blaðið - 14.06.2005, Qupperneq 2
innlent
þriðjudagur, 14. júní 2005 I blaðið
Tæknilega auðvelt að lesa tölvupóst starfsmanna
Njósnir yfirmanna bitna á
saklausum starfsmönnum
Ofgnótt ógnar
íslensku
samfélagi
Dæmi eru um að bandarísk stórfyr-
irtæki ráði til sín starfsmenn sem
eingöngu hafa þann starfa að lesa
tölvupóst annarra starfsmanna fyr-
irtækisins. Þetta er gert til að reyna
að tryggja að oft viðkvæmar trúnaðar-
upplýsingar fyrirtækisins leki ekki
út.
Samkvæmt þeim aðilum í tölvu-
geiranum, sem Blaðið ræddi við í
gær, hefur heyrst af nokkrum tilfell-
um hér á landi þar sem annar aðili
hjá fyrirtækinu les tölvupóst starfs-
manna. Enginn kannast hins vegar
við að sérstakir starfsmenn vinni við
slíkt hér á landi.
Ástæðan fyrir slíkum njósnum er
að fyrirtækin telja sig þurfa að veija
sinn hag, enda geta hugmyndir og
upplýsingar innan fyrirtækja ver-
ið gríðarlega verðmætar fyrir sam-
keppnisaðila.
Auðvelt að komast fram hjá
eftirliti
Þórður Sveinsson, lögfræðingur
hjá Persónuvernd, bendir á að slík-
ar njósnir bitni líklega oftast á þeim
sem saklausir eru.
„Þeir sem eru að reyna að leka upp-
lýsingum gera það líklega á annan
hátt. Þess vegna er yfirleitt verið að
skoða póst saklausra af því þeir sem
hafa eitthvað að fela finna einhveija
leið til að komast fram hjá slíku eftir-
liti,“ segir Þórður.
Hann segir að til dæmis sé hægt
að stofna nýtt svokallað „hotmail“-
netfang en vinnuveitandi getur ekki
með nokkru móti lesið tölvupóst sem
sendur er í gegnum það.
Alltaf óleyfilegt að lesa tölvu-
póst starfsmanna
Þórður segir skýrt að vinnuveit-
anda sé óheimilt að skoða tölvupóst
starfsmanna sinna. Þó geti það verið
nauðsynlegt í algerum undantekning-
artilfellum, til dæmis ef tölvuveira er
í tölvupósti og því sé nauðsynlegt að
skoða póstinn. Þá þurfi þó að reyna
að tryggja að viðkomandi starsfmað-
ur sé viðstaddur.
Starfsmenn í tölvugeiranum, sem
Blaðið ræddi við í gær, benda á að lík-
lega sé það helst þegar fyrirtæki eru
Hlýtt í höfuðborginni
Hitinn fór upp í 16 gráður í höfuðborg-
inni í gær, og var dagurinn þar með
sá heitasti í sumar. Það er vel þekkt
staðreynd að lundarfar íslensku þjóð-
arinnar sveiflast í takt við hitastigið
á landinu - og því ekki ólíklegt að
létt hafi verið yfir Reykvíkingum og
nágrönnum í gær.
Áfram er spáð hlýju veðri sunnan-
lands, þótt gera megi ráð fyrir að hita-
tölur verði eitthvað örlítið lægri.
PTTehf
1.590.000 kr. •
BBSS3B
Malarhöfða 2a //110 Reykjavík // sfml 570 9900 // www.flat.la
með stórar ráðagerðir á pijónunum
sem hætta á upplýsingaleka skapist,
og þá um leið að fyrirtæki telji sig knú-
in til að fylgjast með starfsmönnum
sínum. Þessir sömu aðilar segja að
alltaf sé einhver hætta á að tölvupóst-
ur sé lesinn því oft og tíðum sé það
tæknilega auðvelt. Þeir benda á að ef
starfsmenn vilja tryggja sig gagnvart
þessu sé einfaldast að nota ekki fyrir-
tækistölvuna og fyrirtækisnetfangið
til að senda persónuleg skeyti - held-
ur frekar bíða þar til heim er komið
og nota heimilistölvuna.
Samkeppni á markaði erlendra tímarita:
Office 1 enn langlægstir
Athygli vekur að verð á erlendum
tímaritum hefur nær ekkert lækkað
á almennum markaði þótt samkeppni
á þeim vettvangi hafi aukist verulega
fyrir tæpum tveimur mánuðum. Þá
hóf skrifstofuvörukeðjan Office 1 eig-
in innflutning tímarita og bauð vin-
sælustu erlendu tímaritin á verulega
hagstæðara verði en tíðkaðist.
„Ég get auðvitað ekki svarað fyrir
samkeppnina en þeir virðast af ein-
hveijum ástæðum ekki vilja keppa
við okkur í verði,“ segir Darri Rafns-
son, framkvæmdastjóri Office 1.
Jíannski menn haldi að þetta sé
bara einhver tímabundin tilraun hjá
okkur, sem þeir geta staðið af sér, en
það er alveg klárt að við erum komnir
til að vera á þessum markaði."
Hann segir viðtökur neytenda
hafa verið vonum framar en tekur
fram að þeir selji aðeins tímarit í eig-
in búðum en annist ekki innflutning
til heildsölu. „Við útilokum þó slíkt
ekki í framtíðinni. Næg er eftirspurn-
in.“ Að sinni verður því salan aðeins
í verslunum Office 1 með einni und-
antekningu. „Við bjóðum fólki að ger-
ast áskrifendur hjá okkur og þá detta
blöðin glóðvolg inn hjá því,“ segir
Darri, en áskriftin er gerð um netið.
Office 1 flytur inn og selur um
240 titla og fer þeim fjölgandi í viku
hverri. Darri segir að burðurinn í söl-
unni felist í vikublöðum með umfjöll-
unum um frægðarfólk. „En í þessum
titlafjölda kennir vitaskuld margra
grasa."
Um 60-70% íslendinga stunda
ekki næga hreyfingu og nýjustu
rannsóknir sýna að vandinn
snýr ekki síst að börnum og ung-
hngum. 53% íslenskra stúlkna
og 25% drengja hreyfa sig of
lítið
„Ef það á að nást árangur í
þessu þarf að marka nýja pól-
itíska stefnu og skapa skilyrði
fyrir breyttum lífsstfl og breytt-
um hugsunarhætti," segir Sig-
urbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags íslands. Búast má
við holskeflu heilsufarsvanda-
mála tengdum neysluvenjum
íslendinga á næstu árum, verði
ekki gripið til stórtækra opin-
berra aðgerða.
Nánari umfjöllun á síðu 10.
Tundurdufl
gert óvirkt
Duflið var geymt í fiskikassa um
borð í Sólborgu.
Tveir starfsmenn sprengjudeild-
ar Landhelgisgæslunnar héldu
til Reyðarfjarðar um helgina
til að gera tundurdufl óvirkt.
Það var skipstjórinn á Sólborgu
ÞH-270 sem hafði samband við
gæsluna á sunnudagsmorgun
og tilkynnti að tundurdufl hefði
komið upp með veiðarfærum
skipsins, en skipið var þá statt í
mynni Reyðarfjarðar. Frá þessu
er sagt á heimasíðu Landhelgis-
gæslunnar.
Starfsmenn gæslunnar héldu
þegar austur á land og voru
komnir til Reyðarfjarðar seinni-
partinn. Fóru þeir út í Sólborgu
og gerðu duflið óvirkt en í kjöl-
farið var það tekið í land, flutt
til Eskiflarðar og brennt.
o Heiðsklit 0 Lóttskýjað * Skýjað £ Alskýjaö ' '' Rigning, HOIsháttar '//' Rlgning Suld Snjókoma -:*ý Slydda '*j Snjóél skúr
Amsterdam 18 00 é 0 .
Barcelona 22
Berlín Chicago 22 25
Frankfurt 19
Hamborg 19
Helsinki 17
Kaupmannahöfn 17
London 19
Madrid 27 p
Mallorka 29
Montreal 21
New York Orlando 25 24 16Yk
Osló París 12 21
Stokkhólmur 16
Þórshöfn 9
Vfn 27
Algarve 23 Veðurhorfur i dag kl: 12.00
Dublin 15 Veðursíminn
Glasgow 11 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
/ /
6° - ;
8«0 P