blaðið

Ulloq

blaðið - 10.06.2005, Qupperneq 2

blaðið - 10.06.2005, Qupperneq 2
föstudagur, 10. júní 2005 I blaðið andartakinu Hmhimtn Umhverfismat á Alcoa Hæstiréttur staðfesti í gær niður- stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að ógilda úrskurð umhverfisráðherra um að ekki þyrfti að fara með 322 þúsund tonna álver Alcoa í Reyðar- firði í umhverfismat. Það var Hjör- leifur Guttormsson sem sótti málið en Hæstiréttur vísaói reyndar frá kröfum Hjörleifs um að starfsleyfi ál- versins yrði ógilt. Breytir engu um framkvæmdir Yfirmenn Alcoa Fjarðaráls segja dóminn ekki breyta neinu um fram- kvæmdir á álverinu - haldið verði áfram samkvæmt áætlun. Segja þeir að þegar sé hafin vinna á umhverf- ismatinu og að því verði skilað inn við fyrsta tækifæri. Segir í tilkynn- ingu frá félaginu að dómurinn komi á óvart og valdi vonbrigðum en frá upphafi hafi fyrirtækiö kappkostað að eiga náið samstarf við stjómvöld og stofnanir svo eðlilega og löglega sé staðið að öllum fram- kvæmdum. Þá segir að umhverfisvemd sé eitt af forgangsmál- um fyrirtækisins. Meiri losun efna en talið var Sigríður Anna Þórð- ardóttir umhverfis- ráðherra segir að þar sem starfsleyfið hafi ekki verið fellt úr gildi telji hún að framkvæmdir haldi áfram. Bendir hún á að búið var að meta umhverfisáhrif af 420 þúsund tonna álveri sem Norsk Hydro hafi ætlað að reisa, áður en ráðist var í framkvæmd ál- vers Alcoa. Sú stað- reynd er einmitt það sem Hjörleifur setti út á með þeim rökum að Álver Alcoa sé ný framkvæmd þar sem gert er ráð fyrir annarri og lak- ari tækni og mengunarvömum. Telur Hjörleifur að meiri losun mengandi Sigriður Anna umhverfis- ráðherra við framkvæmda- svæði Alcoa í byrjun mánaðarins. Austurver Opið alla daga ársins til kl. 24 Mán.-fös. kl. 8-24 Helgar og alm. frídaga 10-24 JL-húsið Mán.-fös. kl. 9-21 Helgar 10-21 Kringlan 1. hæð Mán.-mið. kl. 10-18:30, fim. 10-21, fös. 10-19, lau. 10-18, sun. 13-17 efna en metið var að hlytist af fram- kvæmdum Norsk Hydro kæmu frá álveri Alcoa. í nýlegri heimsókn Sigríðar Önnu á framkvæmdasvæði Fjarðaráls sagði hún afar lærdómsríkt að fara um svæðið og sjá þá áherslu sem lögð er á umhverfismál. Sagði hún að þama virtist henni reynt að byggja upp í góðri sátt við umhverfið. Ævisaga Laxness: Hannes býðst til þess að gefa fjölskyldunni gæsalappir Málshöfðun gegn Hannesi Hólmsteini vísað frá og Auði Laxness gert að greiða hálfa milljón í málskostnað Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær frá dómi máli sem fjölskylda Halldórs K. Laxness höfðaði gegn dr. Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni og gerði Auði Laxness að greiða Hann- esi hálfa milljón króna í málskostn- að. Hannes segist vonast til þess að hann geti náð sáttum við fjölskyldu Laxness, svo binda megi „enda á þennan fáránlega málarekstur." í því skyni hefur hann boðist til þess að endurútgefa hina umdeildu bók „með gæsalöppum og neðanmálsgreinum eftir þeirra athugasemdum." Málið var höfðað vegna meintra höfundarlagabrota í 1. bindi ævisögu Hannesar um Nóbelsskáldið. Var í úrskurðinum vísað til þess að málið væri svo fullkomlega vanreifað að ekki væri unnt að leggja efnisdóm á það. „Það er leiðinlegt að standa í ill- deilum við gamla, góða konu sem hefur reynst sínum manni vel. Eig- inkonu þjóðskáldsins, sem ég hélt í sakleysi mínu að væri sameign okk- ar allra en ekki séreign einhverrar vinstrisinnaðrar bókmenntafræðinga- klíku,“ segir Hann- es, en hann kvaðst ekki hafa fengið nein svör við tilboði sínu um aðra útgáfu 1. bindis ævisögunnar. Mögulegt er að áfrýja úrskurðinum til Hæstaréttar en ákvörðun hefur ekki verið tekin um það. í ljósi van- reifunarinnar er þó eins mögulegt að erfingjarnir kjósi að höfða nýtt mál og rökstyðja kröfur sínar betur. í úrskurði dómara var gagnrýnt að erfitt væri að lesa úr stefnunni til hvaða lagaákvæðis bæri að heimfæra ætlaða refsiverða hegðun, samhengi málsástæðna og atvika sé ekki skýr, og ágripskennd lýsing málsástæðna sé með öllu ófullnægjandi. Hótel opnað Hið nýja Radisson SAS 1919 I Eimskipafélagshúsinu hótel verður opnað fyrir fyrstu gesti í dag. Opið lengur ^Lyf&heilsa Gróðrarstööin Dalvegi 32, Kópavogi. Sími 564-2480 Hótelið fékk nafn sitt af stofnári Eim- skipafélagsins en það verður rekið í fyrrum höfuðstöðvum þess. Um leið tekur veitingastaðurinn Salt til starfa á jarðhæð hússins en eldhúsið verður undir stjórn Ragnars Ómars- sonar, matreiðslumeistara og lands- liðsmanns í matreiðslu. Hótelið er 70 herbergja, fjögurra stjörnu lúxus- hótel í miðbæ Reykjavíkur. Herberg- in eru í fjórum stærðarflokkum, en 70% þeirra teljast til lúxusherbergja. Andri Már Ingólfsson, eigandi húss- ins, segir að hér sé á ferðinni svokall- að lífsstflshótel, sem sé ný tegund af hótelum sem rísi nú um allan heim. „Mikið er hugað að heildarandrúms- lofti og tengt er saman, hönnun, hús- gögn, litir, tónlist og birta. Þetta er ódýrasta besta hótelið í bænurn." Mik- ið var lagt í hönnun her- bergjanna en engin tvö eru eins. Upprimaleg- ar rósettur og skreyt- ingar fá að halda sér víða en annars staðar hafa þær verið huldar nýjum innréttingum en ekkert hefur verið skemmt, enda er húsið friðað. Meðal annars hefur gamla Eimskips- merkið á þaki húss- ins verið hulið nýju nafni hótelsins, 1919. Bygginguna teiknaði Guðjón Samúelsson, fyrrum húsameistari rfldsins. Húsið var stækkað um tæpan helming með viðbyggingu á árunum 1977-1979 en þann hluta teiknaði Halldór H. Jóns- son arkitekt. Sagt upp með SMS-skilaboðum Birkikvistur 399 kr. Blátoppur 550 kr. Fjallarifs 550 kr. Lobelia 250 kr. Petonia 250 kr. Nellika 250 kr. Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga Starfsmanni lítillarverslunar á lands- byggðinni var í gær send uppsögn með SMS-skilaboðum. Samkvæmt heimildum Blaðsins var enginn fyr- irvari gefinn fyrir uppsögninni og kom hún því eins og reiðarslag fyrir umræddan starfsmann. Fá fordæmi eru fyrir slíkum uppsögnum en full- trúar verkalýðshreyfingarinnar, sem Blaðið ræddi við í gær vegna málsins, voru allir mjög undrandi á þessum vinnubrögðum. Hins vegar veltu þeir fyrir sér hvort slík uppsögn gæti ver- ið lögleg, nánar tiltekið hvort hægt væri að skilgreina þetta sem skrif- lega uppsögn. Gæta þarf að virðingu starfsmanna Ingvar Sverrisson, lögmaður Alþýðu- sambands íslands (ASÍ), sagðist ekki hafa heyrt af málinu þegar rætt var við hann í gær. „í fljótu bragði lít ég þannig á að SMS-skilaboð séu rafræn en ekki skrifleg. Okkar afstaða er að uppsagn- arbréf þarf að afhenda persónulega, eða þannig að hægt sé að staðfesta móttöku bréfsins. Verkalýðshreyfing- in mun standa mjög hart gegn svona aðgerðum atvinnurekenda, einkan- lega vegna þess að uppsagnir eru eðli málsins samkvæmt áfall fyrir hlutaðeigandi starfsmann. Hafa ber í huga að gæta þarf að virðingu starfs- mannsins." Álfheiður M. Sívertsen, lögmaður Samtaka atvinnulífsins (SA), bend- ir á að hægt sé að segja fólki upp á mismunandi vegu, og til dæmis séu munnlegar uppsagnir oft fullgildar. Hún hefur hins vegar ekki heyrt um að SMS-skilaboð hefðu verið notuð til uppsagna. „Það hefur verið staðfest fyrir Fé- lagsdómi að munnlegar uppsagnir séu gildar sé hægt að sanna efni þeirra. Hins vegar geta komið upp vandamál vegna sönnunar sé þeirri aðferð beitt. Þess vegna mælum við með því að allar uppsagnir séu skrif- legar. Ég hef ekki heyrt um að SMS- skilaboð hafi verið notuð til uppsagna en ég geri ráð fyrir því að það geti al- veg eins komið upp sönnunarvanda- mál vegna slíkra tilkynninga.“ - Spark leikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Útilíf - Kassabílaakstur - 1 9-12 7-8 óra ÚLFLJÓTSVATNI Upplýsingar og skráning á netinu: www.ulfljotsvatn.is Einstök krakkanámskeið Útilíf og CEVÍntýri! ara Almenn námskeið Vinir, fjör og hópef li! INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.