blaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 14
miðvikudagur, 29. maí 2005 I blaðið
Skýrari, mýkri og
kyssilegri varir
- Gloss ríkjandi yfir sumartímann
halldora@vbl.is
Þar sem ferskleikinn er í hávegum
hafður á sumrin og náttúruleg förðun
ríkjandi er ekki vitlaust að vera með
fallegt gloss á vörunum. Það gerir
andlitið frísklegra yfírlitum. Þó svo
að hefðbundni varaliturinn sé ætíð
við lýði er sumarið sá tími sem styðj-
ast skal í auknum mæli við gloss, en
það hentar betur þegar dagurinn er
lengri og bjartara yfir öllu. Létt förð-
un, s.s. meik sem ekki er áberandi,
sólarpúður og maskari, er einkenn-
andi fyrir sumarið en gloss setur svo
punktinn yfir i-ið. Fallegt gloss gerir
varirnar skýrari, mýkri og kyssilegri,
auk þess sem brosið verður meira
sjarmerandi.
Það er eins með glossið og aðrar
vörur í förðun; nóg er um fallega liti
og flest helstu merkin hafa upp á að
bjóða ógrynni gerða. Litirnir eru sum-
arlegir, eins og vera ber, en helstu
litimir em bleikur, rauður, appels-
ínugulur, ferskjulitaður, gylltur, ljós
og fjólublár, auk þess sem margir
aðrir em í boði. Hver og ein þarf að
finna sér sinn tón en konur em mis-
jafnar eins og þær era margar og því
mismunandi hvað hver þarf. Varim-
ar eru ýmist dökkar eða ljósar og því
getur verið gott að fá ráð hjá fórðun-
arfræðingi um hvaða litur henti. Að
vera með gott og klæðilegt gloss gefur
kvenleikanum byr undir báða vængi
og eykur glæsileika konunnar - sé
hún með rétta litinn.
Eins og áður sagði er margt í boði
og ótal liti hægt að fá, en flest snyrti-
vörafyrirtækin bjóða ýmsar gerðir af
glossum, sterku sem léttu, og í mis-
munandi formum.
gæöahúsgögn
Sóley mælir með...
Förðunarmeistarinn
Sóley Ástudóttir
gefur 10 góð ráð
LA MER andlitskrem.
Þetta er besta krem sem
ég hef notað og er mjög
vinsælt hjá fræga fólkinu.
Það kostar sitt en endist
mjög lengi og er þess
virði. Fæst í Lyf og heilsu
í Kringlunni. Annars eru'
húðgerðir mismunandi
og mikilvægt að prufa sig
áfram þar til rétta kremið
er fundiö.
2
Góð augnkrem.
Gott er að eiga krem sem
slétta úr hrukkum og
línum í kringum augun og
fyllir upp í opnar svitahol-
ur. Sniðugt að bera á sig
undirfarðann, sérstak-
lega fyrir sléttari húð.
3
Mac Blot Powder.
Að mínu mati frábært
andlitspúður. Það dregur
úr fitu og glans í andlitinu
en skilur ekki eftir sig
neina áferð. Hægt er að
púðra sig eins oft og þarf
en klessist ekki... Tilvalið
fyrir feita húð, t-svæði
og húð sem á það til að
glansa mjög fljótt.
4
Mac Fiber rich
maskari.
Eins og gerviaugnhár í
maskaraformi - litlir fíbrar
sem leggjast á augnhárin.
Augnhárin harðna ekki
sem gerir það að verkum
að hægt er að fara marg-
ar umferðir án þess að
hárin klessist og maskar-
inn hrynji. Tilvalið fyrir þá
sem nota linsur...
5
Krem-kinnalitir
tilvaldir í sumar.
Þeirgera „lookið" náttúru-
legra. Notið bara finguma
og dúmpið létt yfir kinn-
svæðið. Fæst í flestöllum
snyrtivönjverslunum, í
alls kyns stærðum og
gerðum.
7
Gerviaugnhár.
Það er æðislegt að lífga
upp á augun með gervi-
augnhárum. Til eru stök,
hálf, þunn, þykk o.s.frv.
Passa bara upp á að
gera það sem náttúruleg-
ast. Muna að nota gott
augnháralím og mæli ég
með lími sem heitir DUO.
9
Augnskuggar.
Ég nota eingöngu augn-
skugga frá MAC vegna
gæða. Þeir eru auðveldir
í notkun og endast. Muna
líka að velja réttan lit sem
tengist augnlit, hár- og
húðlit - og þér. Sanserað-
ur á það til að ýta undir
hrukkur, þó ekki alltaf, og
mattur fer ekki vel á þurr
augnlok.
6
Gott brúnkukrem.
Því miður hef ég ekki
kynnst neinu góðu, en
nóg er væntanlega til. Of
mikil Ijósabekkjanotkun er
ekki málið og sömuleiðis
of mikið brúnkukrem.
Muna að skrúbba húðina
áður en brúnkukrem er
borið á og já - VANDA
SIG. Það er ekki flott að
vera flekkóttur.
8
Góður farði.
Ég hef notað farða frá
Clinique, Origins og Mac,
en annars er mikið til af
góðum förðum. Mikilvægt
er að velja réttan lit, en
ekki of dökkan og ekki of
Ijósan. Prufa skal farðann
á kjálkanum og sjá flæðið
milli háls og andlits. Hafa
litinn sem líkastan sjálfum
húðlitnum og nota frekar
sólarpúður til að lífga
upp á.
Litur í augabrúnir.
Ég prufaði skrúfblýant frá
Kanebo um daginn og
hann var alveg rosalega
góður. Ég mæli með hon-
um. Muna að þegar fyllt
er I augabrúnir þarf að
bursta og jafna út litinn
fyrir náttúrulegri áferð.
Baejarhrauni 12
opið vírka daga fra kl. 10-18 og lau. 11-14
simi 565 1234
Að geta málað sig:
Æfingin skapar meistarann - Æfa sig fyrir framan spegilinn
-Nota pensla- Byija varlega og setja lítið í einu - bæta frekar á.