Skátaforinginn - 01.08.1991, Blaðsíða 6
u
UMFERÐAR
RÁÐ
Landsbanki
L íslands
SKÁTAHR
Upphafið
Skátahreyfingin er ein elsta og
stærsta æskulýðshreyfing heims.
Upphaf hennar má rekja til ársins
1907 er fyrsta skátaútilegan var farin
á Brownsea eyju sem er í mynni
Thames árinnar suðaustur af London.
Það var breski höfuðsmaðurinn
Robert Baden-Powell sem var upp-
hafsmaður þessarar hugmyndar.
Hugmyndin að skátahreyfingunni
barst mjög hratt út og innan skamms
tíma var skátastarf hafið í fjölda
landa. í dag hefur hún innan sinna
vébanda um 30 milljónir félaga í 150
löndum. Til íslands barst hreyfingin
frá Danmörku haustið 1911 og var
Robert Baden-Powel höfuðsmaður.
Upphafsmaður skátahreyfingarinnar.
fyrsta skátafélagið, Skátafélag
Reykjavíkur, stofnað ári síðar eða 2.
nóvember 1912 - aðeins fimm árum
eftir fyrstu útileguna. Síðan hafa vin-
sældir hreyfingarinnar vaxið jafnt og
þétt til dagsins í dag.
Grundvöllurinn -
útivistin
En hverju má þakka vinsældir skáta-
hreyfingarinnar? Lítum fyrst á í
hverju skátastarf felst. Grundvöllur
þess er útilífið. Fyrsta útilegan var
byltingarkennd hugmynd. Þá fór
Baden-Powell með hóp stórborgar-
drengja út í náttúruna og dvaldi með
þá í tjöldum í um viku tíma. Þetta var
byltingarkennd hugmynd vegna þess
að á þessum tíma lagðist fólk ekki út
nema það þyrfti þess nauðsynlega
með. En tímarnir voru breyttir.
Iðnaðarsamfélagið var að taka við af
landbúnaðarsamfélaginu og borg-
unum fylgdu gjörbreyttar aðstæður.
Tengslin við náttúruna rofnuðu. Það
er einmitt þama sem skátahreyfingin
kemur inn. Hún býður börnum og
unglingum tækifæri á að kynnast
náttúrunni.
Allt frá fyrstu útilegunni á Brown-
sea eyju hefur útilegan verið ævin-
týrið sem heillar. Með útilífinu vinnst
margt. Fyrir utan það að vekja ævin-
týraþrá sem með flestum býr þá
styrkir hún sjálfsbjargarviðleitni,
hjálpsemi, athafnaþrá, sköpunargáfu
og hjálpar ungu fólki að finna sjálft
sig.
„Upp til fjalla, ótal raddir seiða
Látum Ijós okkar skína
6