blaðið - 01.06.2005, Page 27
blaðid I miðvikudagur, 1. júní 2005
ít
:myndir 27
REGnBOEinn
2S.000 gestir Í
g»m»:
Dsnxl Cafrn ~ S-cnn.i Mir.h.id"
CfíAIG MEANEY MILLEfí GAMBON
BBm ni/ filÁð,
** * * MBL' / f':
§3* binöið V/
*4\I2 Kvjkinvnflii.c
-ITAI*. WMKJb
P'P ! C I
Breskur glæpatryllir eins og þoir
gernst bestir. Svartur luimor, otbeldi
og cool tónlist með Cult, Stnrsailor, FC
Knhuna og Duran Duran.
Fra Iramleiðeiulum Lock Stock & Snatcli
LAYEfíCAKE
Sýndkl. 10 Bi. 16ára
Sýndkl. 6og9B.i. 10ára
Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6 og 8
400 kr. i bíó! Blldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu
Sýnd kl. 6 og 9
3ÍÓ
Slmi SS3 2075
bara lúxus
FÓR BEINT Á TOPPINN í USA
FÓNDA LÖPEZ
Svwi kl 6,9 w 10:30
Sýnd kl. 8
'UH Sírninn
www.laugafasbio.is
Delicia Mini
í 12 Tónum
steinunn@vbl.is
Hljómsveitin Delicia Mini frá Árós-
um í Danmörku hefur verið að gera
það gríðarlega gott að undanfórnu.
Þar er íslendingurinn Kristján Egg-
ertsson í fararbroddi og nýlega sendi
sveitin frá sér sína fyrstu breiðskífu í
Danmörku og ber hún heitið Skuggi.
Platan hefur fengið alveg frábærar
viðtökur gagnrýnenda þar úti og var
meðal annars valin ein af 10 bestu
plötum síðasta árs hjá Danmarks
Radio. Sveitinni hefur meðal annars
verið líkt við Belle & Sebastian og
Eels, en Delicia Mini spilar blöndu af
brimbrettatónlist sjötta áratugarins,
kántrí og rokki. Platan hefur ekki
verið fáanleg hér á landi fyrr en nú
en það eru 12 Tónar sem sjá um dreif-
ingu hennar á íslandi.
Auk útgáfunnar er mikið um
að vera hjá sveitinni næstu vikur.
Fyrirhugaðir eru tónleikar með ís-
lensku hljómsveitinni Ske á hinum
gamalgróna tónleikastað Rust í
Kaupmannahöfn en þeir fara fram
fóstudaginn 10. júní. Báðar hljóm-
sveitirnar verða svo að spila á tón-
listarhátíðinni Spot í Árósum kvöldið
eftir. í október heldur Delicia Mini
síðan í tónleikaferð um Danmörku og
stefnir að því að ljúka ferðinni hér á
íslandi. ■
agnar.burgess@vbl.is
Ég er nú búinn að hlusta á þetta fyrsta
verk Helga Vals I nokkra daga og verð
að segja að það hefur ekki gengið al-
veg nógu vel. Treganum er ofaukið og
stend ég mig oft að því að slá nóturnar
fyrir strákinn aðeins á undan honum,
svona til þess að lagið haldi örugglega
áfram. í textunum er Helgi að tjá sig
um erfiða og þunga hluti; nótt, dauða,
fjarlægð, óhamingju, búið spil, myrkur,
grátur og þar fram eftir götunum. Ég
hugsa að ef platan kæmi út að vetri til
þá yrðu framleiðendur gleðipilla miklu
moldríkari en þeir eru þar sem skamm-
degisþunglyndi næði nýjum hæðum.
Vissulega er hitt og þetta gott að finna
á plötunni. Hún er mjög vel unnin,
enda ekki við öðru að búast frá þeim
mönnum sem hana gerðu, Adda 800
og Jóni Ólafssyni, ásamt fleirum.
Umslagið er vandað og mikið gert úr
því að hér er listamaður mikill á ferð.
Ég er reyndar á því að ástarjátningunni
svakalegu hefði mátt sleppa úr takk-
inu. Málið er að þótt sumar hugmyndir
séu góðar þá eru þær bara ekki nægi-
lega margar til þess að réttlæta heila
ellefu laga plötu. Lagið Damage the
Dark er áberandi besta lag plötunnar.
Það minnir mig reyndar óneitanlega á
eitthvað sem ég hef heyrt áður, kem
bara ekki fyrir mig hvað það er. Helgi
er fínn söngvari en hann þyrfti að
breyta töluvert til svo ég myndi vel við
una. Staðreyndin er sú að platan skilur
lítið sem ekkert eftir og getur það ekki
talist mjög jákvætt.
Vögguvísur fyrir
lengra komna
Helgi Valur: Demise of Faith
Afmæli Spuna
í Klink og Bank
í dag verður mikið um að vera í galler-
íi Klink og Bank, en þar verður hald-
ið upp á að Spunakvöldin, sem hafa
verið gey silega vinsæl í starfi gallerís-
ins, eru ársgömul.
Spunakvöldin eru nú orðin um 30
talsins og eftir samfellt ár af Spuna-
kvöldum ætla forsvarsmenn þeirra
að halda upp á þessi tímamót klukk-
an 20 í kvöld. Spuni býður því til
veislu öllum þeim sem vilja leggja
sitt af mörkum eða njóta þess sem
aðrir leggja fram.
Markmið Spuna er að stuðla að al-
mennum spuna, í hvaða formi sem
er og er öllum velkomið að taka þátt.
Eina skilyrðið er að viðkomandi mæti
á undirbúningsfund og tilkynni atriði
sitt til þátttöku. Á liðnum Spuna-
kvöldum hafa komið fram fjölmarg-
ir listamenn en eðli formsins vegna
er alveg óvíst hverjir koma fram á
hverju kvöldi. Þátttaka og áhorf eru
öllum heimil að endurgjaldslausu.
Nánari upplýsingar má finna á
http://where .is/ spuni
Netlisti Tónlist.is
Hildur Vala situr enn í efsta sæti
Netlistans með vinsælasta lag ársins
- Líf. Hildur Vala á reyndar 12 lög á
listanum þessa vikuna, þar af sex lög
í fyrstu tíu sætunum, en það eru öll
lögin af nýju plötunni hennar „Hildur
Vala“ sem kom út 10. maí. Netlistinn
er byggður á sölu íslenskrar og er-
lendrar tónlistar á Tónlist.is.
1. Líf Hiidur Vala
2. Speed of sound Cofdplay
3. Feel Good Inc Gorillaz
4. The boy who giggled so sweet Hildur Vala
5. Songbird Hildur Vaia
6. Ást Ragnheiður Gröndal
7. í fylgsnum hjartans Hiidur Vala
8. If I Had Your Love Selma Björnsdóttir
9. Dark end of the street Hiidur Vala
10. Röddin þín Hiidur Vala