blaðið - 14.06.2005, Síða 4

blaðið - 14.06.2005, Síða 4
þriðjudagur, 14. júní 2005 I blaðið í gær mómælti Náttúruvaktin fyrir utan Nordica-hótelið en þar fór fram heims- ráðstefna um áliðnað þar sem iðnaðar- ráðherra og fulltrúi Landsvirkjunar voru meðal fyrirlesara. farið undir iðnað og framkvæmdir," sagði Arna Ösp. Mengaðasta svæði Norður-Evr- ópu Aðspurð um væntingar og tilgang mótmælastöðunnar segir Arna hann vera að opna aftur fyrir umræðuna. „Við viljum vekja athygli fólks í öðrum löndum á þessu, við viljum stöðva fyrirætlaðar stóriðjufram- kvæmdir ríkisstjórnarinnar sem munu leiða til þess - ef allt gengur að óskum ríkisstjórnarinnar - að Faxaflóasvæðið verður mengaðasta Tjaldbúðir við Kárahnjúka Vilja stöðva virkjanabrjál- æði ríkisstjórnarinnar Við ætlum ekki að bíða eftir að fleiri álver verði reist og fleiri jökul- ár virkjað- ar heldur byrjum á Kárahnjúk- um. svæði Norð- ur-Evrópu áður en langt um líður. Við ætlum ekki að bíða eftir að fleiri álver verði reist og fleiri jökulár virkjaðarheld- ur byrjum á Kárahnjúk- um og viljum með því mót- mælastóriðju- stefnu ríkis- stjórnarinnar og eyðilegg- ingu á nátt- úru okkar fyrir græðgi erlendra stór- fyrirtækja." Hún segir engan veginn vera of seint í rassinn gripið þar sem 90% skaðans verður ekki fyrr en vatni verður hleypt í Hálslón árið 2007. Alþj óðlegum mótmælendabúðum verð- ur slegið upp í sumar á því svæði sem ætlað er að fari undir Hálslón. Tjald- búðirnar eru ætlaðar fólki sem vill koma á framfæri mótmælum sínum við virkjunarframkvæmdirnar og boðið verður upp á flölbreytta menningar- dagskrá, fræðslufundi og gönguferðir með leiðsögumönnum. Arna Ösp Magn- úsardóttir, sem ásamt fleirum kemur að tjaldbúðunum, segir að engin sam- tök standi að þeim heldur íslenskir og erlendir einstaklingar sem vilja koma mótmælum sínum á framfæri, þannig að hver komi með eigin hugmyndir. Hún segir hundruð manna hafa lýst yfir áhuga á að koma en erfitt sé að segja til um hversu margir muni koma þeg- ar upp er staðið. Inniheldur 1% vatnsleysanlegar trefjar Alheimsvandamál „Við lítum á þetta sem vandamál sem varðar alla íbúa jarðarinnar og þess vegna finnst okkur ekkert að því að kalla á hjálp erlendra náttúruverndarsinna sem líta líka á þetta sem sína baráttu. Margir þeir Bret- ar sem ætla að koma hingað þekkja hvað það er að missa alla náttúru landsins. Þar eru engin græn svæði því allt er Minni hagvöxtur L»nds(t»mleit>íl«. bf*mlng fri sam* f|óriungl irl ibur Menntaskólinn á Egilsstöðum stækkar Allir leggist á eitt gegn umferðarslysum Efla þarf löggæslu T[ JLuiUÍij 1F00 4F 00 3F01 2F02 1F03 4F 03 3F 04 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Soffia Lárusdóttir, forseti bæjarstjóm- ar Fljótsdalshéraðs, tóku í gær fyrstu skóflustunguna að nýrri kennslu- og stjómunarálmu við Menntaskólann á Egilsstöðum. Samið hefur verið við Tréiðjuna Eini um framkvæmd verksins og er verktakakostnaður um 190 milljónir króna. Stefnt er að því að byggingu verði að fullu lokið haustið 2006. Stærðhennar verð- ur um 1.067 fermetrar og verður heildarstærð skólahúsanna með þessari viðbót hátt á sjötta þús- und fermetra. Á neðri hæð verður fyrirlestra- salur með sætum fyrir 80 manns, fjarfundastofa og tölvustofa, auk tæknirýmis, geymsluherbergja o.fl. Á efri hæð verður stjómun- ar- og skrifstofurými, vinnuað- staða kennara og auk þess tvær almennar kennslustofur og her- bergi fyrir hópvinnu nemenda. loftkœling Verö frá 49.900 án vsk. Brýnt er að allir leggist á eitt til að koma í veg fyrir umferðarslys í sum- ar. Þetta kemur fram í ályktun sem Umferðarráð gerði á síðasta stjórnar- fundi sínum. Þar er minnt á að fram undan sé álagstími á vegum landsins og að reynslan sýni að flest alvarlegustu umferðarslysin verði á þjóðvegum ut- an þéttbýlis að sumarlagi. Til þess að breyting verði á þarf að mati Umferðarráðs að auka löggæslu á vegum og bæta vegmerkingar - áróð- ur og fræðsla þarf að vera mikil - en fyrst og fremst þarf hver einasti veg- farandi að vera meðvitaður um þá miklu ábjTgð sem fylgir þátttöku í umferðinni. Ökumaður, sem fer var- lega og eftir settum reglum, er ekki einungis að minnka áhættu sína og farþega sinna heldur allra annarra í umferðinni. Hagvöxtur reyndist 2,9% á fyrsta ársfjórðungi og er það minnsti hag- vöxtur sem mælst hefur á einum ársíjórðungi frá samdráttarárinu 2002. Þetta kom fram í Morgunkorni íslandsbanka í gær. Hagvöxturinn er lítill í samanburði við það sem spáð hefur verið fyrir árið í heild. Seðla- bankinn spáir til dæmis 6,6% hag- vexti yfir árið en Fjármálaráðuneytið spáir um 5,5% hagvexti. Dregið hefur úr hagvexti frá síð- asta fjórðungi þegar hann reyndist 4,2% en mestur var hann 7% á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Helstu breyting- ar eru að í stað tiltölulega kröftugs vaxtar í útflutningi í fyrra hefur nú tekið við samdráttur. Vaxandi ójafnvægi hagkerfisins kemur einna best fram í hinum mikla viðskiptahalla sem var á fyrsta árs- fjórðungi 14% af landsframleiðslu. Ammoníak hreinsað Lagarfoss kom til hafnar að Grundar- tanga í gærmorgun eftir að gat kom á gám, sem innihélt ammoníak, undan ströndum Skotlands. Eins og sjá má var viöbúnaður á svæðinu töluverður en tíu eiturefnakafarar voru til staðar, auk lögreglu og slökkviliðs. Minningarreitur vígður í Súðavík Reitur til minningar um þá sem fórust í snjóflóðinu í Súðavík ár- ið 1995 var vígður um helgina, og voru um 150 manns viðstadd- ir athöfnina. Það var séra Magn- ús Erlingsson sem vígði reitinn. Við athöfnina var lagður blóm- sveigur á reitinn til minningar um þá sem fórust. Það var Pétur Jónsson lands- lagsarkitekt sem útfærði reit- inn út frá hugmyndum heima- manna. Minningarreiturinn er hlaðinn bogi og innan hans eru sex slípaðir granítsteinar, einn fyrir hverja íjölskyldu sem missti ástvini í snjóflóðinu. Fyr- ir miðju er kross og minnisvarði með áletrun. Samdráttur í ibúðalánum Bankarnir gáfu út ibúðalán að andvirði 18 milljarða króna í maí, samkvæmt tölum frá Seðla- banka íslands, og hafa útlán þeirra verið að minnka síðustu þrjá mánuði. Á sama tíma gaf Ibúðalánasjóður út lán að and- virði 6,6 milljarða. Á þessu ári hafa bankarnir lánað að meðaltali 20 ma. kr. á mánuði sámanborið við 30 ma. kr. í lok síðasta árs. Heildar- fjöldi íbúðálána bankanna er nú kominn yfir 20.000 og er meðal- upphæð hvers láns 10,6 m. kr. Samkvæmt þessum tölum virðist enn vera töluvert um að fólk endurfjármagni eldri lán án þess að um íbúðaskipti sé að ræða. íbúðasjóður lánar u.þ.b. 1/3 af öllum íbúðalánum af markaði. Jón í Færeyjum Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, situr nú árlegan fund norrænna heil- brigðis-og félagsmálaráðherra, sem haldinn er í Þórshöfn í Fær- eyjum. Á dagskrá fundarins eru tvö meginmálefni til umræðu. í fyrra lagi starfsemi fijálsra félagasamtaka á sviði velferðar- mála á Norðurlöndum og frjálst framtak einstaklinga, félaga- samtaka og stofnana sem starf- andi eru á þessu sviði. í síðara lagi ræða ráðherrarnir framtíð samvinnu Norðurlandanna á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Auk þessa ræða norrænu ráð- herrarnir áfengisstefnu Norður- landanna, norræna viðbragðs- áætlun á sviði smitsjúkdóma og nánari samvinnu á þessu sviði, og gæði á heilbrigðissviði Norð- urlandanna. Grillveisla í Blóðbankanum í dag er alþjóðlegi blóðgjafadag- urinn haldinn hátíðlegur um allan heim en hann er haldinn á afmælisdegi Karls Landstein- er, sem uppgötvaði blóðflokka- kerfið um þar síðustu aldamót. í dag eru blóðgjafar heiðraðir fyr- ir óeigingjarnt starf með því að Blóðgjafafélagið grillar pylsur í garði Blóðbankans, auk þess sem Og Vodafone, aðalstyrkt- araðili bankans, stendur fyrir leikjum. Veislan stendur milli klukkan 11 og 15 í dag og vonar starfsfólk Blóðbankans að sem flestir sjái sér fært að mæta.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.