blaðið - 01.06.2005, Síða 22
22
•igt:
miðvikudagur, 1. júní 2005 i blaðið
Liverpool að
fá leikmann
Framkvæmdastjóri Liverpool,
Rafael Benitez, er sagður vera
að tryggja sér unglinginn Miguel
Roque. Strákurinn, sem er aðeins
16 ára, þykir gríðarlegt efni en
hann leikur sem miðvörður. Real
Madrid og Barcelona eru einnig á
eftir þessum undradreng en The
Daily Mail sagði í frétt sinni í gær
að Rafael Benitez Liverpool-stjóri
sé að sigra í kapphlaupinu um
þennan pitt og gengið verði frá
samningi þar að lútandi á allra
næstu dögum.____■
Souness býður
í Van Buyten
Greame Souness, framkvæmda-
stjóri enska úrvalsdeildarliðsins
Newcastle United, hefur boðið 620
milljónir íslenskra króna í Danny
Van Buyten sem leikur með þýska
liðinu Hamburger. Þetta kemur
fram í The Mirror í gær. Van Buyten
er miðvörður og hefur verið á óska-
lista Greames Souness í langan
tíma, eða í ein tvö ár. Van Buyten,
sem er belgískur landsliðsmaður,
var meðal annars í láni hjá Manc-
hester City og þegar Souness
var hjá Blackburn reyndi hann
að fá leikmanninn til Blackburn.
Forráðamenn Hamburger hafa
látið hafa eftir sér að Van Buyten
sé ekki til sölu en það gæti verið
tilraun þeirra til að hækka verðið á
leikmanninum. ^
Lopez ekki áfram
hjá Valencia
Forráðamenn spænska liðsins
Valencia hafa tjáð þjálfara fé-
lagsins, Antonio Lopez, að hans
verði ekki þörf á næstu leiktíð. ■
Lopez staðfesti þetta við spænska
fjölmiðla og sagði að hann hafi
komist að samkomulagi við forseta
félagsins, Juan Soler. „Ég vissi
að ef við myndum ekki komast í
Meistaradeildina yrði ég ekki áfram
sem þjálfari hjá Valencia á næstu
leiktíð," sagði Antonio Lopez við
fréttamenn. _
Ronaldo montinn
af áhuga Milan
Brasilíski snillingurinn Ronaldo,
sem leikur með Real Madrid á
Spáni, hefur látið hafa eftir sér að
hann sé mjög svo upp með sér
vegna áhuga AC Milan á sér. í
síðustu viku gerðu forráðamenn
AC Milan fyrirspurnir um kappann.
„Minn eini ásetningur í augnablik-
inu er að leika áfram með Real
Madrid en ég verð að segja að ég
er mjög upp með mér yfir áhuga
stórveldis sem AC Milan á mér,“
sagði Ronaldo við fréttamenn. AC
Milan, sem átti góða möguleika á
að vinna tvo bikara í vetur en stóð
uppi með engan, ætlar að styrkja
lið sitt verulega fyrir átökin á næstu
leiktíð og nýlega gekk Marek
Jankulovski, varnarmaður Udinese,
til liðs við AC Milan. Jankulovski
hefur oftast leikið sem vinstri bak-
vörður en einnig getur hann nýst
vel sem vinstri kantmaður. 0
Chelsea
vill fá Motta
Ensku meistararnir í Chelsea
hafa sýnt hinum unga leikmanni,
Marco Motta, mikinn áhuga en
leikmaðurinn hefur verið á mála hjá
Atalanta á italíu. Motta, sem er 19
ára kantmaður, þykir gríðarlegt efni
og vitað er af áhuga AC Milan og
Inter á leikmanninum. Hann er verð-
metinn á um 500 milljónir íslenkra
króna og það þykir nokkuð öruggt
að hann fari frá Atalanta, sem féll í
B-deildina á Ítalíu um helgina. ■
Suns heldur í
vonina
Phoenix Suns heldur enn í vonina
um að komast í úrslit um NBA-
meistaratitilinn. Phoenix vann San
Antonio Spurs í fjórða leik liðanna
en leikið var í San Antonio. Staðan
í hálfleik var 52-59 fyrir Phoenix og
í þriðja leikhluta fóru þeir á kostum
og unnu hann 21-35. Þar með var
nánast formsatriði fyrir Steve Nash
og félaga að klára leikinn. Lokatöl-
ur urðu svo 106-111 fyrir Phoenix
Suns og Amare Stoudemire var
með 31 stig og fimm fráköst. Joe
Johnson skoraði 26 stig og tók
fimm fráköst og Steve Nash var
með 17 stig og 12 stoðsendingar.
Hjá San Antonio skoraði Manu
Ginobili 28 stig og átti sjö stoð-
sendingar. Tim Duncan skor-
aði 15 stig og tók 16 fráköst
en Duncan hitti afleitlega af
vítalínunni. Hann hitti að-
eins úr þremur skotum það-
an af 12 en vítahittni San
Antonio var 47,8% eða 11
af 23 skotum. Vítahittnin var mun
betri hjá Phoenix eða 87,5%, 14 skot
niður af 16. Staðan í einvíginu er því
3-1 fyrir San Antonio Spurs og næsti
leikur liðanna fer fram á heimavelli
Phoenix Suns.
Slakur fótboltaleikur
Það var ekki burð-
ug knattspyman
sem Grindavík og
ÍBV buðu upp á í
Grindavík þegar
liðin mættust í
Landsbankadeild-
inni. Öllþrjúmörk
leiksins komu á
fyrstu 16 mínútun-
um. Sinisa Kekic,
sem var settur í
sóknina, skoraði
á 11. mínútu og
fjórum mínútum síð-
ar var Matthew Platt bú-
inn að jafna metin fyrir ÍBV.
Ekki leið nema um mínúta þar
til Jóhannes Valgeirsson dómari var
búinn að flauta vafasama vítapsymu
á ÍBV og Óli Stefán Flóventsson skor-
aði úr henni. Eftir þetta má segja að
leikurinn hafi hmnið í gæðum. Lítið
var um samspil og leikmenn liðanna
náðu ekki að halda boltanum innan
síns liðs meira
en þijár sending-
ar. Milan Stefán
Jankovic færði
Sinisa Kekic í
ffamlínuna og
verður það að telj-
ast hálfundarlegt
þar sem Kekic
átti afbragsðleik
á miðjunni gegn
ÍA. Það er ávallt
mikið spil í kring-
um Kekic og í ff am-
línunni nýtist hann
einfaldlega ekki nógu vel
í spilið. Lokatölur í leiknum
urðu 2-1 fyrir Grindavík og fyrstu
stig þeirra á íslandsmótinu era í húsi.
ÍBV er enn án stiga og það verður að
segjast eins og er að liðið er að leika
illa það sem af er Landsbankadeild-
inni. Guðlaugur Baldursson og hans
menn eiga erfitt sumar ffam undan.
Skagamenn teknir
í kennslustun
Skagamenn, Skaga-
menn, skoraðu
mörkin. Jú, þeir
gerðu það einu
sinni svo um
munaði en núna
er öldin önnur.
Skagamenn hafa
aðeins skorað
tvö mörk í fyrstu
fjóram leikjum liðs-
ins og í leiknum gegn
Fylki vora það Árbæing-
ar sem skoraðu öll þrjú mörk
leiksins. Fyrir leikinn höfðu menn
talað um að Fylki gengi illa að skora
sem var jú alveg kórrétt. Þeir urðu
einnig fyrir áfalli í vikunni þegar í
ljós kom að Sævar Þór Gíslason var
með shtið krossband og leikur ekki
meira á leiktíðinni. Fylkismenn léku
afbragðsvel á Akranesi og Hrafnkell
Helgason lék á ný
með Fylki. Hann
kom þeim yfir á
23. mínútu. Björg-
ólfur Takefusa
skoraði úr víta-
spyrnu á 9. mín-
útu seinni hálf-
leiks og Svíinn
Erik Gustafsson
gulltryggði öragg-
an 0-3 sigur Fylkis
með marki ó 12. mínútu
seinni hálfleiks. Fylkismenn
hefðu alveg getað unnið stærri sigur
í leiknum, þvílíkir voru yfirburðir
gestanna. Bæði liðin era nú með sex
stig eftir fjóra leiki og í næstu umferð
mætast Fram og ÍA og Fylkir tekur
á móti Grindavík. Leikirnir verða 11.
júní.
fotbolti.net
Gianluigi Buffon, sem margir
telja besta markmann heims,
hefur aðeins áhuga á að
ganga til liðs við Real Madrid
fari hann ffá Juventus. Hann
var orðaður við Manchester
United um helgina en tahð
var að United gæti boðið Juve
35 milljónir punda fyrir þenn-
an frábæra markmann.
Roy Carroll er farinn frá
United og því er Tim Howard
einn eftir. Nýr markmaður
mun koma í sumar en það er
ljóst að Buffon verður ekki
sá maður. Silvano Martina,
umboðsmaður Buffons, sagði
eftirfarandi í viðtali við Sky-
fréttastofuna í dag:
„Það er rétt að Juventus
eiga það til að selja sína bestu
leikmenn þegar almenni-
legt boð kemur í þá.Ég held
þó að þeir vilji ekki selja Buffon, að
minnsta kosti ekki í bili.
Hvað sem því líður skiptir hugur
leikmannsins mjög miklu máli og
Buffon er fullkomlega skuldbundinn
Juventus, þar sem þeir era eitt af
þremur bestu liðum í heimi."
Martina bætti svo við að einungis
eitt lið kæmi til greina ef Buffon færi
frá Ítalíu: „Ef Buffon færi einn dag-
inn frá Juventus þó færi hann bara
til Real Madrid. Þess vegna held ég
að ekkert komi út úr sögusögnum um
Manchester United." ■
Buffon hefur ekki áhuga
á Manchester United
United verður
að vinna titla
Nike-spor-
t v ö r u -
framleið-
andinn,
er aðal-
ili enska úrvalsdeildar-
liðsins Manchester United, hefur
gefið viðvörun til United-manna. Við-
vörunin snýst um eitt mál og það er
árangur. United vann engan titil í vet-
ur og það er nokkuð sem veldur Nike-
framleiðendum áhyggjum. Andy
Todd, varaforseti íþróttavöru Nike,
sagði í samtali við The Sunday Tele-
graph: „Við vitum ekki hvað gerist á
næsta ári, allt er opið.“ Manchester
United og Nike gerðu samning til 13
ára árið 2002. Hann hljóðaði upp á
37,6 milljarða íslenskra króna. I júlí
ó næsta óri er möguleiki fyrir Nike að
segja upp samningnum og Todd segir
að það sé vissulega möguleiki. „Til
dæmis ef Manchester United kemst
ekki í Meistaradeildinar 2006-2007
þá gæti það verið mikið vandamál.
Við komum til með að fylgjast mjög
vel með gangi mála eins og við gerum
alls staðar þar sem við erum styrkt-
araðilar," sagði Andy Todd. Pressan
um betri árangur en á síðustu leiktíð
eykst því á forróðamenn Manchester
United. Næsta ór verða að koma titl-
ar á Old Trafford. ■