blaðið - 29.06.2005, Síða 30

blaðið - 29.06.2005, Síða 30
30 hver & hví miðvikudagur, 29. júní 2005 I blaðið Er mannskepnan í eðli sínu þjófótt og óheiðarleg? Að undanfomu hefur nokkuð verið fjallað um ólánsama manneskju sem árum saman stal fjármunum ffá skjólstæðingum sínum á heim- ih fyrir geðsjúka hér í Reykjavík. Ólánsöm - af því að útilokað er að ímynda sér að önnur en ákaflega ólánsöm manneskja grípi til slíkra örþrifaráða til að framfleyta sér og útvega nokkra þúsund kalla auka- lega á mánuði. Að stela ffá geð- sjúku fólki, sem lifir á strípuðum örorkubótum, er náttúrulega ótrú- lega djúpt sokkið. Eitthvað hlýt- ur að hafa búið að baki - einhver ástæða - einhver ólánsemi sem kom þessu af stað. Eða hvað? í tengslum við þessa umræðu hef- ur verið kallað eftir því af hveiju Reykjavíkurborg hafi ekki með sér- stakt eftirlit sem hefði komið upp um svona hluti. Með öðrum orðum, spurt er - af hverju treysti Reykja- víkurborg starfsmönnum sínum? Af hveiju var ekki gert ráð fyrir að þeir gætu verið óheiðarlegir? Þetta er fullgild spuming - það þarf ekki lengi að horfa í kringum sig á vinnustöðum landsins til að verða vitni að ákaflega gagnrýni- verðu athæfi. Menn skjótast að- eins ffá í vinnutímanum - hringja eitt símtal til útlanda því það er svo dýrt að gera það heima - kippa einu umslagi úr bunkanum til að senda persónulegt bréf - taka of langan kaffitíma. Þetta eru ekki stór atriði - en þó er þama alltaf um einhvers konar brot að ræða. Heyrst hefur að kassadömur í Bónus og víða verði ítrekað var- ar við að einstaklingar komi með fyrirtækjakort og kaupi út á þau vömr sem hljóta að vera til einka- nota. Dæmi um slíkt er kona sem kom á kassa í Bónus með fjögur stór brauð, tvo bakka af eggjum og nokkra lítra af mjólk. Þetta, ásamt hálfum lítra af kóki og sígarettu- pakka, var borgað fyrir með korti frá Reykjavíkurborg - korti sem greinilega tilheyrði mötuneyti á vegum borgarinnar. Kannski átti að baka súkkulaðikökur með sígó, og hafa kók með kaffinu - kannski ekki. Glæpurinn er ekki stór - en glæpur engu að síður. Ef viðkom- andi manneskja hefði gert þetta í hvert skipti sem hún fór í Bónus fyrir mötuneytið - í til dæmis tíu ár - er glæpurinn þá orðinn alvar- legur, eða var hann það frá upp- hafi? Einstaklingar era ótrúlega dug- legir við að afsaka slíka hegðun sína. Það er glæpur þegar einstak- fingur stelur lakkríspoka í sjopp- unni ó Bakkafirði. Það er hins veg- ar ekki glæpur þegar starfsmaður bílaumboðs í Reykjavík kippir heim með sér pappírspakka - eða hvað? Mánneskjan er kannski bara óheiðarleg og þjófótt í eðli sínu. Kannski er það vegna stjómunar- legrar óbyrgðar sem þarf að greiða stj ómendum millj ónir króna á mán- uði - kannski ekki. Er mögulegt að nauðsynlegt sé að greiða stjómend- um þessa upphæð svo þeir freistist ekki til að misnota aðstöðu sína? Ef svo er - ætti þá ekki bara að hækka laun allra til að koma í veg fyrir óheiðarleika? Eða kannski ekki - kannski myndi fólk samt halda ófram að kippa með pappír, kóki og sígó - þótt það væri með milljón á mán- uði! Kannski þarf einfaldlega að koma upp eftirlitskerfi með öllum - því allir era óheiðarlegir og þjóf- óttir í eðli sínu. Vonandi þó ekki. Lindsay fellur í yfirlið Það leið yfir Lindsay Lohan í heilsu- ræktarstöð í Los Angeles nýlega og hef- ur það ýtt enn frekar undir sögusagnir um að hún sé jafnvel með anorex- íu. Lindsay hefur alltaf neit- að þeim orðrómi og segist borða mjög mikið, en á myndum má sjá að hún hefur grennst mikið und- anfarið. Stjaman unga var í hjólreiðatíma þeg- ar henni fór að líða illa en hún komst af hjólinu áður en það leið yfir hana. Vitni sagði: „AU- ir fengu áfall. Lindsay hreyfði sig ekki og virt- ist vera meðvitundar- laus.“ Þjálfari Lindsay og annað starfsfólk náði að vekja hana og það virðist ekki sem henni hafi orðið meint af. Jennifer faðmar alla Jennifer Aniston virðist ekki eiga í vanda með að sýna tilfinningar á almannafæri og hafa náðst nokkrar myndir af henni þar sem hún knús- ar leikarann Vince Vaughn með bros ó vör. Einnig hafa náðst mynd- ir af þeim kyssast á vangann og þar sem Jennifer heldur utan um Vince. Hann og Jennifer leika saman í mynd- inn The Break Up og hafa því oft sést saman nýlega. Talsmaður Jennifer neitar því að þau Vince eigi í ástar- sambandi. „Það er enginn rómantísk- ur áhugi þeirra á milli. Vince er góð- ur vinur Jennifer. Ég held að blöðin séu svo áköf að sjá Jennifer í ástar- sambandi að þau misskilja aðstæður auðveldlega. Ég veit ekki hvort það séu myndir af þeim að faðmast, en Jennifer faðmar alla stanslaust." Það virðist vera sannleikanum sam- kvæmt þar sem heimildir herma að nýlega hafi aðdóandi Jennifer komið og beðið hana um faðmlag vegna 18 ára afinælis síns. Jennifer bað hana strax að koma nær og faðmaði hana vel og lengi. Liz daðrar við Hugh Grant Unnusta Hughs Grant, Jemima Khan, varð öskureið í veislu sem Elton John hélt nýlega. Ástæða reið- innar var sífellt daður Liz Hurley við Grant, auk þess sem hún saug fingur hans af áfergju fyrir framan veislu- gesti. Allar helstu stjömumar vora saman komnar í veislunni og störðu þær undrandi á athæfi Liz en Hugh og Liz áttu í ástarsambandi fyrir nokkram áram. Unnusti Liz, Arun Nayer, var nálægur en lét þetta ólíkt Jemimu sem rauk út með blóts- yrðum. Einn gestur lét hafa eftir sér: „Jemima var bólreið. Við trúðum því varla þegar Liz greip höndina á Hugh og hóf að sjúga hana ögrandi. Jafnvel þótt þetta væri bara grín þá var augljóst hve illa Hugh leið. Hegðun Liz kom öllum á óvart.“ ekki Tacos m.kjúkling, fajitas, salsa kál og sýröum rjóma. Inniheldur aðeins 3% fitu afepi 533 1033 Hvað segja stjörnumar Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Yfirmenn vilja að þú færir hugmyndir þín- ar upp á nýtt stig. Þú ert að prufa eitthvað nýtt en hafðu engar áhyggjur. Þú ert fær í flestan sjó. V Ef þú ert að velta því fyrir þér hvernig þú skulir haga þér í hópi, ekki vera fjarrænn og kaldhæðinn. Vertu samúðarfullur í staðinn. Um- hyggja þín mun snerta einhvern í hjartastað. Fiskar (19. febrúar-20. mars) $ Þú ert eitthvað annars hugar þessa dag- ana. Við því er lítið að gera. Þú verður bara að bíða þar til hugurinn er rólegur. V Vertu viðbúinn því að dreyma mikið og margt næstu nætur. Hvort sem þú trúir á drauma eða ekki þá er verið að senda þér skila- boð. Reyndu að raða úr þeim. Hrútur (21. mars-19. apríl) $ Þú ert að færast á nýjar slóðir í dag en ekki hafa áhyggjur. Rökhyggja þín mun vekja athygli yfirmanns og áhugi þinn mun skína í gegn. V Ef það er einhver sérstakur I lífi þinu þá er kannski kominn tími á alvarlegar samræður um hvert þið stefnið. Astvinur þinn bíður eftir að þú hefjir máls á þessu. ©Naut (20. apríl-20. mai) ©Tvíburar (21. maí-21. júni) $ Hópsamvinnan gengur ekki vel í vinnunni. Það nær enginn að skyra sitt mál og allir eru að verða pirraðir. Þú skalt taka stjórnina. V Hvað svo sem þú ert að hugsa í dag skaltu deila því með öðrum. Ekki vera feiminn. Þau eru opin fyrir hugmyndum þínum og eru sjálf að hugsa svipað. ©Krabbi (22. júní-22. júií) $ Það þarf að vinna hratt og vel að ákveðnu verkefni. Vandaðu þig og ekki gera nein mistök. Hafðu yfirmennina glaða. Astin ríkir í lífi þínu i dag. Njóttu þess en mundu að ekki er allt sem sýníst. ®Ljón (23. júll- 22. ágúst) $ I dag gætirðu lært nýja hluti. Spyrðu spurn- inga, jafnvel þótt þú sért viss um að vita svarið. Ao horfa á aora vinna getur verið lærdómsríkt. V Þú munt ekki fá það sem þú vildir i dag en þú verður samt sem áður himinlifandi. Þessi skrýtni fyndni dagur mun leiða þig að einhverju ógleymanlegu. Meyja (23. ágúst-22. september) ©Vog (23. september-23. október) $ Nýleg málamiðlun milli þin og vinnufélaga er ekki það sem hún sýnist. Mundu það næst og lærðu af þessu. 1F Útkoma dagsins í dag veltur algjörlega á þér. Ef þér líður frábærlega þá verður þetta frá- bær dagur. Ef þú ert eitthvað leiður þá verður þetta frekar leiðinlegur dagur. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ I dag ættirðu að byrja í ræktinni. Spyrðu vinnufélagana um góða líkamsræktarstöð og at- hugaðu hvort stéttarféiagið gefur þér afslátt. V Þú ert í skapi fyrir nýja byrjun, sérstaklega ef hún inniheldur rómantik. Kannski er kominn tími á að bjóða einhverjum á stefnumót. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Þú hefur fundið fyrir óvenju miklum áhuga i vinnunni. Hvert verkefni er leikur einn og þú finnur að sköpunargleði þin nýtur sin í botn. V Það er aldeilis gaman i dag. Bamið innra með þér er að briótast út og imyndunarafl þitt virkar sem aldrei fyrr. ©Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Jafnvel þótt þú sért öruggur í vinnunni þá skaltu ekki eyða um efni fram. Það er ekki tím- inn til að fjárfesta núna. V Þótt einhver sýni þér áhuga þá þýðir það ekki að hann/hún sé nógu góð/ur fyrir þig. Vertu frjáls aðeins lengur. Þolinmæði þín verður verð- launuð. $ Það eru ákveðnir vinnufélagar sem koma alltaf og kjafta þegar þú hefur meira en nóg að gera. Vertu með heyrnartæki til að þeir komi sið- ur. V Þaö er gott að standa með sjálfum sér og það gerir þú svo sannarlega i daa. Hunsaðu þa sem reyna að gera lítið úr þér. Þu veist hver þú ert. $ Þér finnst sem fjölskylda þín geti ekki aðstoðaÖ þig við ferilinn en oft getur hún verið uppspretfa nýrra hugmynda. Hugsaðu til þeirra þegar þig vantar stöougleika, jákvæðni og von. V Þú ert áhyggjufullur í dag en það er ekk- ert til að hafa áhyggjur af, er það? Það er algjör óþarfi að hafa áhyggjur af engu.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.