blaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 23
blaðiö MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005
VÍSINDI I 23
Sólin, stjarnan okkar
Lif á Mars
Árið 1877 teiknaði Giovanni
Schiaparelli fyrsta kortið af yfirborði
reikistjörnunnar Mars. Á það teiknaði
hann kerfi af því sem hann kallaði
farvegir eða „canali". Orðið var
ranglega þýtt á ensku sem „canal“
sem benti til þess að vitsmunaverur
hafi grafið skurði þvers og kruss um
reikistjörnuna. í kjölfarið spruttu
margskonar sögur af Marsbúum sem
ollu mikilli geðshræringu. Ljósmyndir
könnunarfara síðari tíma sýndu engin
merki um skurði á Mars og er talið að
einungis hafi verið um skynvillu og
hugarburð að ræða. Sýndu myndirnar
hins vegar yfirborð alsett gígum (að
hluta til) sem bendir til þess að það sé
nokkuð gamalt. Síðan skarpari myndir
tóku að berast hefur margt forvitnilegt
komið í ljós. Uppþornaðir árfarvegir,
kvíslamynstur og merki um stöðuvötn
benda sterklega til þess að vatn hafi
runnið á Mars í fjarlægri fortíð. í dag er
vissulega ekkert fljótandi vatn á annars
þurru yfirborðinu. Lítill þrýstingur
og lágt hitastig leyfa það einfaldlega
ekki. Vísindamenn eru þó ekki lengur
í vafa um að vatn hafi eitt sinn runnið
á yfirborði Mars. Því getum við fullyrt
að áður fyrr voru aðstæður öðruvísi þ.e.
að Mars hafi e.t.v. haft þykkari lofthjúp
sem leyfði vatn í fljótandi formi.
Reikistjarnan Mars hefur helmingi
minna þvermál en förðin og aðeins 10%
af rúmmáli Jarðar. Það er því rétt að
álykta að Mars hafi kólnað mun hraðar
en Jörðin (reikistjörnur geisla frá sér
varma út í geiminn) og er Mars nú talin
jarðfræðilega óvirk reikistjarna. En
hvert fór allt vatnið? Talið er að vatnið
kunni að leynast undir yfirborðinu
og einnig í pólhettunum. Rannsóknir
benda til þess að pólhetturnar séu
a.m.k. að hluta til úr vatnsís. Mars er
vafalaust ein áhugaverðasta reikistjarna
sólkerfisins. Hún er einn af fáum
stöðum í sólkerfinu þar sem líf hefði
getað kviknað. I
Uppþornaðir árfarvegir á yfirborði Mars.
Fjölmörg könnunarför hafa
verið send til Mars bæði brautarför
og lendingarför. Fyrstu Víking
lendingarförin greindu sýni úr
jarðvegi Mars sem reyndust lífvana. Á
síðasta áratug lenti Mars Pathfinder
á yfirborðinu og innihélt lítinn jeppa
sem framkvæmdi rannsóknir áberginu
í kring. Árið 2004 lentu jepparnir Spirit
og Oppurtunity á Mars og hafa þeir
reynst sérlega gagnlegir. Þeir aka enn
um yfirborðið.
Til að gera langa sögu stutta hafa
hingað til engin lífsmerki fundist á
Mars. Við vitum ekki hvort líf er þar
að finna. Stór hluti vísindamanna telur
það tímasóun að leita að lífi á Mars og
telja hyggilegra að leita að merkjum um
útdautt líf þar. Aðrir halda í vonina og
eru bjartsýnir um að einhver lífsmerki
finnist þar sem aðeins þurfi eitt dæmi til
þess að sýna fram á lifandi reikistjörnu.
Hins vegar er mun erfiðara að sanna að
ekkert líf sé á Mars. Það að líf finnist á
Mars, útdautt eða ekki, hefur í för með
sér þýðingamiklar staðreyndir um líf
í alheiminum. Það að í okkar sólkerfi
hafi kviknað líf, ekki aðeins einu sinni
heldur tvisvar, bendir til þess að líf
getur verið algengt í alheiminum.
Framtíðaráform okkar liggja m.a. í
mannaðri geimferð til Mars. Þess konar
verkefni mun verða afskaplega dýrt og
áhættusamt. Slík geimferð yrði sex ár
á leið sinni til Mars og myndi krefjast
mikils undirbúnings. Ekki mun slíkri
reisu verða hleypt af stokkunum fyrr
en í fyrsta lagi á þriðja áratug þessarar
aldar. En eitt er víst, slíkt yrði lítið
skref fyrir mann en annað risaskref
mannkyns.
I augum almennings er sólin heitur eld-
hnöttur sem varpar ljósi á daglegt líf
okkar. Flestir líta á sólina sem sjálfsagð-
an hlut og kæra sig ekkert um hana með-
an hún skín og geislar frá sér orku. En til
þess að skilja tilvist okkar verðum við
að skilja eðli sólarinnar. Hvað er sólin í
raun og veru? Úr hverju er hún og hvers
vegna skín hún?
Sólin er stjarna rétt eins og allar aðrar
stjörnur á næturhimninum. Hún er
langstærsti meðlimur okkar sólkerfis
og hefur að geyma um 99,9% massa
þess. Af massa hennar er um 74% vetni,
25% helíum og 1% önnur þyngri frum-
efni. Hitinn á yftrborðinu er um 5800
gráður á Kelvinskvarða (u.þ.b. 5530°C).
Sólin skín vegna þess hve heit hún er
því allir hlutir sem eru heitari en um-
hverfi sitt geisla frá sér varma. I miðju
hennar er hitinn og þrýstingurinn svo
mikill að vetniskjarnar geta rekist sam-
an og myndað helíumkjarna (kjarna-
hvörf). Helíumkjarninn er ögn léttari
en vetniskjarnarnir sem mynduðu
hann. Massamunurinn kemur fram í
gífurlegri orkulosun samkvæmt hinni
frægu jöfnu Einsteins E=mc2, þar sem
E er orkan, m er massamunurinn og c
er ljóshraðinn. Ljósafl sólarinnar (ork-
an sem hún geislar frá sér á sek.) er um
390.000.000.000.000.000 gígavött. Til
samanburðar er uppsett afl Kárahnjúka-
virkjunar aðeins um 0,69 gígavött. Sól-
in umbreytir stöðugt massa í orku og á
hverri sekúndu tapar hún um 4 milljón
tonnum af massa sínum! Okkur finnst
þessi tala geipistór en hún er hlutfalls-
lega lítil miðað við heildarmassa sólar-
innar og hefur lítil áhrif á gang hennar.
Vetnið er eins konar eldsneyti sólarinn-
ar og þegar það hefur allt breyst í helíum
þá nálgast sólin endalok ævi sinnar. Sól-
in á þó nóg eldsneyti eftir og mun skína
a.m.k. fimm milljarða ára til viðbótar.
Mikil og hamfarakennd virkni á yfir-
borði sólarinnar kemur fram í ýmsum
fyrirbærum á yfirborðinu. Þar eiga
sér stað umbrot á borð við sólkorn, sól-
kyndla og sólbletti. Síðan má nefna
hin miklu kórónugos þegar sólin þeyt-
ir frá sér gríðarheitu rafgasi langt út í
geiminn (nánar á www.stjornuskodun.
is). Sólvindurinn er straumur hlaðinna
agna frá sólinni sem skella á segulsviði
jarðar og orsaka suður- og norðurljósin
við pólana. Þegar mikillar virkni gætir
á sólinni eru norðurljósin í hámarki.
Sólin er undursamlegt gangverk nátt-
úrunnar og er eftirtektar virði. Gerum
okkur grein fyrir því að án sólarinnar
væri ekkert líf mögulegt á jörðinni og
enginn hér til að njóta þess. Þegar við
lítum á okkur sjálf á alheimsvísu verður
ekki hjá því komist að líta til sólarinnar
með hrifningu.
Útsala í Sony Center
KLV-20SR3S
20" LCD sjónvarp
• 3D kamfilter fyrir PAL og NTSC
• 2x scarttengi
7.900 krónur á
mánuði vaxtalaust*
94.800 krónur staðgreitt.
Verð áður 107.988 krónur
• --SMg Oj
DCR-PC55
Stafræn myndavél
• 3" snertiskjár
• 12x optical Carl Zeiss linsa
• Tengistöð einfaldar allar tengingar
• Alvöru klippihugbúnaðurfylgir
6.499 krónur á
mánuði vaxtalaust*
77.988 krónur staðgreitt.
Verð áður 89.940 krónur
Alvöru klippihugbúnaður fylgir!
DSR-HC22
Stafræn myndavél
• 2,5 snertiskjár
• 20x optical Carl Zeiss linsa
• Tengistöð einfaldar allar tengingar
• Alvöru klippihugbúnaður fylgir
4.549 krónur á
mánuði vaxtalaust*
54.588 krónur staðgreitt.
Verð áður 59.940 krónur
DSC-S90 & 512 MB minniskort
Stafræn myndavél
• 4,1 milljón pixlar
2.999 krónur á
mánuði vaxtalaust*
35.988 krónur staðgreitt
Verð áður 41.940 krónur
12 MB minniskort
ð verdmæti 10.995,-
Alvöru klippihugbúnaður fylgir!
DAV-SR2
Heimabíó
• 600W magnari RMS S-Master digital
• Útvarp FM/AM RDS
• Spilar SVCD/DVD-R-DVD-RW/JEPG
og MP-3, Dolby Digital, DTS og PLII
59.950 krónur
Verð áður 89.950 krónur
like.no.other'
Sony Center Kringlunni
588-7669/588-SONY
www.sonycenter.is
Sony Center
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabróf. 0,5% stimpilgjald beetist við samningsfjárhaaðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
Kári Helgason