vel Sunnanlands.
„Sú mikla uppskera og ágæti
árangur sem Norðlendingar hafa
náð í komræktinni hefur orðið á
byggi úr Þrændalögum. Þrænda-
lagakomið er allt sexraða og skilar
mikilli uppskem við góðar að-
stæður. Það er viðkvæmt fyrir
veðri og hefur ekki gengið vel á
Suðurlandi. Það kom hefur ekkert
verið kynbætt hér á landi. Yrkið
sem við höfum kynbætt hentar
betur til ræktunar á Suðurlandi.
Sunnlendingar þurftu að leita allt
suður á Skán í Svíþjóð til að finna
nógu veðurþolin afbrigði, en þau
em eðlilega full sein."
Mest kornrœkt á Suðurlandi
Áður fyrr var komrækt
langmest stunduð á Suðurlandi.
Nú er kom ræktað um allt land.
Síðastliðið sumar var kom skorið á
um það bil tvö þúsund hektumm á
landinu öllu og uppskeran 6 til 7
þúsund lestir sem er um 10% af
notkun kolvetnakjamfóðurs í
landinu. Um það bil 45% vom
ræktuð á Suðurlandi, 35% á
Norðurlandi, 15% á Vesturlandi
og 5% á Austurlandi. Að meðaltali
var uppskeran mest á Norðurlandi
af flatareiningu.
Komið sem skorið er hér á
landi er nær eingöngu notað sem
fóðurbætir fyrir kýr og svín.
Örlítið af kominu fer þó til
manneldis.
Áhugasamir áheyrendur hlusta á Jónatan á fræðslufundi um kornrækt
sem efnt var til á Korpu á liðnu ári.
LANDSTÓLP1
- Fjós eru okkar fag -
• Weelink fóðrunarkerfí
• Innréttingar og básadýnur
- ath! bæði í legubásafjós og básafjós.
• Steinrimlar og flórsköfukerfi í gripahús
• Veitum aðstoð og ráðgjöf við hönnun fjósa
- hafið samband, við mætum á staðinn
• Loftræstingar
- í nýjar og eldri byggingar
Lárus Arnar Bjarni
s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 9190
Bændur græða landið
Samstarfsverkefni Landgræðslu ríkisins og
bænda um uppgræðslu heimalanda
Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um þátttöku í
verkefninu "Bændur græða landið". Þátttökuskilyrði eru:
-að fyrirhugað uppgræðslusvæði sé lítt eða ógróið
-að beitarálag sé hóflegt að mati Landgræðslunnar.
Nánari upplýsingar veita héraðsfulltrúar Landgræðslunnar:
Sigþrúður Jónsdóttir, Árnesi, s.486 6123
Friðrlk Aspelund, Hvanneyri, s.437 0000
Bjarni Maronsson, Hólum, s.455 6372
Stefán Skaftason, Húsavík, s.464 1924
Guðrún Schmidt, Egilsstöðum, s.471 2121
Elín H. Valsdóttir, Klaustri, s.487 4875
Garðar Þorfinnsson, Gunnarsholti, s.488 3000
Sjá ennfremur heimasíðu Landgræðslunnar www.land.is
Umsóknarfrestur er til 30. júní n.k. í umskókn skal tilgreina nafn
og kennitölu umsækjanda, jörð, síma og sveitarfélag. Umsóknir
berist til Sigþrúðar Jónsdóttur Árnesi, Gnúpverjahreppi, 801
Selfoss. netfang: sigthrudur@land.is
BALEÞACK
Sambyggó rúllu- og pökkunarvél
Eigum fyrírliggjandi á lager DEUTZ-FAHR Balepack MP-130:
Balepack MP-130 samstæður til afgreiðslu strax. Alsjálfvirk vél
Breið sópvinda, 2,10 m
SérstaRt IMui 9 VA/I fífífí Söxunarbúnaður og mötunarvals
tilhoösverö illft Tveirpökkunararmar
Tandem öxlar og flothjólbarðar
Allt verð er tilgreint án virðisaukaskatts og miðað við gengisskráningu 5. júní 2002
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070
ÞÓR HF DEUTZ
REYKJAVfK - AKUREYRI FAHR
RANI HÁGÆÐA
RÚLLUBAGGAPLAST
BINDIGARN
NET
ATHUGIÐ VERÐ OG GÆÐI
BALDUR SF
SÍMI4831310; 4831237
FAX 4831311
Net: kumbald@mmedia.is
Fyrlrtæklð (slensk Qallagrös ehf óskar eftlr að kaupa Qallagrös af bændum og
landelgendum. Grösin þurfa að vera þurr og hrelnsuð. Nánari upplýslngar veltlr
Slgrfður Baldursdóttlr f sfma 570 7916.