blaðið

Ulloq

blaðið - 10.06.2005, Qupperneq 15

blaðið - 10.06.2005, Qupperneq 15
Hin fjölhæfa Bancroft „Það gerist meira í andliti hennar á tíu sekúndum en í andliti flestra kvenna á tíu árum,“ sagði leikstjór- inn Arthur Penn um Anne Banc- roft. Þessi hæfileikaríka og greinda leikkona lést fyrr í vikunni, 73 ára gömul. Banamein hennar var krabba- mein. Á hálfrar aldar ferli hlaut hún mikið lof fyrir leik sinn: Óskarsverð- laun, tvenn Tony-verðlaun, BAFTA- verðlun og Emmy-verðlaun. Leik- stjórinn Richard Attenborough lýsti henni sem „mestu leikkonu sinnar kynslóðar“. Sankaði að sér verðlaunum Hún fæddist í Bronx í verkamanna- fjölskyldu ítalskra innflytjenda árið 1931 og fór að leika á unga aldri. Hún lék í fyrstu kvikmynd sinni árið 1952 og á fimm árum lék hún í fimmtán kvikmyndum. Hún var afar óhamingjusöm á þessum tíma, í slæmu hjónabandi og sagðist sjálf hafa drukkið of mikið. Eftir skilnað við mann sinn tók hún að blómstra sem leikkona. Hún vakti mikla athygli fyrir leik sinn á sviði í Two for the Seesaw þar sem hún lék á móti Henry Fonda og fékk Tony- leiklistarverðlaunin fyrir leik sinn. Næsta ár lék hún Annie Sullivan, kennara hinnar ungu og blindu He- len Keller í The Miracle Worker árið 1962 og fékk Tony verðlaunin. Verkið var kvikmyndað árið eftir og hún hreppti Óskarinn fyrir leik sinn. Hún var tilnefnd á ný til Óskarsverð- launa árið 1964 fyrir myndina The Pumpkin Eater, hlaut verðlaun á Cannes fyrir leik sinn í myndinni og sömuleiðis BAFTA-verðlaunin. Ódauðleg sem frú Robinson Frægasta hlutverk hennar var sem frú Robinson í The Graduate þar sem hún táldró hinn unga Dustin Hoffman svo eftirminnilega að allt sem hún gerði á ferlinum eftir það féll í skuggann af frammistöðu henn- ar. Leikur hennar sem frú Robinson sýndi að hún hafði sterka tilfinningu fyrir gamanleik en sú hlið hennar fékk ekki nægilega oft að njóta sín á kvikmyndatj aldinu. Leikkonan og æringinn Hún giftist árið 1964 gamanleikar- anum og leikstjóranum Mel Brooks, sem var gyðingur. Þegar hann sagði móður sinni að hann ætlaði að kvæn- ast ítalskri-amerískri kaþólskri stúlku svaraði hún: „Komdu með hana í heimsókn. Ég verð í eldhús- inu - með höfuðið inni í ofninum." Fó- ir áttu von á því að hjónaband hinnar fjölhæfu leikkonu og áhyggjulausa æringjans myndi endast, jafnólík og þau voru, en hjónabandið þótti eitt hið hamingjuríkasta í bandaríska skemmtiiðnaðinum. Þau eignuðust einn son, Maximilian. GILDIR r • • I OLL ■TLUNARFLUG CELANDAIR PUNKTAÐU NIÐUR FERÐALAGIÐ Nú bjóðast fleiri tækifæri fyrir handhafa Vildarkorts VISA og lcelandair til þess að nota Vildarpunktana sína þegar ferðast er til útlanda. Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta sem 5.400 l<r. greiðslu upp í hvaða fargjald sem er, fyrir hvern sem er og hvenær sem er. Hægt er að nýta punktaúttektina í allt að eitt ár. Fáðu frekari upplýsingar á www.vildarklubbur.is og punktaðu ferðina niður um 5.400 kr. ICELANDAIR Vildarklúbbur

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.