Skátaforinginn - 01.08.1991, Page 19
UMFERÐAR
RÁÐ
L
Landsbanki
íslands
osi
rfræðsla
r í Koykjav ík
rðarfræósludeild lögreglunnar í Reykjavík
Þorgrímur Guðmundsson við umferðarfræðslu.
vori stendur lögreglan fyrir reiðhjóla-
keppni meðal 12 ára barna. Þau böm
eru verðlaunuð sem best gengur að
leysa þrautirnar sem lagðar eru fyrir
þau á hjólunum.“
Hvernig er frœðslunni tekið af
börnunum og skólanum og er hœgt j
að meta árangur liennar?
„Yfirleitt er okkur mjög vel tekið
bæði af bömum og skólafólki og þau
viðbrögð sem frá foreldrum koma eru
á sama veg. Árangur forvarnarstarfs
er hins vegar erfitt að meta eins og
gefur að skilja. Það má þó nefna að
samkvæmt skýrslum hjá lögreglunni
má merkja að slysatíðni er meiri hjá
þeim sem eru 12 ára og eldri og
stendur það e.t.v. í samhengi við það
að eftir þann aldur er hætt að bjóða
upp á umferðarfræðslu.
Þorgrímur var að lokum spurður
að því hvort honum finndist foreldrar
áhugasamir um öryggi barna sinna í
umferðinni.
„Ég verð því miður að segja það
eins og það er að mér finnst foreldrar
upp til hópa skeytingarlausir um
öryggi barna sinna. Sem dæmi má
nefna að þegar lögreglan skoðar reið-
hjól bama á vori hverju að þá kemur í
ljós að meirihluti þeirri uppfyllir ekki
Þorgrímur Guömundsson lögreglumaður.
nauðsynlegustu öryggiskröfur. Þá er
alltof lítið um það að börn - og
einnig fullorðnir - noti öryggishjálma
þó svo það hafi aukist að undan-
förnum, sérstaklega nu í sumar, sem
sennilega má rekja til reiðhjólaslys-
sins í Vestmannaeyjum í vor en um-
fjöllun um það virðist hafa aukið
töluvert á meðvitund fólks fyrir
mikilvægi hjálmanna. Þá má geta
þess að ennþá er allt of algengt að sjá
börn án endurskinsmerkja og er
sorglegt til þess að vita því þau auka
mjög öryggi barnanna í umferðinni
og auk þess er miklum fjármunum
varið til kaupa á þeim og þeim síðan
dreift ókeypis af ýmsum aðilum, m.a.
skátum, inn á heimilin."
Börn úr Selásskóla sem unnu útvarpskeppnina á vegum umferðardeildar lögreglunnar 1990.
Látum Ijós okkar skína
19