Skátaforinginn - 01.08.1991, Side 15
Il
UMFERÐAR
RÁÐ
Landsbanki
íslands
{EXS
Ekið
Oft ferðst börn í bílum með foreldrum sínum.
Rétt er að benda á að „...hver sá sem situr í sæti
bifreiðar, sem búið er örygisbelti, skal nota
það...“ eins og segir í nýjum umferðarlögum. I
lögunum segir jafnframt: „Börn yngir en 6 ára
skulu nota bílbelti, barnastól, bílpúða, sem
festur er með bílbelti eða annan viðurkenndan
öryggisbúnað. Bannað er að hafa börn laus í
framsæti eða fyrir framan framsæti í akstri.“
Hjólað
Öryggishjálmar
A haustin og veturna eiga börn alls ekki að vera
á reiðhjólum í almennri umferð. Foreldrar eru
hvattir til að fyrirbyggja þá hættu sem í því felst
að leyfa börnum að hjóla í slæmu skyggni.
Einnig ættu skólastjórar og kennarar að banna
að börn komi á reiðhjólum í skólann þegar
skammdegið skellur á - það auðveldar for-
eldrunum að stöðva hjólreiðar barna sinna.
Þegar börn eru í umferðinni á öðrum árs-
tímum er mikilvægt að allur öryggisbúnaður sé í
góðu lagi og sérstaklega er brýnt að nota ör-
yggishjálm. Það er engum vafa undirorpið að
hjálmar geta bjargað mannslífum. Nýjasta
dæmið um það er óhappið sem Sturla Arnars-
son, 7 ára gamall drengur í Vestmannaeyjum,
varð fyrir í sumar er ekið var á hann. Sturla var
að hjóla fyrir framan heimili sitt er hann skall
framan á bíl og kastaðist í götuna. Höggið var
svo mikið að hjálmurinn brotnaði en Strula
slapp með smámeiðsli. Fullvíst má telja að
Sturla hefði slasast hættulega ef hann hefði ekki
haft hjálminn.
Minnumst þess að börn ná afar takmörkuðu
valdi á því að hjóla í umferð fyrr en þau eru
10 til 12 ára gömul.
Sturla Arnarsson, 7 ára gamall drengur í Vestmannaeyjum.
Hann varð fyrir bíl með hjálm á höfði og slapp því með minni-
háttar meiðsli.
= HÉÐINN =
VE R SLU N
SELJAVEGI 2 SlMI 624260
Látum Ijós okkar skína