blaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 6
miðvikudagur, 29. júní 2005 I blaðið Horfa á sprengingu á Hawaii Níu íslendingar ætla að fylgjast með tilraun NASA „Deep lmpact“ geimfarinu skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída 12. janúar 2005. Níu manna hópur mun í næstu viku halda til eldfjaUaeyjunnar Hawaii, og er markmið ferðarinnar að horfa á risastóra sprengingu í geimnum. Nánar tiltekið á að fylgjast með því þegar manngert árekstrarfar verður látið rekast á halastjömu 4. júlí næst- komandi. Markmið alls þessa er að reyna að varpa ljósi á það úr hverju halastjömur em gerðar. Mætast á tíföldum hraða byssu- kúlu Verkefhið sem íslenski hópurinn ætl- ar að fylgjast með nefnist „Deep Imp- act“ upp á enskuna, sem þýða mætti sem „harður árekstur". Það er banda- ríska geimferðarstofnunin NASA sem stendur fyrir verkefninu, sem gengur út á að geimfar er sent í næsta ná- grenni við halastjömuna 9P/Tempel 1. Farið skiptist í tvo hluta, móðurfar og árekstrarfar. Það síðarnefnda er losað frá móðurfarinu og sent í veg fyrir halastjömuna með það að mark- miði að búa til árekstur. Áætlaður hraði milli árekstrarfars- ins og halastjömunar er 10,2 km/s, sem er meira en tífaldur hraði byssu- kúlu. Við áreksturinn losnar gríð- arleg orka eða álíka mikil og þegar fimm tonn af dínamíti em sprengd. Gert er ráð fyrir að gígur á stærð við Laugardalsvöll gæti myndast á hala- stjörnunni við herlegheitin. Eins og að henda pflu frá Hafnarfirði og hitta skotmark í Kringlunni Ferlið allt er mjög erfitt. Árekstrar- farinu verður sleppt í 864.000 km fjarlægð frá halastjömunni en á að hitta svæði á henni sem er um sex km í þvermál. Þessu er líkt við það að henda pílu frá Hafnarfírði og hitta A4 blað í Kringlunni. Það er því ljóst að ekkert má fara úrskeiðis til að allt fari eftir áætlunum. Nokkrir íslenskir framhaldsskóla- nemar hafa síðastliðinn vetur tekið þátt í undirbúningi verkefnisins fyrir tilstilli stjörnufræðinga við Hawaii- háskóla. Eins og áður sagði munu níu íslendingar, kennarar og nemendur, leggja leið sína til Hawaii til að fylgj- ast með árekstrinum og taka þátt í frekari rannsóknum. Svikamyllur á fullum snúningi í sumar Á sumrin lifnar yfir alls kyns svika- starfsemi, sem beinist að því að svíkja út fé af fyrirtækjum. Er talið að þeir sem stunda þessa iðju geri út á sumarafleysingafólk, sem auðveldara er að villa um fyrir en reynslumeiri starfs- mönnum. Samtök verslun- ar og þjónustu (SVÞ) beina því af þessu tilefni til fyrir- tækja að vera sérstaklega á varðbergi um þetta leyti árs. Að sögn SVÞ eru svikararnir afar nýjungagjarnir og því erfitt að varastþá.Hafa samtökinfeng- ið fjölmargar ábendingar ogbeiðnirum aðstoð þeg- ar fyrirtæki hafa lent í klóm svika- fyrirtækja af ýmsu tagi. Algengast er að kvartað sé undan skrán- ingarfyrir- tækinu Eur- opean City Guide. Starfsemi European City Guide ' snýst um að fá fyrirtæki til að samþykkjaskrán- ingu í gagnabanka, að því er virðist án endurgjalds, en í smáu letri sem fylgir skilmálunum kemur fram að POUSHING WAX Trcáihn witH High MolcciUi - liticne Shmt tróttctloljfe W f. M mith UV lahibiton tx\t% ttnouuh months ot tjjjfllÍiL_ Wrathcnao jnd WuihingÍJjEtKtKKKKKKttÉL greiða þurfi miklar fúlgur fyrir skrán- inguna. Reikningar frá fyrirtæk- inu, sem fylgja í kjölfarið, koma því óþægilega á óvart. Ef reikningar eru ekki greiddir er skuldurum hótað hörðum innheimtuað- gerðum og ærnum viðbót- arkostnaði. SVÞ ráðleggur fyrirtækjum að greiða ekki slíka reikninga nema þau telji sig sannanlega hafa efnt til skuldanna. Fréttir hafa borist frá Svíþjóð að European City Guide og þeirra líkar séu farin að beita nýjum aðferðum við svikastarfsem- ina. Þannig er algengt að hringt sé frá fyrirtæki, sem kveðst hafa fengið beiðni um skráningu léns með sama eða svipuðu nafhi og fóm- arlambsfyrir- tækið, nema hvað ending- in sé önnur, gjarnan .com í stað .is. Til þess að gæta „sanngirni" er því boðið að ganga inn í lénsskráning- una, sem kostar margfalt meira en slík lénsskráning kostar eftir eðlilegum leiðum. Nanari upplysinqar á www.coke.is Ejami verturá eftirfarandistöðun næstu daga: I dag frnjðMkudag); Glæábær khidan 14 kbgfrniðMkucfeg): fjöröirHafharfirðik)ukkan15 Amagun(ftmmtudagj. Garöatorg klukkan 14 Ámongunjfimmtudag): Hamrábotg kkjkkan15 Kolmunna- veiðar ganga vel Svipað magn af kolmunna hefur veiðst það sem af er árinu og á sama tíma í fyrra. íslensku skipin eru nú búin að veiða um 213.000 tonn, en til samanburðar veiddist 221.000 tonn á fyrstu sex mánuðum síðasta árs. Aflahæstu skipin það sem af er ár- inu eru Ingunn AK, með um 21.000 tonn, Jón Kjartansson SU með tæp 19.000 tonn, og svo Börkur NK og Hólmaborg SU með rúm 18.000 tonn hvort skip. 13 milljónir til hjartaskurð- lækninga í gær afhenti minningarsjóður Þorbjörns Árnasonar Landspítala- háskólasjúkrahúsi 13,1 milljón króna að gjöf til kaupa á nauðsynleg- um búnaði sem notaður verður í að græða gervihjarta í sjúklinga. Fénu var safnað með því að senda bréf til allra karlmanna á aldrinum 35-70 ára, þar sem þeim var boðið að greiða andvirði eins sígarettupakka á mán- uði í þrjú ár. Þorbjörn lést sjálfur úr hjartasjúkdómi árið 2003, 55 ára að aldri. Nauðgun á föstudagskvöld: Beftíð eftir kæru Lögreglan hefur yfirheyrt manninn sem tilkynnt var að hefði aðfaranótt laugardags nauðgað konu í heima- húsi í miðbæ Reykjavíkur. Ekki verð- ur aðhafst frekar í málinu fyrr en kæra konunnar berst til lögreglunn- ar en hún lá ekki fyrir í gær. Samkvæmt ársskýrslu lögreglu- stjórans í Reykjavík hefur kærum vegna nauðgana fækkað milli 2002 og 2003 og einnig fækkaði kærum í fyrra. Flugfarþegar fá aukin réttindi „Þetta getur þýtt meiri útgjöld fyrir flugfélögin ef flugi hjá þeim seinkar oft. Svo er skylda þeirra við að upp- lýsa flugfarþega um rétt þeirra auk- in,“ segir Heimir Már Pétursson, upp- lýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, um nýja reglugerð sem hefur að geyma samevrópskar reglur um skaðabæt- ur og aðstoð handa flugfarþegum. „Fyrst og fremst breytir þetta því að bætur til flugfarþega hækka, auk þess sem fastar er kveðið á með seink- anir fluga,“ segir Heimir. Þægindi í fyrirrúmi Helstu breytingarnar eru að nú nær reglugerðin til alls farþegaflugs, þ.m.t. leiguflugs, og þar með svokall- aðra pakkaferða. Þá er flugfélögum gert erfiðara um vik með að neita farþegum um far en þau þurfa að ná samningum við farþega um að gefa eftir sæti sín gegn greiðslu áður en nokkrum er vísað frá. Auk þess þurfa ferðaskrifstofur og flugfélög að greiða allt að 600 evrur í skaðabætur ef far- þega er vísað frá. Einnig er kveðið á um að lágmarka eigi óþægindi flug- farþega þegar ferðum er aflýst eða þeim neitað um far, með því að koma þeim fyrir ó hótelum og greiða fyrir þá matarkostnað og kostnað við að láta vita af sér. Seltjarnarnes afruglað Seltjamamesbær hefur gefið út „Myndlykil“. Ekki er þó um að ræða hefðbundinn myndlykil eins og flest- ir þekkja þá, þ.e. til að afrugla læstar sjónvarpsútsendingar, heldur má í myndlykli Seltjamarness finna um- fjöllun um úrval listaverka í eigu bæjarins. í lyklinum fjallar dr. Ásdís Ólafsdóttir um 30 verk en textinn er byggður á pistlum sem birst hafa á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar. Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfé- lagsins. Bærinn á um 100 listaverk en eins og áður segir er aðeins fjall- að um 30 þeirra í lyklinum, þar sem mat forráðamanna sveitarfélagsins var að umfang safnsins væri slíkt að ekki væri hægt að gera öllum verkun- um skil í einni atrennu. Clint kemur Skipulags- og byggingaráð Hafnar- flarðar ákvað í gær að gefa grænt ljós ó að kvikmvndin „Flags of our Fathers“, sem Óskarsverðlaunahaf- inn Clint Eastwood mun leikstýra, verði kvikmynduð á og við Arnarfell í Krýsuvík. Fyrir fundinn höfðu full- trúar Fornleifaverndar ríkisins, Um- hverfisstofnunar og Landgræðslunn- ar, lýst því yfir að þeir væru jákvæðir gagnvart verkefninu en Umhverfis- vernd Hafnarfjarðar og stjórn Reykja- nesfólkvangs voru mótfallin því. Góð umgengni skilyrði Lagði ráðið áherslu á að gerður yrði samningur milli Hafnarfjarðarbæjar og umsækjenda þar sem m.a. væri kveðið á um eftirlitsmann, leigu af landinu og fleira. Þá skal tryggt að gengið verði frá svæðinu í sama, og helst betra, ástandi en tekið var við því, allur frágangur og uppgræðsla verði á þann máta sem Hafnarfjarð- arbær, Umhverfisstofnun og Land- græðslan - sem umsjónaraðili með uppgræðslu á svæðinu - hafa sett skilyrði um, svo landgæði verði jafn- góð eða betri en áður.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.