blaðið - 04.07.2005, Page 22
mánudagur, 4. júlí 2005 I blaðið
Argentína vann
HM í U-20
Argentínumenn urðu á laugardag
heimsmeistarar U-20 ára karlalands-
liða í fótbolta. Argentínumenn sigr-
uðu Nígeríumenn 2-1 í úrslitaleik
á mótinu sem fram fór í Hollandi.
Lionel Messi hinn bráðefnilegi leik-
maður Barcelona skoraði bæði mörk
Argentínu í úrslitaleiknum og komu
þau bæði af vítapunktinum. Messi
skoraði sigurmarkið 15 mínútum fyr-
ir leikslok og varð hann markahæst-
ur í keppninni með 6 mörk. Brasilía
endaði í þriðja sæti á mótinu en liðið
sigraði lið Marokkó 2-1 í leik um það
sæti. ■
Zendentil
Liverpool
Hollenski vinstri kantmaðurinn Bou-
dewjin Zenden mun í dag skrifa undir
samning hjá Liverpool. Zenden sem
er 28 ára gamall stóðst læknisskoðun
og náði samkomulagi við Liverpool á
laugardaginn en hann kemur frítt
frá Middlesbrough þar sem samn-
ingur hans var runninn út. Zenden
sem er fyrrum leikmaður Chelsea og
Barcelona á 54 landsleiki að baki fyr-
ir Hollendinga og hefur hann skorað
7 mörk í þeim. ■
16.sæti
í golfinu
ísland endaði í 16.sæti á Evrópumóti
áhugamanna í golfi. ísland tapaði 4
-1 fyrir Finnum í leik um lö.sætið á
Hillside vellinum í gær. ísland hafn-
aði í síðasta sæti í B - riðli mótsins,
tapaði öllum viðureignum sínum í
holukeppninni. Heiðar Davíð Braga-
son úr golfklúbbnum Kili í Mosfells-
bæ var sá eini sem vann sinn leik í
holukeppninni gegn Finnum. Eng-
lendingar sigruðu mótið en þeir unnu
Þjóðveija 6 -1 í úrslitaleik. Þetta var
níundi sigur Englendinga á mótinu
frá upphafi. ■
Roma má
ekki kaupa
ítalska fótboltaliðinu Roma hefur ver-
ið bannað að kaupa nýja leikmenn í
eitt ár af FIFA. Þessu greindi FIFA
frá á fóstudag en úrskurðurinn er
vegna umdeildra félagaskipta vam-
armannsins Philippe Mexes frá Aux-
erre til Roma í fyrrasumar. Er Mex-
es fór til Roma sögðu forráðamenn
franska liðsins Auxerre að leikmaður-
inn hafi svikið samning sinn án síns
leyfis og að Roma hafi hvatt hann til
þess. Roma hefur þegar áfrýjað úr-
skurði FIFA en óvíst er hvort Samuel
Kuffour, Shabandi Nonda og Rodrigo
Taddei fái leikheimild hjá liðinu þar
sem liðið er nýbúið að semja við þá.
Federer Wimbledon meistari þriðja árið í röð
Roger Federer varð Wimbledon
meistari í tennis í þriðja skiptið í röð
þegar hann lagði Andy Roddick í úr-
slitaleik mótsins í gær. Svisslending-
urinn vann þægilegan sigur, tók öll
þijú settin 6-2, 7-6 og 6-4 og er þar
með kominn á stall með ekki ómerk-
ari mönnum en Bjöm Borg og Pete
Sampras sem hafa unnið Wimbledon
að minnsta kosti þrisvar í röð. Borg
vann mótið reyndar fimm sinnum í
röð árin 1976-1980 og Sampras vann
mótið árin 1993 til 1995 og 1997 til
2000.
Federer átti frábæran leik og vann
þarna sinn 21. sigur í röð í úrslitaleik
en hann lagðist í jörðina og brast í grát
áður en hann lyfti þessum glæsilega
bikar skælbrosandi. „Ég var alveg
upp á mitt besta, þetta var auðveld-
ara en í annað skiptið" sagði Federer
eftir leikinn. „Það vom miklar vænt-
ingar bundnar við mig, Sampras var
einn af mínum uppáhalds tennisleik-
urum sem og Borg, að vera í þessum
hópi er mjög sérstakt. Ég vona að
þessu ljúki ekki eftir þijá!“
Roddick játaði sig sigraðan og átti
einn draum heitastan: „Ég er alveg
í skapi fyrir bjór núna“ sagði hann
í gær. „Ég lagði mig allan fram og
vildi svo sannarlega vinna en það er
ástæða fyrir því að þessi gaur er best-
ur. Hann er virkilega heilsteyptur
leikmaður. Ég þarf kannski að kýla
hann eða eitthvað, maður spyr sig“.
Williams veldið heldur áfram
Venus Williams varð svo Wimbledon
meistari í kvennaflokki. Þetta var í
þriðja sinn sem hún vinnur mótið en
hún vann glæsilegan sigur á Lindsay
Davenport í lengsta úrslitaleik í
kvennaflokki í sögu Wimbledon móts-
ins. Banda-
ríkjahnát-
an vann
settin 4-6 7-
6 (7-4) og 9-
7 en Daven-
port fékk
tækifæri til
að vinna
leikinnítví-
gang en það
tókst ekki
ogeftirtvær
k 1 u k k u -
stundir og
45 mínút-
um betur
var sigur-
inn Williams sem vann Mariu Shara-
povu í undanúrslitunum en hún var
þáverandi Wimbledon meistari. Willi-
ams vann mótið einnig árin 2000 og
2001 en systir hennar, Serena, vann
mótið árin 2002 og 2003. Árin 2002
og 2002 urðu þær saman meistarar í
tvíliðaleik. ■
Formúla 1:
Alonso vann á Magny-Cours
NAFN
Framleiðandi
Lokastaðan í Frakklandi
1 Femando Alonso
2 Kimi Ráikkönen
3 Michael Shumacher
4 Rubens Barrichello
5 JarnoTrulli
6 Nick Heidfeld
7 Mark Webber
8 Ralf Schumacher
9 Giancarlo Fisichella
10 David Coulthard
11 Juan Pablo Montoya
Renault
Mclaren-Mercedes
Ferrari
Ferrari
Toyota
Williams-BMW
Williams-BMW
Toyota
Renault
Red Bull Racing
McLaren-Mercedes
1. Femando Alonso - Renault
6. Nick Heidfeld - Williams
2. Kimi Raikkonen - McLaren
Mark Webber - Williams
3. Michael Schumacher - Ferrari
4. Rubens Barichello - Ferrari
5. JarnoTrulli-Toyota
8. Ralf Schumacher-Toyota
9. Giancarlo Fisichella - Renault
10. David Coulthard - Red Bull
Fernando Alonso varð um
helgina fyrsti ökumaður Rena-
ult sem vinnur heimakeppni
liðsins frá árinu 1983 þegar
hann ók örugglega til sigurs
á Magny-Cours brautinni í
Frakklandi. Alonso sem hef-
ur forystu í stigakeppni öku-
manna leiddi keppnina frá
fyrsta hring til enda og lauk
hann keppni 12 sekúndum á
undan Kimi Raikkonen. Hinn
finnski ökumaður McLaren var
þrettándi á ráspól en náði að
vinna sig upp í annað sæti með
góðum akstri. Félagi hans hjá
McLaren, Juan Pablo Montoya
náði ekki að klára keppnina
en hann fell úr keppni eftir
46 hringi. Heimsmeistarinn
Michael Schumacher varð
þriðji á Ferrari fák sínum og
Jenson Button fékk sín fyrstu
stig á tímabilinu en hann lauk
keppni í fjórða sæti.
Það var ekki auðvelt fyrir
liðin að ákveða hvaða dekk
skyldi nota og hvenær skyldi taka
þjónustuhlé en hitinn á brautinni fór
yfir 50 gráður. Alonso stoppaði þrisv-
ar og tók frekar lítið bensín í hvert
skipti og þessi áætlun skilaði liðinu
sætum sigri.
Alonso ánægður með sigurinn
Þúsundir stuðningsmanna Rena-
ult kvöttu Alonso til dáða sem var
að vonum ánægður eftir keppnina:
„Þetta var virkilega gott. Bíllinn var
enn og aftur einstaklega góður og við
vorum mjög erfiðir við að eiga frá
fyrsta hring. Síðustu 10 hringirnir
voru lengi að líða. Mig langaði bara
til að komast yfir línuna og njóta sig-
ursins með liðinu og áhorfendastæð-
inu gegnt viðgerðarsvæðinu þar sem
mikill meirihluti studdi Renault."
Staðan í keppni ökumanna
16 liða úrslit
B karla |
Mánud. 4. og þriðjud. 5. júlí
Fylkir sigraði
í Eyjum
Fylkir vann góðan 3-0 útisigur á ÍBV
í 9.umferð Landsbankadeildar karla
á laugardaginn. Björgólfur Takefusa
kom Fylkismönnum yfir í fyrri
hálfleik og var staðan 1-0 í leikhléi.
Viktor Bjarki Arnarsson bætti við
öðru marki Fylkis og Björgólfur
skoraði annað mark sitt og þriðja
mark liðsins undir lok leiksins og
innsiglaði þar með 3-0 sigur. Páll
Hjarðar vamarmaður ÍBV fékk
rauða spjaidið í leiknum og verður
hann því í leikbanni í næsta leik
Eyjamanna sem er gegn Njarðvík
í Visa-bikarnum annað kvöld.
Fylkismenn eru í 4.sæti deildarinnar
með 14 stig, stigi á eftir Keflavík
sem er í þriðja sæti. Eyjamenn eru
hinsvegar í næstneðsta sæti eftir
fyrri umferðina með 6 stig og þurfa
þeir að bæta leik sinn ætli þeir sér að
forðast fall niður í l.deild.
Dregið
í körfunni
í gær var dregið í Europe Cup Chal-
lenge eðaÁskorendabikarkeppni Evr-
ópu í körfubolta.
Þær breytingar hafa átt sér stað
í keppninni að nú er leikið í átta
þriggja liða riðlum. Segja má að
styrkleiki Evrópukeppni FIBA hafi
aukist enda er nú aðeins 3 keppnir
í boði, en þær hafa hingað til verið
4. Keppnin er ekki lengur deildar-
skipt, heldur er það nú svo að tvö
efstu lið hvers riðils komast áfram
og spila næst í fjögurra liða riðli gegn
liðum sem einnig komust upp úr sín-
um riðli. Keflavík dróst í riðli með
finnska liðinu Lappeenranta NMKY
og úkraínska liðinu Sumihimprom
Sumy. Þau tvö lið sem fara upp úr
þessum riðli geta mætt CAB Madeira
Funchal frá Portúgal, Bakken Bears
frá Danmörku og Tulip Den Bosch
frá Hollandi í næsta riðli.
VISA bikarinn
í kvöld
í kvöld hefjast 16-liða úrslit í VISA
bikar karla í knattspyrnu með þrem-
ur leikjum. Á Víkingsvelli kemur KR
í heimsókn í einum af mest spenn-
andi leik vikunnar. Víkingar eru
í öðru sæti í 1. deildinni en KR er í
fimmta sæti í Landsbankadeildinni
og er ljóst að spennandi rimma er
framundan. Valsmenn taka á móti
spræku liði Hauka á Hlíðarenda en
fyrirfram er búist við öruggum sigri
Valsmanna en Haukar eru sýnd veiði
en ekki gefin og hafa oft á tíðum sýnt
mjög góða takta í 1. deildinni. Annar
stórleikur er svo á Akranesi þar sem
efsta lið 1. deildarinnar, Breiðablik,
kemur í heimsókn. Kópavogsliðið er
að rúlla upp deildinni og hafa sjö
stiga forskot á Víkinga en ÍA hafa
átt misjöfnu láni að fagna í Lands-
bankadeildinni. AUir leikimir hefj-
astklukkan 19:15.