blaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 12
miðvikudagur, 1. júní 2005 I blaðið
Umbúðir
Samvinna margra rifin í tætlur
Það eru fáir sem spá í það langa vinnuferli sem
liggur að baki umbúðunum á litla súkkulaðistykk-
inu sem þeir gleypa í sig um leið og þeir rífa
umbúðirnar utan af og kasta þeim í ruslið. Ekki
er nóg með að umbúðirnar verndi vöruna heldur
eiga þær um leið að selja hana. Blaðið leitaði til
Maríu Möndu, formhönnuðar umbúða hjá Prent-
meti, til þess að skyggnast aðeins inn í heim um-
búðanna.
Mikilvægi umbúða
Hönnuðir og markaðs-
fólk gerir sér sífellt bet-
ur grein fyrir því hversu
mikilvægar umbúðir
eru í sölu- og markaðs-
setningu. Ferli þeirra er
langt og byijar yfirleitt
hjá framleiðandanum,
sem ákveður
hvaða vöru
hann vill
koma á mark-
að, í hvaða
magni eða einingu og til
hvaða markhóps hann vill
ná. Því næst leitar hann til
hönnuða.
María Manda, formhönnuður umbúða hjá Prentmeti.
Gott samspil
Hönnun umbúða má skipta
í tvennt; annars vegar
formið og hins vegar graf-
íkina. Hvort um sig getur
kveikt hugmynd að hinu og
skemmtilegustu umbúðim-
ar eru þegar gott samspil
er þarna á milli. Ef við
skoðum formið fyrst þarf að
taka tillit til margra þátta
- hverju er verið að pakka,
einingafjölda, framsetningu
í verslunum, hvernig á að
flytja vöruna, burðarþol um-
búðanna og tegund papp-
írs.
Hugmyndin að forminu
kemur oftast af vörunni sjálfri og ræðst
hvort askjan sé einnota eða margnota
og hvort þurfi einhvern leik í henni,
t.d. fyrir börn.
Hugmyndin
að form-
inu kemur
oftast af
vörunni
sjálfri og
ræðst hvort
askjan sé
einnota
eða marg-
nota.
Grípur augað
Grafikin er hönnuð ofan í teikninguna
af umbúðunum og þarf þar að taka til-
lit til ýmissa þátta eins og markhóps,
samkeppnisaðila, innihaldslýsingar og
magns. Einnig þarf grafikin að grípa
auga viðskiptavinarins og vera þannig
að hann velji þessa vöru fremur en aðra
því viðskiptavinurinn gefur sér að með-
altali átta sekúndur til að velja á milli
vörutegunda.
Allir á eitt
Þegar prentarkir eru tilbúnar eru þær
settar í vél og umbúðirnar skornar út.
Því næst eru þær límdar og síðan af-
hentar framleiðandanum sem pakkar
vörunni í þær og lokar þeim endanlega.
Þessum pakkningum er síðan pakkað
til afhendingar í verslanir.
Þróunar-, hönnunar- og framleiðslu-
ferli getur tekið allt frá nokkrum dög-
um upp í nokkra mánuði. Margar hend-
ur hafa lagst á eitt við að gera umbúðir
aðlaðandi og sem bestar svo neytendur
kaupi þær, rífi í sundur og hendi þeim
án umhugsunar.
Hvað táknar
krossinn?
Margvísleg tákn í umhverfi okkar
gefa okkur til kynna hvort við
eigum að vera kyrr, fara í þessa
átt eða hina eða nota tiltekna
aðstöðu. Þetta eru tákn eins og
umferðarmerki eða kynjamerkingar
á klósettum. Tákn sem þessi hafa
auðskiljan- -------r,
legaeina < ▲
merkingu en ýfŒ®
samkvæmt V | j
Carli Jung,
sem gerði
tákn að
sérstöku um-
fjöilunarefni
sínu, mega
tákn ekki
hafa neina
eina skilgreiningu.
Tákn eru ekki bara tákn
Þegar Jung fjallaði um táknmyndir
gerði hann skýran greinarmun á
þeim fyrrnefndu og svo öðrum sem
geta haft margvíslega merkingu,
líkt og þeim sem koma fyrir í trúar-
brögðum. Slík tákn verða að hafa
margar útskýringar og enga eina
mjög augljósa. Tákn ættu, sam-
kvæmt Jung, að vera merki þess
sem erfitt
er að skýra
auðveldlega
til fullnustu.
Hann taldi
að tákn væru
afar mikilvæg
manninum
og ímynd-
unarafli
hans því
þau gerðu
honum kleift að fara út fyrir ramma
hefðbundinnar hugsunar og end-
urskapa skilning sinn á lífinu og
tilverunni.
Kópavogsblóm
Dalvegi
Á1 fablóm
Á1fheimum
H USGAGNA
Bæjarlind 14-16, Kópavogi
10.000 MOGULEIKAR
þú velur sófa
þú velur stól
þú velur áklæði
þú velur lit
þú hannar
LINDIN
fyrir fólk með
sjálfstæðan smekk
Hornsófi
Áklæði frá kr 72.000
Leöur kr 134.000
Sófasett 3+1 + 1
Áklæði frá kr 86.000
Leöur frá kr 204.000
Borðstofustólar
Áklæði frá kr 6.400
Leöurfrá kr 10.200
Sessalong
Áklæði frá kr 37.000
Leöur kr 81.000
Sófasett - sófar - hægindastólar - borðstofustólar - borðstofuborö - skápar
Er til
tímalaus hönnun?
adalbjorn@vbl.is
Það þykir merki um góða
hönnun að hún standist tím-
SHELL
Dæmi
u m
hönn-
un sem þykir
sérstaklega
vel heppnuð
er kókflaskan
margfræga, merki
Skeljungs (sem er
augljóslega eftir-
líking af skel) og
Wolkswagen-bjall-
an. Það gleymist
samt stundum að þessi „ódauðlega"
hönnun hefur tekið verulegum breyt-
ingum í gegnum árin. Þannig er
bjallan nú orðin að „New Beetle",
sem er allt öðruvísi en gamla góða
bjallan. Sama má segja um kókflösk-
una sem áður var lítil, krúttleg og úr
gleri en flestir þekkja nú sem Vz lítra
plastflösku. Eins má það sama se;
um Shell-merkið - sem fengið heí
talsverða andlitslyftingu. Það er J
spurning hvort eitthvað sé til s<
heitir „tímala
hönnun".
Mest notaða táknið
Krossinn er tákn sem hefur fylgt
manninum frá því löngu fyrir
þann tíma sem við eigum skráðar
heimildir um. Krossinn kemur fyrir
í samfélögum um allan heim og
hefur fundist bæði í Kína og Afríku,
frá því á bronsöld í Skandinavíu, í
Forn-Grikklandi og frá því á tímum
fyrstu samfélaga Ameriku. Hann er
eitt mest
notaða
tákn
mannsins
og er
hluti af
sam-
vitund
hans.
Mismunandi merkingar
Sem tákn er krossinn í grunninn
hálfgert staðsetningartæki. Hann
gefur upp stöðu í alheiminum, stað
þar sem tvær línur mætast, og
gefur til kynna tilvist mannsins hér
og nú. Krossinn er útfærður með
margvíslegum hætti og mismun-
andi myndir hans hafa margar
ólíkar merkingar. Krossinn er merki
um heilsu, frjósemi, lífið, ódauðleik-
ann, anda og efni, sól og stjörnur
og miðju heimsins. Krossinn táknar
sameiningu himins og jarðar,
höfuðáttirnar og höfuðskepnurnar,
og jafnvel árstíðirnar fjórar. Með
tilkomu kristninnar fékk krossinn
svo merki þjáningarinnar og er
það hans þekktasta merking nú
til dags.