blaðið - 04.07.2005, Side 13
blaðið ! mánúdagur, 4. júlí 2005
Hestamennskan í blóð borin
- Flosi Ólafsson hefur lengi verið
viðriðinn hestamennskuna
halldora@vbl.is
Leikarinn Flosi Ólafsson er búsett-
ur Borgarfirðinum, nánar tiltekið að
Bergi í Reykholti, en þar hefur hann
búið ásamt Lilju, konu sinni, síðustu
fimmtán árin. Þar eru þau hjónin
með bæ og hesthús, en hestamennsk-
an hefur verið stór partur af lífi Flosa
í gegnum árin.
„Þetta hefur eiginlega verið líf mitt
og yndi síðan bara áður en ég kom
undir held ég, og mér alveg í blóð bor-
ið,“ segir Flosi, en hann hefur alla tíð
verið mikill hestamaður. Hann bjó í
Reykjavík í ein 60 ár en þá var hann
löngum með hesta og var ötull við að
fara í ijalla- og óbyggðaferðir í góðum
hópi hestafólks.
Flosi segir það afar notalegt að
vera með hesta - það sé ekkert betra
en að fara út í hesthús á morgnana og
sjá hestana fagna komu sinni, en hest-
húsið er rétt við bæinn þeirra. „Við
erum með 15 hesta og þeir þekkja
okkur Lilju voðalega vel. Það er ynd-
islegt að sjá þá taka á móti okkur og
heyra kumrið í þeim þegar við kom-
um, en þeir láta vel að okkur, rétt
eins og við að þeim. Ég hef voðalega
gaman af því, sérstaklega þegar búið
er að gefa þeim, en þá líður þeim svo
vel og hægt er að merkja velsældina
í augum þeirra. Þau glansa, eru skær
og falleg, en það breytist nefnilega ef
þeim líður ekki nógu vel.“
Alveg bannað að skúffa greyið
hestana
Þeir sem eiga hesthús og hesta þurfa
svo sannarlega að huga vel að dýrun-
um, en það er mikið atriði ef vel á að
takast og halda hestunum í góðu lagi.
Þetta verður að svokölluðum parti
af vinnu og lífsstíl fólks, en enginn
er hestaeigandinn ef ekki er tími og
rúm til þess að sinna hestunum. Flosi
segir mikilvægt að halda reglu á hlut-
unum þar sem hestamir viti hvenær
von er á eigendunum. Þeim finnist
gott að vera sinnt reglulega og að alls
ekki megi líða of langt á milli. „Það
má auðvitað ekki skúffa þá, greyin,
það verður að vera ágætis rennsli
á heimsóknum til þeirra - annars
verða þeir bara hundfúlir. Þeir vita
hvenær von er á manni.“
Flosi tekur þó fram að þar sem
hann sé að eldast sé krafturinn ekki
eins mikill og að hann hafi minni þol
í að sinna hestum sínum. Þar komi
Lilja kona hans sterk til sögunnar, en
hún hefur mikið sinnt hestum þeirra
hjóna síðustu misserin. „Ég er svona
allur að linast í hestamennskunni,
maður er svona að gamlast og ég er
ekki eins harður eins og ég hef alla tíð
verið. Reyndar fara hestarnir stund-
um til Ólafs sonar okkar, en hann er
með ein 60-70 hross héma í nágrenn-
inu - á Breiðabólsstað í Reykholtsdal.
Hann er mjög duglegur í þessu og með
hestaferðir á sumrin. Við höfum nú
verið í dálitlu samkrulli í hestunum
en nú er hann orðinn mun duglegri.
Svo ætlar þetta greinilega að ganga
áffam næstu ættliði, en bamabarn
mitt og alnafni, Flosi Ólafsson, er á
fullu í þessu og var einmitt að keppa
núna liðna helgi á Fjórðungsmótinu
á Kaldármelnum. Honum gekk afar
vel, en hann er eins og pabbi sinn -
mjög mikill hestamaður.“
Mánaðarhvíld á Reykjalundi
Flosi hyggst á næstunni taka sér
hvíld og fara á Reykjalund í mónuð í
endurhæfingu sér til heilsubótar. Að-
spurður segist hann þó ekki efast um
að hann komi fílefldur og galvaskur
til baka og haldi á ný í hestaferðir ým-
is konar upp til fjalla. „Jó já, ég verð
hinn hressasti geri ég ráð fyrir, og þó
verður haldið af stað með hestana,
þ.e.a.s. ef þeir drepa mig ekki með
kraftlyftingatækjum þama á Reykja-
lundi. Annars væri nú kannski rétt-
ast að taka bara kindabyssu og skjóta
mann eins og mig sem kominn er á
þennan aldur,“ segir Flosi og skell-
ir upp úr, en greinilegt er að
leikarinn góðkunni hefur engu
gleymt og er ekki íjarri góðu
gamni þegar skopskynið
er annars vegar.
Hann segist þó
ekki hafa áhyggj-
ur af búinu og
hestunum
meðan á
dvöl hans á
Reykjalundi
stendur, en
Lilja hefur
: . ..
í gegnum tíðina haft yf-
irumsjón með öllu þeg-
ar hann hefur
veriðfjarver-
andi. „Hún
Lilja mín
s i n n i r
hestun-
um á
m e ð an
ég er í
burtu, en
það hefur
hún alltaf
gert þegar ég er víðs fjarri. Sér í lagi
núna upp á síðkastið þegar ég er ekki
eins duglegur við þetta og ég var áð-
ur,“ segir hann að lokum og endar
■ ___________“________
samtalið á því að hann þurfi nú að
bregða sér af bæ til þess að horfa á
bamabamið keppa á hestamóti.
■n
o URUAL FLATRA SJ0NUARPA
■M
AQEINS KR. 16.666
Á MÁNUÐI í 12 MÁNUBÞ
VAXTALAUST!
EÐA KR. 1 33.030
STAÐGREITT
FULLT VERÐ kr. 249.990
IB Al ITE D ÍÍIÍTPPJ PLASMé SJÚNVARP með 852x480 upplausn (VGA, SVGA, XGA), Progressive Soan, 2x1 Qw Nicam stereó hljóðkerfi
WM *” ■ ■ mmUM 1*1 ■l'I með 2 hátölurum, 2 Scart tengjum, DVI og PC tölvutengi, mynd I Mynd 12 Tunerer) textavarpi og fjarstýringu.
PHILIPS
42PF994G
42’ 100 Hz PLASMA SJÚNVARP með móttakara, 852x480
upplausn, 3000:1skerpu, Digital Motion Compensation og
□igital Crystal Clear Ijósskynjara og Antireflex System, 50w
Nicam stereó hljóðkerfi með 2 innbyggðum hátölurum, 2 Scart
tengi, textavarpi 2 myndum á skjá og fjarstýringu.
JVC
PD42B50
42' PLASMA BREIÐTJALDSSJÚNVARP með D.I.S.T
myndtækni, Super DigiPure og Digital Comb Filter, 852x480
punkta upplausn með 3000:1 skerpu, styður HDTV, fullkomnar
litstýringar, textavarp, tvlskiptur skjé möguleiki (mynd og
mynd/textavarp), mynd I mynd (1 móttakari), 20w RMS,
BBE Nicam stereó hljóðkerfi, 3D Sound með Active Hyper
Bass, 3 Scart, Component og SVHS tengi, RCA og
heynartólstengi, T-V Link og veggfesting.
TILBOÐ 0249.990 mmm TILBOÐ ©349.990
I FULLTVERÐkr. 299.990 I FULLTVERÐkr. 449.990 I
* Vaxtalausar VISA eða EURO raðgreiðslur. Við bætist lántöku- og færslugjald.
Siúnuarpsmiðstöðin
RAFTÆKJAVERSLUN . SÍÐUMÚLA 2 . SÍMI 568 9090 • www.sm.is
UMBOÐSMENN UM IBND »LH ► REYKJAVlKJJRSVÆÐlÐ Hagkaup, Smáralind. VESTURLANO: Hljómsýn, Akranesi. Kaupfélag BorgHinga, Borgamesi Blómsturvellir, Hellissandi. VESTFIR0IR: Kaupfélag SteingrfmsfjarðBT, Drangsnesi. NORDURLAND: KF Steingrfmsljaröar.
Hólmavlk. Kf V-Húnvetninga, Hvammstanga. KF Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Ljósgjafinn, Akureyrí. Oryggi, Húsavlk. AUSTURLAND: KF HéraDsbúa, Egilsstöðum. Verskmin Vlk, Neskaupsstað. Kauptún, Vopnafiröi. KF Héraðsbúa, Seyðisfirðí. Tumbræður,
SeyðisWi. Sparkaup, Féskrúðsfirði. Martblvan, Hðfn Homafirði. SUÐURLAND: Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi. Rés, Poriakshötn. Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Reteindatækni, KeDavlk. Ratlagnevinnustola Sigurðar Ingvarssonar, Garði. Ralmætti, Hafnarfirði.