Dagsbrún - 01.12.1941, Side 3

Dagsbrún - 01.12.1941, Side 3
DAGSBRÚN W 1, árgangur Desember 1941 1. iölublað FORSPJALL Trúnaðarráð Dagsbi'únar og fé- lagsstjórn hafa ákveðið að gefa út öðru hvoru félagstíðindi undir nafni félagsins, og á kostnað þess, sem send verða öllum félagsmönn- um ókeypis. Svo fjölmenn er Dags- brún nú orðin, að engin leið er að ná til nema lítils hluta allra félags- manna með fundahöldum og ber því nauðsyn til þess að félagsstjórn og trúnaðarráð geti komið til þeirra boðum, skýrt frá starfsemi félags- ins, hvað fram undan sé og á ann- an hátt haft náið samband við þær þrjár þúsundir verkamanna, sem í félaginu eru, en starfa á fjölmörg- um vinnustöðvum. Fálagstíðindin munu verða rituð á algerum faglegum grundvelli, án þess að tekin verði í þeim flokks- pólitísk afstaða, enda eru til þess ætluð að tengja verkamenn fastar saman um stéttarmál sín og félags- mál, en ekki kljúfa þá í smærri hópa. Tíðindin eiga að gera félagsmenn áhugasamari og virkari og félagið samhentara og öflugra. Samningar Dagsbrúnar við atvinnurekendur Þegar leið að þeim tíma, er upp- sagnarfrestur var útrunninn á samn- ingum Dagsbrúnar við atvinnu- rekendur 1. nóvember, ákvað stjórn félagsins að halda trúnaðarráðs- fund um málið 7. október. Var stjórninni falið þar að leita sam- komulags við atvinnurekendur um sumarleyfi — til handa verkamönn- um og kaffitíma milli kl. 10 og 12 að kvöldi, er næturvinna væri unnin, ef grunnkaupinu yrði hald- ið óbreyttu. En félagsstjórn og trún- aðarráð voru þeirrar skoðunar, að undir núverandi kringumstæðum væri ekki heppilegt að leggja út í deilu til að hækka grunnkaups- taxtann, né styttingu vinnutímans, enda mundi, eins og hin pólitízku átök stóðu, það aðeins verða notað til magnaðs áróðurs fyrir því, að lögfesta kaupið frá 1. október, sbr. síðar frumrarp Eysteins Jónssonar, og allar líkur benda til að það hefði þá orðið ofan á. Hinsvegar væri at- vinnuleysi ekkert í Reykjavík, flest- ir verkamenn hefðu tekjur, þrátt fyrir dýrtíð, og engin undanbrögð um greiðslu réttra kauptaxta, samkvæmt gildandi samningum, auk þess sem félagið hefði rétt algerlega fjárhagslega við með ötulli innheimtu og aðstöðu er fékst um síðustu áramót samkv. samn- V DAGSBRÚN 3

x

Dagsbrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/935

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.