blaðið - 10.06.2005, Page 6
Kodak EasyShare CX7330
• 3,1 milljón pixla
» 3x optískur og 3,3 x stafrænn aðdráttur
• Kodak linsa
• 1.6” skjár
• Video með hljóði
• Auðveld í notkun
JÚNÍTILBOÐ
Kodak EasyShare LS755
• 5 milljón pixla
• 3 x optískur og 6 x stafrænn aðdráttur
Schneider linsa
Frábær2,5” skjár
• Lithium lon rafhlaða
• Tengistöð fylgir
• 22 tökustillingar
• Verð: 34.900 kr
Verð áður 4BA0Ú kr
Kodak EasyShare LS743
4 milljón pixla
2,8x optískur og 3,6x stafrænn aðdráttur
Schneider linsa
1,8” skjár
Video með hljóði
Lithium lon rafhlaða og hleðslutæki
Lítil og nett
Verð: 24.900 kr
HahsPewsih
* Verð miðast við léttgreiðslur Visa eða Euro til fimm mánaða
föstudagur, 10. júní 2005 I blaðið
íbúar Álftaness
mótmæla miðbæ
í gær var bæjaryfxrvöldum á Álfta-
nesi afhentur undirskriftalisti þar
sem húsráðendur ríflega helmings
húsa bæjarfélagsins lýsa yfir óánægju
með fyrirhugaðar breytingar bæjarfé-
lagsins á miðbæ Álftaness. Hópur
íbúa tók höndum saman í vikunni og
gekk í hús í bæjarfélaginu til að safna
undirskriftum gegn fyrirhuguðu deili-
skipulagi sem kynnt hefur verið um
miðbæjarsvæðið á Álftanesi. Eina
tillagan, sem kynnt hefur verið, er
þematillaga frá arkitektastofuimi
Batteríið, sem margir íbúar telja vera
í andstöðu við ímynd Álftaness sem
fámennt, friðsælt og náttúruvænt
sveitarfélag.
Samþykkt með meirihluta bæj-
arstjórnar
við arkitektastofuna Batteríið ehf.
með fjórum atkvæðum meirihluta
D-lista gegn þremur atkvæðum
minnihluta Á-lista. Álftaneshreyfing-
Tillaga bæjaryfirvalda þykir ekki sam-
ræmast hugmyndum um „sveit í bæ“.
in hvatti til þess að sveitarfélagið
eignaðist miðsvæðið - sem nú er í
eigu verktaka - og skipulegði það að
undangenginni arkitektasamkeppni
þannig að íbúar fengju að vera með í
ráðum. Einnig sagðist hún telja meiri-
hluta D-listans draga taum verktak-
anna en Sjálfstæðisfélagið mótmælti
því.
80% heimila gegn tillögunni
Af 620 heimilum í bænum voru
húsráðendur heima í um 70% og þar
af skrifuðu sig á listann fulltrúar um
80% heimila. Þess er vænst að skipu-
lagsyfirvöld Álftaness komi til móts
við óskir meirihluta íbúanna.
Þeir sem undirrituðu samninginn
vilja að efnt verði til arkitektasam-
keppni um skipulag svæðisins svo
hægt sé að fjalla um nokkra valkosti
á íbúaþingi. Þeir eru óánægðir með
tillögu Batterísins en hún er með
þjónustugötu umlukta þriggja hæða
húsum á báða vegu. Þá finnst þeim
tillagan ekki hæfa hugmyndum sín-
um um „sveit í bæ“. ■
Bæjarstjórn samþykkti sammng
Uppgreiðslugjald leyfilegt
Samkeppnisráð hefur úrskurðað að
bönkum og sparisjóðum sé heimilt að
krefjast uppgreiðslugjalds þegar lán-
takendur greiða upp lán sín. Það voru
Alþýðusamband Islands
(ASÍ) og Neytendasam-
tökin sem sendu ráðinu
beiðni 6. september
2004 um að úrskurða
í málinu. Samkvæmt ,
úrskurði Samkeppn-
isráðs er ekkert í lög-
um sem bannar að slíkra
gjalda sé krafist en eim-
fremur segir að slíkt verði
að koma skýrt fram í lánasamningi.
Að sögn Gylfa Ambjörnssonar,
framkvæmdastjóra ASÍ, eru menn
þar á bæ ákaflega ósáttir við niður-
stöðu Samkeppnisráðs.
„Við erum einfaldlega ennþá
ósammála niðurstöðu Samkeppnis-
stofnunar. Við fógnum reyndar þeim
hluta sem segir að ef rukka eigi upp-
greiðslugjald verði það að koma fram
í lánasamningi. Það er líka eðlilegt
að slíkt sé gert, enda
óeðlilegt að koma aft-
an að fólki með þessa
hluti.“
Að sögn Gylfa er
ekki búið að taka
ákvörðun um fram-
haldið en það verður
skoðað á næstunni.
Samkeppnisráð hefur úrskurðað
að bönkum og sparisjóðum sé heimilt
að krefjast uppgreiðslugjalds þegar
lántakendur greiða upp lán sín. Það
voru Alþýðusamband íslands (ASÍ)
og Neytendasamtökin sem sendu
ráðinu beiðni 6. september 2004 um
Efling
hækkar sjúkrabætur
Á aðalfundi Eflingar á dögunum
var samþykkt breyting á reglugerð
sjúkrasjóðs félagsins. Stærsta breyt-
ingin er að sögn Guðrúnar Óladóttur,
forstöðumanns sjúkrasjóðs Eflingar,
tekjutenging sjúkrabóta. Fyrir breyt-
ingu voru sjúkradagpeningar um
100.000 krónur á mánuði. Eftir breyt-
inguna fá einstaklingar sem verið
hafa greitt í sjóðinn í samfellt 12 mán-
uði 80% af fyrri tekjum sínum, en þó
að hámarki 200.000 krónur. Þeir sem
Árs fangelsi fyrir
kókaínsmygl
Maður á þrítugsaldri var í gær dæmd-
ur í 12 mánaða fangelsi fyrir kókaín-
smygl og fíkniefnaeign. Maðurinn
hafði reynt að smygla rúmlega 200
g af kókaíni í líkama sínum til lands-
ins í desember f fyrra. Við húsleit í
janúar á þessu ári fundust ennfrem-
ur tæp 2,5 g af amfetamíni í fórum
hans. Ákærði játaði brot sín fyrir
dómi og var við dóminn litið til greið-
legrar játningar ákærða. Hins vegar
var litið til þess að kókaín væri sterkt
og afar ávanabindandi fíkniefni, sem
ætlað væri til sölu og dreifingar hér á
landi. Maðurinn hafði áður hlotið tvo
fangelsisdóma. Auk 12 mánaða fang-
elsis var hann í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær dæmdur til að greiða rúm-
lega 350.000 króna sakarkostnað.
hafa greitt í sjóðinn í yfir fimm ár fá
hins vegar tekjur sínar óskertar, en
þó að hámarki 250.000.
Önnur stéttarfélög, m.a. á höfuð-
borgarsvæðinu hafa tekið upp svip-
aða reglu og það er ástæðan fyrir
breytinu Eflingar nú.
„Ástæðan fyrir því að við gerum
þetta er einfaldlega sú að við verðum
að vera samkeppnishæf á höfuðborg-
arsvæðinu," sagði Guðrún. ■
Borgar
14,7 milljónir
Gert að greiða 14,7 milljónir króna
Karlmaður á fimmtugsaldri var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur
í fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi og til að greiða 14,7 milljóna
króna sekt. Maðurinn, sem stundaði
sjálfstæðan atvinnurekstur á árun-
um 1998 og 1999, var dæmdur fyrir
að skila ekki virðisaukaskattskýrsl-
um og standa ekki skil á innheimtum
virðisaukaskatti upp á 3,2 milljónir
króna. Þá færði hann ekki bókhald
né gerði ársreikninga fyrir fyrirtæki
sitt. Ennfremur hafði hann vantal-
ið skattstofna sína um 10 milljónir
króna til að koma sér undan greiðslu
skatta og opinberra gjalda upp á rúm-
ar fjórar milljónir króna.
Ársreikninga- og Bókhaldsþjónusta
Rekstrar- og Fjármálaráðgjöf
k Rekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.L
kf *saio£a>
inn^ nf\r\A
1994 - 2004
að úrskurða í málinu. Samkvæmt
úrskurði Samkeppnisráðs er ekkert
í lögum sem bannar að slíkra gjalda
sé krafist en ennfremur segir að slíkt
verði að koma skýrt fram í lánasamn-
ingi.
Að sögn Gylfa Arnbjörnssonar,
framkvæmdastjóra ASÍ, eru menn
þar á bæ ákaflega ósáttir við niður-
stöðu Samkeppnisráðs.
„Við erum einfaldlega ennþá
ósammála niðurstöðu Samkeppnis-
stofnunar. Við fögnum reyndar þeim
hluta sem segir að ef rukka eigi upp-
greiðslugjald verði það að koma fram
í lánasamningi. Það er líka eðlilegt að
slíkt sé gert, enda óeðlilegt að koma
aftan að fólki með þessa hluti.“
Að sögn Gylfa er ekki búið að taka
ákvörðun um framhaldið en það verð-
ur skoðað á næstunni.
Fær engar bætur
Héraðsdómur Reykjaness sýknaði
í gær íslenska ríkið, Kópavogsbæ
og húsfélög fjölbýlishúss af tæplega
þriggja milljóna króna skaðabóta-
kröfu konu sem dottið hafði í hálku
við Heilsugæslustöðina í Kópavogi
veturinn 1999. Konan rann til í hálku
á göngusvölum sem tilheyra fasteign-
inni, en þar hafði hálkublettur mynd-
ast vegna leka frá vatnsrennu. Hún
ökklabrotnaði við fallið og hlaut í
framhaldi 20% varanlega örorku.
Stefnan byggðist á að líkamstjón
konunnar mætti rekja til stórfellds
gáleysis húseigenda og stórfellds van-
búnaðar á fasteigninni.
Dómurinn komst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að atvikið mætti
rekja til óhappatilviks og því vorú all-
ir stefndu sýknaðir.