blaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 29

blaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 29
blaðið I miðvikudagur, 1. júní 2005 29 Af netinu Fjölmiðlar Ég man að ég sat hér fyrir tveimur vikum og harmaði að það eina sem ég gerði væri að horfa á Boston Legal. Núna er ég ekkert nema ánægður með þá staðreynd. Þetta eru bestu bandarísku gamanþættir sem hafa mætt á klakann síðan Malcolm in the Middle byrjuðu. Persónulega fíla ég BL betur. Eg meina, hvar annars staðar fær maður að sjá William Shatner stinga vindli í eyrað á sér? Ég er alltaf að minna sjálfan mig á að komast að því hver skrifar þessa þætti því þetta eru hágæða skrif (hvað húmorinn varðar a.m.k.). http://www.jupiterfrost.net/dojo/ Það e'r svo ógeðslega fyndið að horfa á CSI Miami og rauðhærða gaurinn. Hann er með álíka góðar setningar og gaurinn í upprunalega Law and Order. Er að horfa á einn slíkan þátt núna, sem sagt CSI, og hann var að segja „Junky or not... this man was killed" og svo horfði hann upp í loftið. Ég hef samt mjög gam- an af þessum þáttum. http://ami.hamstur.is 21.00 I einum grænum (5:8) Garðyrkjuþáttaröð þar sem tekið er á því helsta sem lýtur að fegrun garða. Umsjónarmenn þáttanna eru Guðríður Helgadóttir og Kristinn H. Þorsteinsson. Framleiðandi er Sagafilm. Textað á síðu 888 í Textavarpi. 21.30 Smáþjóðaleikarnir 2005 (2:5) 22.00 Tíufréttir 22.20 Holdið er veikt (Flesh and the Devil) 23.40 Kastljósið Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldið. 00.0 Dagskrárlok 21.15 Kevin Hill (9:22) (Going For The Juggler) 21.55 Samkvæmt læknisráði 3 (Strong Medicine 3) (5:22) 22.40 Oprah Winfrey 23.25 Double Bill (Tvöfaldur í roðinu) Gamansöm sjónvarpsmynd þar sem hjónalífið er í brennidepli. Því fer fjarri að hamingjan vari að eilífu. Það þarf að rækta sambandið til að viðhalda ástinni. Þetta vita allir góðir eiginmenn en málið kann að vandast þegar tvær konur þurfa að deila sama manninum. 00.50 Mile High (7:26) (Háloftaklúbburinn 2) Bönnuð börnum. 01.35 Medical Investigations (7:20) (Læknagengið) 02.15 Fréttir og ísland í dag Fréttir og ísland í dag endursýnt frá því fyrr í kvöld. 03.35 ísland í bitið 05.35 Tónlistarmyndbönd frá PoppTIVi 21.00 Providence 22.00 Law & Order: SVU - lokaþáttur 22.45 Jay Leno 23.30 Queer Eye for the Straight Guy - lokaþáttur (e) 00.15 Cheers - 3. þáttaröð (e) 00.40 Boston Public 01.20 John Doe 02.05 Óstöðvandi tónlist 21.00 Tiger Woods (1:3) 22.00 Olíssport 22.30 David Letterman 22.00 Not Another Teen Movie (Ekki enn ein unglingamyndin) Pottþétt gamanmynd um unglinga. 23.15 World Series of Poker (HM í póker) Slyngustu fjárhættuspilarar veraldar mæta til leiks á HM í póker en hægt er að fylgjast með frammistöðu þeirra við spilaborðið i hverri viku á Sýn. 00.00 Wasabi Aðalhlutverk: Jean Reno, Ryoko Hirosue, Michel Muller. Leikstjóri er Gérard Krawczyk. 2001. Bönnuð börnum. 02.00 The Sticky Fingers of Time 04.00 Not Another Teen Movie 21.00 Tvíhöfði(e) 21.30 Real World: San Diego 22.00 Meiri músík Molar Sjónvarpsstöðin MTV ritskoðar Nine Inch Nails Rokksveitin Nine Inch Nails hef- ur afbókað fyrirhugaða framkomu hljómsveitarinnar í verðlaunaþætti á MTV-sjónvarpsstöðinni. Ástæð- urnar fyrir því eru sagðar pólitískir árekstrar. Sveitin átti að spila lagið The Hand that Feeds af nýútkom- inni breiðskífu sinni, With Teeth, en eftir að forsvarsmenn sjónvarps- stöðvarinnar neituðu að nota mynd af George Bush Bandaríkjaforseta á sviðinu ákvað Trent Reznor, söngv- ari sveitarinnar, að hætta við að spila. Talsmenn MTV sögðu að með þessu hefðu þeir viljað forðast að tengja verðlaunahátíðina við stjórn- mál en segjast þó virða skoðanir rokkaranna. Skyldur blaðamanna við lesendur andres.magnusson@vbl.is Greinaflokkur Sigríðar Daggar Auð- unsdóttur í Fréttablaðinu um sölu ríkisbankanna hefur verið mjög til umræðu undanfarna daga, enda mik- ill vöxtum, og þar er fjallað um mikil hagsmunamál, hvemig, sem á það er litið. Ég hnaut þó um það snemma í grein- inni að erlendum ráðgjafa muni hafa verið „falið að gera næmigreiningu á reiknilíkaninu". Þá fór nú að héla í morgunkaffið þannig að ég tók upp símann og hringdi á Fréttablaðið og spurði viðskiptablaðamann hvað í ósköpunum „næmigreining" væri. Hann varð að játa að hann væri nú ekki með svarið á takteinum en skömmu síðar kom kollegi hans £ símann og gat útskýrt það fyrir mér með dæmum. Ég þakkaði kærlega fyr- ir mig og kvaddi. Þetta er sumsé það sem nefht hefur verið fráviksgreining - greining á því hvemig frávik á for- sendum geta breytt útkomunni, en af því enska hugtakið er „sensitivity an- alysis" hafa menn freistast til að nota hina fullkomlega óskiljanlegu „næmi- greiningu". Það eru svo sem engin tíðindi að sér- fræðingar falli í þær gryfjur að búa til lítt skiljanleg orð, enda eru þeir fæst- ir sérfræðingar í íslensku. Hitt er annað mál að þegar blaðamenn taka slíkt hrátt upp á síðum sínum, hvort heldur er úr munni sérfræðinga eða skýrslum, þá eru þeir að bregðast skyldu sinni við lesendur. Hlutverk blaðamanna Auðvitað er þetta flókið mál en það er einmitt hlutverk blaðamanna - að taka saman slíkt efni, upplýsa það sem áður var hulið, greina aðalat- riði frá aukaatriðum, koma þessu á mannamál og gera það aðgengilegt lesendum. í framhaldi af því er svo rétt að spyrja annarrar spurningar: Er les- endum einhver greiði gerður með greinaflokki af þessu tagi? Geta dag- blöð í alvöru ætlast til þess að les- endur þeirra setjist niður daglega, í viku eða meira, til þess að lesa svona óskapnað sér að gagni? Tæplega. Að minnsta kosti heyrðist manni í ís- landi í dag á mánudag að Siguijón M. Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, hafi ekki einu sinni enst til að lesa greinarnar! Sum mál eru vissulega afar flókin og kunna að kalla á svo smásmyglislega umfjöllun en dagblað er þá ekki rétti vettvangurinn fyrir hana. í þessu tilviki má svo efast um að efn- istökin þjóni efhinu fremur en lesend- um. í greinaflokki Sigríðar Daggar eru nefnilega ýmis tíðindi og athyglis- verð sjónarmið en þau hverfa nánast í prentsvertuflóðinu, aukaatriðum og eldgömlum fréttum. Þegar maður les þetta svo í fimm skömmtum er erfitt að verjast þeirri hugsun að maður botni minna í málinu eftir lesturinn en áður. Nú þegar ég glugga í greinamar allar saman fæ ég svo ekki séð að neitt hafi kallað á þessa framsetningu efnisins. Hin eiginlegu tíðindi voru nefnilega öll tekin saman f tilvísunarfréttum á forsíðu, dagana sem greinaflokkur- inn var birtur. Þessar tilvísunarfrétt- ir hefði allt eins mátt sameina í eina grein með upplýsingagrafik og þá hefði verið einhver veigur í umfjöll- uninni. Ertu spennt/ur fyrir nýju sjónvarpsstöðinni Sirkus? Jóhannes Jónsson, 37 ára „Ég bara veit ekkert um hana." Sigríður Karlsdóttir, 61 árs „Nei, það er ég ekki." Hjördis Sigurðardóttir, 13 ára „Nei, ég hef ekkert heyrt um hana." Steinar Ágústsson, 44 ára „Ég bara þekki hana ekki.“ Selma Þórsdóttir, 22 ára „Já, ég er svolítið forvitin." Erla Þorsteinsdóttir, 15 ára „Ég bara veit ekkert um hana.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.