blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 21
blaðið I mánudagurn4. júlí 2005
Af gefnu tilefni
- Jóns Ásgeirs og Jónatans
Jónina Benediktsdóttir
Jón Ásgeir Jóhannesson ræðir ura
hefndarhug minn og „óskiljanleg-
ar“ fjárkröfur á hend-
ur föður sínum í bréfi
sínu til fjijlmiðla. f
tilefni af þessum raka-
lausu fullyrðingum og
framgöngu Jónatans
Þórmundssonar, pró-
fessors í refsirétti við
Háskóla íslands, er ég
knúin til að segja eftir-
farandi:
Jón Ásgeir sýndi sam-
bandi okkar Jóhannes-
ar, föður hans, aldrei
neinn áhuga, hvorki þá
né eftir að því lauk. Nú
þegar þeir feðgar hafa
verið ákærðir ásamt
nánustu samstarfs-
mönnum sínum, verð-
ur Jóni Ásgeiri þetta
samband okkar Jóhann-
esar hugleikið. Hann
telur sér greinilega til
málsbóta í núverandi
vandræðum sínum að
gera mér hærra undir
höfði en nokkru sinni
fyrr með því að veitast
að mér í bréfi til sjálfs ríkislögreglu-
stjóra og láta að því liggja að efna-
hagsbrotadeild og skattrannsókna-
stjóri séu í þrjú ár að eltast við
eitthvað, sem sé frá mér komið.
Sé Jón Ásgeir sannfærður um sak-
leysi sitt og samstarfsmanna sinna,
ætti hann ekki að þurfa að fegra
hlut sinn gagnvart lögreglunni með
því að gera mér upp hefndarhug eða
væna mig um uppgjör á sambúð með
föður hans með því að siga
á Baugsliðið sérfræðingum
í efnahagsbrotum. Þótt það
geti tekið á að elda fyrir Jó-
hannes í Bónus, á það ekk-
ert skylt við margra ára
skjalafals, bókhaldsbrot,
hluthafabrot, tollabrot og
skattalagabrot.
Ég hef vissulega talið
mér skylt að leiðrétta op-
inberlega uppspuna og
ósannindi Jóns Ásgeirs og
Tryggva Jónssonar endur-
skoðanda, sem báðir sæta
nú ákæru, allar götur síðan
innrásir voru gerðar í Að-
föng, Gaum, Kaupþing Lúx-
emborg og SMS í Færeyj-
um. Ég geri það eins lengi
og ég tel nauðsynlegt og
þeir gefa tilefni til þess. En
best er samt að því ljúki.
Nú er nóg komið. Með
hliðsjón af völdum og um-
svifum Bausgmanna er
allri þjóðinni hættulegt að
leitast ekki við að bæta
úr þeim skaða sem nú er
orðinn. Þá er ég ekki að ræða um
milljarða tap Baugs vegna Arcadia
heldur allt hitt sem hinir ákærðu
hafa sölsað undir sig á öllum svið-
um íslensks samfélags, fyrirtæki og
stofnanir.
Þessir menn líta svo á að allt sem
þeir girnast, sé til sölu. Frægt er
þegar þeir reyndu að múta Davíð
Oddssyni, þáverandi forsætisráð-
herra. í fyrra gekk forseti íslands
erinda þeirra í fjölmiðlamálinu. Nú
tekur prófessor í refsirétti að sér fyr-
ir þá að gera lítið úr störfum ríkis-
lögreglustjóra og ákæurvaldsins. Er
Hæstiréttur næstur?
Jóni Ásgeiri er vel ljóst að fáir hafa
sinnt föður hans meira og betur en
Jón Gerald Sullenberger auk þess
sem Jón Gerald snerist í kringum
Jón Ásgeir sjálfan, vini hans úr Orca-
hópnum, Kaupþingi, íslandsbanka,
Heklu, Vífilfelli, Hagkaupum,
SMS í Færeyjum, Bónus, 10-11,
sendiráðum og Samkeppnisstofnun
og Qölda „vinkvenna“ þessara
manna í áratug!
Hvers eiga starfsmenn, vinir
og fjölskyldur þessara manna að
gjalda? Hvers vegna tekur prófessor
í refsirétti við Háskóla íslands sér
fyrir hendur að
ráðast á fólk sem
ekkert hefur til
saka unnið? Um
heim allan er rætt
um að veita þeim
aukna vernd sem
aðstoða yfirvöld
við að upplýsa um
hvers kyns afbrot
í viðskipta- og
fj ármálaheiminum.
Hér veitist prófessor
í refsirétti hins
vegar að slíku fólki
með persónuníði,
um leið og hann
gerir lítið úr
störfum lögreglu og
ákæruvalds, þegar
unnið er að rannsókn
fjárglæfra. Undir
hvaða paragrafa
flokkast spilling
af þessum toga?
Er hún samboðin
Háskóla íslands?
Er ekki siðanefnd
starfandi innan hans?
Eflaust má á stundum finna rödd
kvenþjóðarinnar í strenglausum
boga Gunnars á Hlíðarenda.
Baugsmálið snýst ekki um „launa
skal ég þér kinnhestinn", en krydd
af þeim toga gerir það vissulega að
meira íjölmiðlaefni.
Ákærur á hendur Baugsliðinu
verða ekki marklausar við þá
staðreynd, sem lýst var í fréttum
sjónvarps ríkisins, að Jón Ásgeir
reyndi að sænga með konu Jóns
Geralds - hvað sem Jónatan
Þórmundsson, prófessor í refsirétti
segir. Réttlæti kvensemi þeirra
Baugsfeðga, efnahagsbrot þeirra að
mati prófessorsins, snýst refisréttur
um annað en áður var ætlað af mér
og líklega mörgum öðrum.
“Sé Jón Ásgeir sannfærður um sakleysi sitt og samstarfs-
manna sinna, ætti hann ekki að þurfa að fegra hlut sinn
gagnvart lögreglunni með því að gera mér upp hefndarhug
eða væna mig um uppgjör á sambúð með föður hans með
því að siga á Baugsliðið sérfræðingum í efnahagsbrotum.”
II----------1
Þessir
menn líta
svo á að
allt sem
þeir girn-
ast, sé
til sölu.
Frægt er
þegarþeir
reyndu að
múta Davíð
Oddssyni,
þáverandi
forsætisráð-
herra.
B
ai sawt
_ — —-n
\
MEfRA
__ _____— rr
—ssö-
. \
w
w
w
w
w
w
m
nýtt brot, ^vtG
•••
m
\ C, 'í'ls'W
| -'.xV' .
Hl>v
or
W
W
w
w
w
w
w
w
_J\
■.ar
\
\
•••
íRín hat«>**ík
h