Skátaforinginn - 01.08.1991, Blaðsíða 17
mIumferðar
Uráð
M Landsbanki
j^lslands
Gönguleiðír
skólabarna í
Reykjavík
Viðtal við Ingibjörgu R. Guðlaugsdóttur
skipulagsfræðing hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur
í tengslum við hverfaskipulag
borgarhluta í Reykjavík hafa börn á
aldrinum 6 til 12 ára verið látin
kortleggja gönguleiðir í skólann. Að
þessu hefur verið unnið árlega síðan
1988. Þessar upplýsingar hafa síðan
verið notaðar til að leggja fram
tillögur um aukið umferðaröryggi í
Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir
skipulagsfræðingur.
hinum ýmsu hverfum borgarinnar.
Með þessu vinnulagi er jafnframt
vonast til að börnin verði meðvituð
um sitt nánasta umhverfi.
Til að fá nánari upplýsingar um
þetta verkefni var Ingibjörg R. Guð-
laugsdóttir hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur spurð um það hvernig
þessi könnun færi fram.
„Könnunin fer fram á þann hátt að
börnin fá í hendur kort sem sýnir m.a.
götur, hús, húsnúmer og strætis-
vagnabiðstöðvar í borgarhlutanum.
Einnig er staðsetning og nafn skóla
sýnt. Bömin setja kross við heimilið
og draga síðan leiðina sem þau ganga
til og frá skólanum á kortið. Eldri
börnin vinna þetta fjögur og fjögur
saman undir umsjón kennara í
skólanum en yngri bömin heima með
hjálp foreldra. Þau eru einnig beðin
um að merkja á kortið hvar þeim
finnst erfitt að ferðast um og greina
frá því hvers vegna.
í allt hafa 12 skólar með um 4500
nemendum tekið þátt í þessari
könnun og hafa skólastjórar og
kennarar tekið þessari málaleitan
mjög vel og segja að þessi vinna
skapi umræður í bekkjunum.“
Hvernig er svo unnið úr þessum
gögnum?
„Allar gönguleiðir eru dregnar á
eitt kort sem nefnt er Gönguleiðir
skólabarna og einnig greint frá fjölda
barna á hverri leið. Þetta kort er síðan
notað þegar umferðarsérfræðingar
Reykjavíkurborgar leggja til hvaða
úrbætur þurfi að gera til þess að auka
umferðaröryggið í borgarhlutanum.
Þegar þessar tillögur hafa verið
samþykktar af Umferðarnefnd
Reykjavíkurborgar og hverfaskipu-
lagið af borgarráði er gert kort sem
sýnir æskilegar gönguleiðir skóla-
barna. Það eru þær leiðir sem eru
taldar öruggastar af umferðarsérfræð-
ingum. Báðum kortunum er síðan
dreift til viðkomandi skóla.“
Að lokum vildi Ingibjörg geta þess
að útbúið hefði verið kennslugagn -
litaskyggnur - hjá Borgarskipulagi
um stjórn borgarinnar, skipulag og
hvernig hægt er að hafa áhrif á það.
Þetta hefur verið gert til að börnum
verði betur ljóst hvernig þeirra
nánasta umhverfi verður til og hverjir
móta það og er ætlunin að kynna
þetta efni áður en bömin kortleggja
gönguleiðir sínar til skólans.
Látum Ijós okkar skína