blaðið - 21.07.2005, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 blaðiö
Karlmenn vinna rúmum 12
klukkutímum lengur á viku
Djúpavatn:
Veiddi 13
punda
urriða
,Ég var að veiða í Djúpavatni á
Reykjanesi með fjölskyldunni
fyrir fáeinum dögum og lenti
heldur betur í ævintýri“ sagði Guð-
mundur Jónasson, í samtali við
Blaðið en hann setti í boltafisk í
vatninu fyrir nokkrum dögum.
„Ég henti út “letingja” á mölinni
fyrir framan skálann og beitti
makríl og sökku, en stöngin var
sett í hólk sem stungið er í fjöru-
borðið. Eftir 15 mínútur beit þetta
svaka flykki á öngulinn. Ég sat í
rólegheitum inn í skálanum og
var að hnýta taum þegar mér varð
litið á stöngina sem maraði í kafi.
Ég stökk i strigaskóna og hljóp út og
þá sá ég að tröllafiskur var á önglin-
um. Þegar skepnan kom að landi fór
frændi minn Jónas Tryggvi Stefáns-
son, 12 ára, út með háfinn og reyndi
að ná fiskinum sem hafðist fyrir
rest, en hann þurfti að vaða upp fyr-
ir stígvélin sín til að klófesta tröllið.
Þegar fiskurinn náðist loks í háfinn
kom gat á hann en sem betur fer náð-
Guömundur Jónasson með boltafiskinn
úr Djúpavatni á Reykjanesi, sem er sá
stærsti sem veiðst hefur í vatninu, nokkr-
um mfnútum eftir löndun hans.
ist að innbyrða fiskinn.Viðureignin
við fiskinn tók um 15 mínútur. Urrið-
inn vóg 13 pund og var 80 sm lang-
ur. Þetta var eins og að draga inn
stórlúðu. Þegar fiskurinn kom nær
landi varð hann vitlaust og reyndi
að strauja út með færið en sem bet-
ur fer héldu veiðilinan og hnútarnir “
sagði Guðmundur ennfremur.
Þetta er stærsti urriði sem veiðst
hefur í Djúpavatni, fyrr og síðar
enda engin smásmíði. ■
Atvinnuþátttaka hér á landi eykst
og vinnutími lengist samkvæmt
tölum sem Hagstofa Islands hefur
sent frá sér. Þar kemur fram að
alls hafi tæplega 164 þúsund ein-
staklingar verið á vinnumarkaði
hér á landi á öðrum ársfjórðungi
ársins. Það er fjölgun um tæplega
6 þúsund manns frá sama tíma-
bili í fyrra. Þetta jafngildir 83,5%
atvinnuþátttöku hér á landi. Karl-
menn eru duglegri á vinnumark-
aði en konur - atvinnuþátttaka
karla nemur 88% en kvenna tæp-
lega 79%.
Vinnuvikan hefur lengst
um klukkustund
Á öðrum ársfjórðungi þessa árs
vann meðal starsfmaður 43,1
klukkustund á hverri viku en á
sama tímabili í fyrra var unnið
að meðaltali í 42,2 klukkustund-
ir. Vinnuvika meðal íslendings
hefur þvi lengst um tæpa klukku-
stund mili ára. Karlmenn vinna
að meðaltali um tólf klukkustund-
um lengur í hverri viku en konur.
Meðal vinnuvika karlmanna eru
48,6 klukkustundir en 36,4 kluklcu-
stundir hjá konum.
Atvinnuleysi minnkar
Um 5.000 manns voru að meðaltali
án vinnu á öðrum ársfjórðungi árs-
ins sem er um 3% alls vinnuafls. At-
vinnuleysi er heldur minna hjá körl-
um en konum, 2,8% hjá körlum en
3,2% hjá konum. Atvinnuleysið var
mest meðal fólks á aldrinum 16-24
ára eða 8,5%. Rúmlega helmingur at-
vinnulausra var í þessum aldurshópi
eða 2.600 manns og af þeim voru
rúmlega 80% einnig i námi. Nokk-
uð hefur dregið úr atvinnuleysi þvi
á sama tímabili í fyrra mældist at-
vinnuleysi 4%. B
Tískustóllinn í sumsr
14.900kr.
Faltegir og þægilegir stólar
sem fást í mörgum litum.
rumas
r
Munið tilboðin á heimasíöu okkar
www.rum.is
Reykjavík: Snorrabraut 56. Sími 551 5200 Akureyri: Glerárgötu 34. Sími 461 5300
Ókeypis í strætó
Fulltrúar Samfylkingarinnar í Kópa-
vogi hafa lagt fram tillögu til bæjar-
ráðs sem gerir ráð fyrir því að barist
sé gegn fækkun farþega í strætó
á höfuðborgarsvæðinu, eins og
þróunin hefur verið undanfarin ár.
Tillagan gengur út á að ná til ungs
fólks í Kópavogi og kanna afstöðu
þess til strætó og hins nýja leiðakerf-
is sem kemur í gagnið á laugardag-
inn. Gegn slíkum upplýsingum gæti
það sótt um fríkort í strætó fyrir
ákveðið tímabil, t.d. í einn mánuð.
Auki notkun á almenn-
ingssamgöngum
Tillagan var lögð fram í bæjarstjórn
sem samþykkti að vísa henni til
bæjarráðs. Tillagan gengur reynd-
ar einungis út á að efna til hvatn-
ingarátaks meðal tólf til átján ára
ungmenna til að nota strætó. Grein-
argerð sem fylgir því fjallar um nán-
ari útlistanir á hugmyndinni, s.s.
fríkort og viðhorfskönnun. Að sögn
Sigrúnar Jónsdóttur bæjarfulltrúa
er í greinargerðinni reifuð ákveðin
hugmynd en ekki er víst að endan-
leg útfærsla verði nákvæmlega eins
og lagt er til. Þá segist hún ekki vita
hvernig málin þróist en eitthvað
muni átakið kosta bæjarfélagið. Það
sé þó þess virði ef efling almenn-
ingssamgangna og aukin notkun á
strætó fylgdi i kjölfarið.
Mýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi
Slmi 554 4433
Erum að taka upp nýjar vörur
Útsalan í fullum gangi!
Opnunartími
mán - föst. 10-18
laugardaga 10-16