Skátaforinginn - 01.08.1991, Page 7
yUMFERÐAR
RÁÐ
Landsbanki
L íslands
BS)
mig...“. Þannig eru upphafslínur
þekkts skátasöngs eftir Tryggva Þor-
steinsson frá Akureyri. Það er engin
tilviljun að flestir skátasöngvar rómi
óbyggðirnar og heiðarlöndin en
einmitt þaðan eiga flestir skátar dýr-
mætustu minningar sínar. Utilífið
kennir fólki að meta og virða náttúr-
una og þau gæði sem landið býr yfir
- á því byggist framtíð okkar. Þá
verður og seint metin sú þjálfun sem
skátar fá í samskiptum við aðra í
gegnum fundastarfið og samvinnu í
útilífinu.
Uppbygging
skátastarfsins
Grunneining skátastarfs er flokkur-
inn. Þar fer hið eiginlega starf fram
en það er mismunandi eftir aldri. Hjá
þeim yngri eru hóparnir óformlegri
en hjá hinum eldri. Krakkar á aldr-
inum 11 til 15 ára starfa í fast-
mótuðum skátaflokkum með 5 til 8
skátum og dróttskátar, þ.e. unglingar
15 ára og eldri, starfa í flokkum og
nefndum. Fundir eru oftast einu sinni
í viku og er dagskrá þeirra fjölbreytt.
Skátasveit stendur saman af 4 til 5
flokkum og fer sveitarforingi fyrir
henni. Sveitin kemur venjulega
saman til fundar einu sinni í mánuði
en auk þess eru á vegum hennar
ýmsar aðrar uppákomur eins og
dagsferðir, heimsóknir og útilegur.
Sveitarforingi og flokksforingjar
mynda sveitarráð þar sem öll skipu-
lagsvinna sveitarinnar fer fram. I
stórum félögum með margar skáta-
sveitir mynda sveitirnar deildir og
fyrir hverri fer deildarforingi.
Hvert skátafélag í landinu er
sjálfstæð eining en saman mynda þau
Bandalag íslenskra skáta sem hefur
höfuðstöðvar sínar að Snorrabraut 60
í Reykjavík. Innan Bandalags ís-
lenskra skáta eru starfandi um 50
skátafélög víðs vegar um landið auk
22 hjálparsveita.
Látum Ijós okkar skína
Ljósmyndirnar í þessari opnu og á bls. 8 eru úr leik og starfi íslenskra skáta.