blaðið - 10.06.2005, Side 10
tárinu
Haihí fnmin
Gísli Öm Garðarsson við æfingar hjá Cirkus Cirkör
Nýtft afl í íslensku
leikhúslífi
magnus@vbl.is
Leikarar úr leikhópnum Vesturport,
sem vakti heimsathygli með sér-
stakri útfærslu á Rómeó og Júlíu,
eru nú staddir í Svíþjóð þar sem þeir
eru í æfingabúðum á vegum Cirkus
Cirkör.
Nýstárleg uppsetning
„Eg kem heim í kvöld," segir Gísli
Örn Garðarsson leikari, sem stadd-
ur er í Stokkhólmi, en tilgangur
ferðarinnar var undirbúningur
fyrir nýstárlega uppsetningu hans
á leikritinu Woyzeck eftir Georg
Buchner. „Einmitt núna er Nína
a.m.k. ekki
séð þessa
hluti fram-
kvæmda
á íslandi
áður. Nína Dögg Filippus-
dóttir í teygjustökki
föstudagur, 10. júní 2005 I blaðið
Dögg að fara að henda sér niður úr
ellefu metra hæð í teygju," segir Gísli
og skellir upp úr þegar hún lætur
sig flakka með viðeigandi hrópum
og köllum. „Við erum að æfa okkur
í teygjustökki núna en Cirkus Cirkör
er sirkusskóli frá Svíþjóð - sá sami
og er með sýningu á Listahátíð í Borg-
arleikhúsinu um næstu helgi.“
íslenskir leikarar til London
„Við erum að læra ný og betri áhættu-
atriði til að nota í Woyzeck, sem
verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu
í september. Upphaflega erhugmynd-
in tilkomin þannig að menn frá Barb-
ican-leikhúsinu höfðu samband við
mig og báðu mig um að stýra fyrir sig
Woyzeck-uppfærslu. Hjólin snerust
svo þannig að Þorsteinn S. Ásmunds-
son og Guðjón Pedersen úr Borgar-
leikhúsinu sýndu henni svo mikinn
áhuga að það var ákveðið að hafa
fyrst sýningu á íslandi en síðan setj-
um við hana upp í Barbican í Lond-
on og flestir ef ekki allir leikararnir
verða íslenskir," segir Gísli en sumar-
ið hans fer nánast algerlega í vinnu
og undirbúning eftir gríðarlega anna-
saman vetur. „Maður á þá bara gott
frí inni einhvern tíma seinna,“ segir
hann og hlær en Vesturport er um
þessar mundir að ljúka sýningum á
Rambó VII í Þjóðleikhúsinu.
Kröftugri áhættuatriði en í
Rómeó og Júlíu
Hann segist sannfærður um að
Woyzeck-uppsetningin slái við
Rómeó og Júlíu í áhættuleik. „Það er
alveg á hreinu. Eins og þetta lítur út
Ar'AilUM
RAdSKÁRSVERÐLAU NA
BRIAN GRAZER
Myndin var tekin ó 6 dögum fyrir 25.000 dali
Ríkisstjórnin vildi ekki að þú sæir myndina
Hún var bönnuð í 23 ríkjum
Myndin halaði inn 600 milljónir dala ó heimsvísu
Hún er arðsamasta mynd kvikmyndasögunnar.
FRUMSYND I DAG^
núna þá erum við ekkert að fara að
slaka á í þeim efnum og við æfum al-
veg þangað til við frumsýnum," segir
Gísli og tekur fram að hann sé með
brennandi áhuga á loftfimleikum.
„Ég hef bara svo mikinn áhuga að
tengja þessi listform þannig að á með-
an maður er fastur í því þá hamrar
maður járnið meðan það er heitt.“
Nýjung á íslenskum leiksviðum
„íslenskir leikhúsgestir hafa örugg-
lega ferðast um allan heim og séð
þetta allt áður - við erum ekkert að
fmna upp hjólið í þessum efnum, eins
og margir hafa vilj að halda fram,“ seg-
ir Gísli hógvær. „Við leikararnir er-
um samt að gera hluti sem við höfum
ekki gert áður. Ég hef a.m.k. ekki séð
þessa hluti framkvæmda á íslandi áð-
ur - ekki þessar útfærslur sem við er-
um að læra núna sirkuslega séð. Það
er kannski þess vegna sem það er svo
gaman að takast á við loftfimleikana
því þeir eru manni svo framandi. Svo
getur vel verið að einhverjir hafi séð
þetta oft áður og finnist því ekkert
varið í þetta - en það kemur mér ekk-
ert við,“ bætir Gísli glaðbeittur við og
hlær og heldur aftur til æfinga. ■
I
a
i
i
a
a
a
a
a
a
+