blaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 10
blaöiða Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Siguröur G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar: Bæjariind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Símbréf á f réttadeild: 510-3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@ vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Ábyrgð útgefenda Síðastliðið sumar var undirlagt af umræðu um fjölmiðla, eðli þeirra, hlutverk í lýðræðisþjóðfélagi, eignarhald þeirra og áhrif eigenda á þá. Þá heyrðist það sjónarmið víða að litlu eða engu skipti hver ætti fjöl- miðla, svo framarlega sem ritstjómarlegt sjálfstæði væri virt. Komu þau sjónarmið meðal annars fram að æskilegt væri að binda í lög sjálf- stæði ritstjóma gagnvart útgefendum sínum. Það mál var tekið út af dagskrá að sinni með óvenjulegum hætti því forseti lýðveldisins synjaði fjölmiðlalögunum og í framhaldinu felldi þingið þau úr gildi. Sá gerningur var svo rifjaður upp á dögunum í viku- ritinu Séð og heyrt, sem upplýsti um náið vinfengi forsetafjölskyldunn- ar við Baugsfjölskylduna, en hún hafði óneitanlega mestra hagsmuna að gæta þegar fyrrnefnd fjölmiðlalög vom til umfjöllunar. Þetta sumarið virðast fjölmiðlar vera ámóta vinsælt umræðuefni og í fyrra, en af annarri ástæðu við fyrstu sýn. Nýjasti prentmiðill Baugs, vikuritið Hér og nú, sætir hörðu ámæli fyrir efnistök sín, sem mörgum þykja fara yfir mörk hins siðlega, og ijúfa friðhelgi einkalífsins mjög freklega. Af umræðu á netinu, könnunum í sjónvarpi og innhringitímum út- varpsstöðva, má glögglega ráða að mikil og almenn gremja ríkir í garð Hér og nú og systurblaðs þess - DV. Sérstaklega hefur þessi reiði beinst að Eiríki Jónssyni, ritstjóra Hér og nú, og háværar raddir verið uppi um að honum verði vikið frá störfum. Án þess að Blaðið vilji taka vöm Eiríks í þessu máli er hins vegar ástæða til þess að efast um að nokkur verði nokkru bættari ef hann yrði gerður að blóraböggli í þessum efn- um. Ábyrgðin liggur ekki síst á herðum stjórnenda Baugsmiðlanna, þeirra Skarphéðins Bergs Steinarssonar stjómarformanns og Gunnars Smára Egilssonar framkvæmdastjóra, sem hafa markað útgáfustefnu fyrir- tækisins. Það voru þeir sem ákváðu að ráðast í útgáfu nýs vikurits, og það voru þeir sem ákváðu að það skyldi vera með þessu sniði: Að fara alla leið og vel það, í umfjöllun um einstaklinga og þá sem þeim standa næst. Þess vegna gildir einu hver er verkstjóri á Hér og nú, þeir menn verða ávallt til starfans fundnir sem geta búið til það blað sem eigendurnir og fulltrúar þeirra vilja. Það er því hræsni ein þegar Gunnar Smári neitar að svara spurningum fréttamanna um málið á þeirri forsendu að það sé ritstjómarlegs eðlis og komi sér því ekki við. Hann getur ekki látið eins og hann hafi hleypt af stokkunum vikulegu fræðiriti almenns eðlis og síðan hafi einhver ritstjóri sóðað það út. Helstu rökin fyrir fjölmiðlalögunum á síðasta ári vom þau að það gæti reynst lýðræðislegri umræðu hættulegt ef of margir fjölmiðlar söfn- uðust á eina hendi, en jafnffamt hin að varhugavert gæti verið ef risa- fyrirtæki héldu úti fjölmiðlum, sem þá kynnu ffemur að láta stjómast af hagsmunum eigendanna en trúnaði við almenning. Hér skal ekki fullyrt að fjölmiðlalögin afnumdu hefðu afstýrt efnis- tökum á borð við þau sem Hér og nú er gagnrýnt fyrir þessi dægrin, en það verður að teljast ósennilegt að miðill, sem einungis starfaði í skjóli lesenda sinna, hefði farið fram með þessum hætti. Eða að sjálfstæður útgefandi reyndi að láta sem málið kæmi sér hreint ekki við þegar rit- stjórinn fylgir þeirri uppskrift sem fyrir hann var lögð. Sjálfsagt styttist í stærsta prófsteininn á flölmiðla Baugs, en viðbrögð stjómenda þeirra í þessu máli em ekki trúverðug. Fjölmiðlar em af sumum kallaðir fjórða valdið en því má ekki gleyma að öllum völdum verður að fylgja ábyrgð. Undan því geta stjórnendur Baugsmiðlanna ekki skorast, hvorki Gunnar Smári Egilsson né Skarphéðinn Berg Stein- arsson, því Hér og Nú - rétt eins og DV - er eins og það er af því að þeir ákváðu að nákvæmlega þannig skyldi það vera. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá. ■ ■ 1 I I Iteikninga-herðatrí Verktakar Teiknlstofur Verkfræðlngar Httnnuðlr áscÉöa ArmúU 17, lOB Heykjavih slml, 533 1334 íax, 5EB 0499 ..það sem fagmaðurinn notar! WWW.ISOI.IS miðvikudagur, 29. júní 2005 I blaðið Sjálfsvíg í velmeguninni Sjálfsvíg er sorglegur endir á margþættu og flóknu ferli, þar sem saman tvinnast félags- legir, menn- ingarlegir, fjöl- skyldulegir og geðrænir þætt- ir. Vegur þunglyndi þar mest. „Mörg- um hefur og sjúkleiki þessi því miður þröngt til að stytta eymdarstundir sínar í þessu lífi, bæði á íslandi og annars staðar," skrifaði Sveinn Páls- son um þunglyndi í Rit þess konung- lega íslenska Lærdóms - Listafélags árið 1788. Tíðni þunglyndis hérlendis er á svipuðu róli og annars staðar á Vesturlöndum en tíðni sjálfsvíga er hér í neðri kantinum miðað við önnur Norðurlönd. Aukning sjálfsvíga hér á landi hefur verið mjög greinileg í gegnum alla síðustu öld, en einungis hj á körlum. Sj álfsvíg kvenna hafa ver- ið mun lægri en hjá körlum, í kring- um 5/100.000 konur allan þennan tíma. Þaðhefursérstaklegavaldiðáhyggj- um, hér sem annars staðar, hve sjálfs- víg hafa aukist meðal ungra karl- manna. Sú þróun hefur orðið til þess að komið var á fót verkefninu „Þjóð gegn þunglyndi", sem er starfrækt á vegum Landlæknisembættisins. Markmið verkefnisins er að draga úr tíðni sjálfsvíga með því að auka með- vitund almennings og fagfólks á þung- lyndi, orsökum þess og meðferðar- möguleikum. Leiðin að markmiðinu er aukin fræðsla og þjálfun heilbrigð- isstétta í heilsugæslu, fyrir fagfólk í félagsþjónustu fyrir unga sem aldna, í skólum, kirkju og löggæslu, svo eitt- hvað sé til talið. Fræðsla til almenn- ings hefur verið eftir margvíslegum leiðum, meðal annars í fjölmiðlum, með auglýsingum, 1 veggspjöldum, póstkortum, neyðarkortum fyrir 1717-línuna, og fundum fyrir þá sem vinna með áhættuhópa og með að- standendum. Verkefnið fór af stað fyrir tæpum þremur árum og er nú komin tölu- verð reynsla á það. Uppgjöri á tíðni sjálfsvíga undanfarinna ára lauk nýlega. í ljós kom að síðustu þrjú ár hefur orðið marktæk fækkun sjálfs- víga og þá sérstaklega meðal ungra karlmanna. Þar sem sveiflur á milli ára eru töluverðar þá voru borin sam- an þriggja ára meðaltöl, allt aftur til ársins 1975. Frá árunum 2002-2004 (10,1/100.000 íbúa) hefur heildartíðni aðeins verið lægri tvisvar á þessu tímabili, 1975-1977 (9,5/100.000) og 1993-1995 (9,8/100.000). Þegar skoð- aðar eru tíðnitölur sjálfsvíga ungra karla, 24ra ára og yngri, kemur í ljós að fjöldi sjálfsvíga í þessum hópi hef- ur ekki verið lægri í tæp 30 ár. Árin 2002-2004 var tíðnin 12,8/100.00 manna í þessum aldursflokki, árin þrjú þar á undan 29,6/100.000. Þess ber þó að geta að það tímabil hef- ur hæstu tíðni frá því að skráning hófst. Þurr upptalning talna segir lítið um þann harmleik sem sjálfsvíg eru. Þjáningin er ekki bara þess sem er að ákveða að stíga skrefið inn í dauð- ann, hvort heldur aðdragandinn er langur eða skammur. Þeir sem eftir lifa, ættingjar, vinir, vinnu- eða skóla- félagar, sitja eftir með sára sorg, sekt- arkennd, reiði og endalausar „hvað ef“ spurningar. Dauði sem kemur á þennan hátt er því ekki einkamál þess sem sviptir sig lífi. Og samfélags- legu áhrifin eru ekki lítil, sérstaklega þegar það er ungt fólk sem fellur frá. Niðurstöðurnar hér að ofan eru mjög ánægjulegar. Þó ber að taka þeim með mikilli gát. Bæði er það að alltaf hafa verið verulegar sveiflur í tíðni sjálfsvíga milli ára í okkar litla samfélagi, og eins eru orsakir sjálfs- víga margar og flóknar og því erfitt að segja fyrir um með vissu hvaða þættir, félagslegir, heilsufarslegir, efnahagslegir eða jafnvel veðurfars- legir, geta orðið til þess að hækka tíðni eða lækka. Hvort verkefnið „Þjóð gegn þunglyndi" hafi haft hér einhver áhrif er erfitt um að segja; þó er það að sjálfsögðu von okkar, sem að verkefninu standa, að til einhvers hafi verið unnið. Niðurstöðurnar eru hvatning fyr- ir okkur að halda áfram á svipaðri braut, ekki síst vegna reynslu ann- arra forvarnarhópa um að fylgja verði jákvæðum árangri eftir í lang- an tíma, eigi hann að endast. Nú er verið að ganga frá skipulagningu tveggja nýrra námskeiða, sem miða að þv£ annars vegar að færa þjálfun og fræðslu í hendur þeirra sem starfa meira í grasrótinni, og hins vegar að auka færni fagfólks um land allt í að beita markvissri samtalstækni í sam- skiptum við þunglynda. Högni Óskarsson er geðlæknir og formaður verkefnisins „Þjóð gegn þunglyndi". Alcoa undirbýr mat á umhverfisáhrifum Frestur vegna draga að matsáætl- un er veittur til 11. júlí Seint og um síðir er Alcoa nú að ráðast í mat á um- hverfisáhrifum vegna verk- smiðju sinnar á Reyðarfirði. Fyrirtækið er með því að bregðast við dómi Hæstaréttar frá 9. júní sl. þar sem fyrri ákvarðanir um að undanþiggja verksmiðjuna mati voru dæmdar ólögmætar. Á þeim lögbrotum bera íslensk stjómvöld höf- uðábyrgð með Umhverfisráðuneytið í broddi fylkingar. Nú bregst Alcoa réttilega við dómi Hæstaréttar en á sama tíma neita íslensk stjómvöld að Hjörleifur Guttorms- son náttúrufræð- ingur. horfast í augu við eigin afglöp og aft- urkalla starfsleyfi og framkvæmda- leyfi sem veitt hafa verið og eiga sér enga lagastoð. I eldri lögum um mat á umhverfis- áhrifum (nr. 106/2000) segir í 16. gr.: „Óheimilt er að gefa út leyfi fyrir matsskyldri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir fyrr en úrskurður um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir og skal leyfisveitandi taka tillit til hans...“ Hliðstæð ákvæði eru í breyttum lög- um sem Alþingi afgreiddi sl. vor og taka gildi 1. október næst- komandi. Þar segir: „Óheimilt er að gefa út leyfi til framkvæmdar skv. 5. eða 6. gr. fyrr en áht Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrif- um liggur fyrir eða ákvörðun um að framkvæmd skv. 6. gr. sé ekki mats- S ALCOA torfærutrukkursf ik. HPI Savagefjarstýrður bensínbíll. Fáanlegurmeðþremur vélastærðum 3,5,4,1 og 4,6cc. Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is skyld.“ Samkvæmt þessu eru engin gild lejdi fyrir hendi til áframhaldandi framkvæmda við álver Alcoa á Reyð- arfirði. Föstudaginn 24. júní sl. auglýsti Alcoa Fjarðarál fyrsta skref að mats- ferli fyrirtækisins, sem er kynning á drögum að tillögu að matsáætlun fyrir álverið. Drögin eru kynnt á vef- síðunni http://www.alcoa is. Eru sam- tök og almenningur hvött til að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við þá sem vinna að matinu fyrir Alcoa fram til 11. júlí næstkom- andi, m. a. á netfangið haukur@hönn- un.is. í framhaldi af þessu mun Alcoa væntanlega leggja fyrir Skipulags- stofnun tillögu sína að matsáætlun og ber framkvæmdaaðila að kynna hana „umsagnaraðilum og almenningi". Mikilvægt er hins vegar að þeir sem ætla að láta sig matsferlið varða komi með áherslur sínar og ábendingar við auglýst drög sem fyrst, eða fyrir 11. júlí nk. Lagaramminn um mat á umhverf- isáhrifum er að taka stakkaskiptum, þar eð breytt lög um mat taka gildi 1. október næstkomandi. Matsáætl- anir, sem fram eru settar fyrir þann tíma, hljóta þó að fá meðhöndlun samkvæmt lögunum frá 2000, sem gilda fram á haust, en í ákvæði til bráðabirgða í breyttum lögum (17. gr.) segir: „Þegar matsskýrsla hefur verið send Skipulagsstofnun fyrir gildistöku laga þessara er heimilt að ljúka mati á umhverfisáhrifum sam- kvæmt þeirri málsmeðferð sem gildir samkvæmt eldri lögum". Sama á síð- an að gilda um leyfisveitingar. Allt sem snertir framkvæmd við ál- verið getur að sjálfsögðu verið undir í því matsferli sem nú er hafið. Athygl- in mun m.a. beinast að mengunar- vörnum álversins, ekki síst kröfunni um að auk þurrhreinsibúnaðar verði komið upp vothreinsibúnaði til að draga úr losun mengandi efna í and- rúmsloft. Öryggi hráefnisflutninga og afurða til og frá álverinu hljóta einnig að koma til skoðunar vegna mengunarhættu, svo og ýmsir félags- legir þættir er lúta að starfsrækslu þess. www.eldhorn.is/hjorleifur/

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.