blaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 blaðiö
Fleiri deyja vegna
fuglaflensu
Fyrstu dauðsföllin í Indónesíu þegar maður og tvœr ungar
dcetur hans létust vegna veirunnar
Indónesísk yfirvöld hafa staðfest
fyrstu dauðsföllin þar í landi vegna
fuglaflensunar en 38 ára gamall
maður og tvær ungar dætur hans
létust á dögunum. Því hafa alls 57
látist í Asíu vegna veirunnar frá ár-
inu 2003. Heilbrigðisráðherra Ind-
ónesíu, Siti Fadilah Supari, sagði í
gær að vísindamenn í Hong Kong
hefðu staðfest að maðurinn og dæt-
ur hans hefðu haft HsNi-tegundina
svonefndu af fuglaflensunni. „Það
er staðfest að þau létust af hefðbund-
inni fuglaflensuveiru sem smitast
ekki á milli manna“, sagði Supari.
Supari talaði einnig um að ekki
væri vitað hvar maðurinn og dætur
hans hefðu smitast en sagði að afar
líklegt væri að þau hefðu öll smitast
á sama tíma. Þá sagði hún að heim-
ili fjölskyldunnar hefði verið langt
frá þeim svæðum sem fuglaflensa
hefði komið upp. Þau létust á sjúkra-
húsi með nokkurra daga millibili
eftir að hafa öll þjáðst af alvarlegri
lungnabólgu.
Um 300 manns sem gætu hafa
komist í snertingu við manninn og
dætur hans hafa verið undir stöð-
loftkœling
ugu eftirliti. Þar á meðal er kona
mannsins og þriðja dóttir þeirra en
þau hafa engin merki sýnt um veik-
indi, samkvæmt Supari. Landbúnað-
arráðherra landsins hefur skipað að
öllum svínum og hænsnum, í allt að
þriggja kílómetra radíus frá staðn-
um þar sem fuglaflensan kom upp,
verði slátrað.
Heimsfaraldur í nánd?
Heilbrigðisráðuneytið staðfesti á
dögunum að í Banten-hérði hefðu
fundist svín sem sýkt voru af fugla-
flensu. Óttast menn nú að veiran
færist stöðugt nær mannfólkinu
og hafa dauðsföll þremenninganna
vakið enn háværari áhyggjuraddir.
Sérfræðingar óttast að veiran geti
stökkbreyst og orðið að bráðsmit-
andi sjúkdómi sem berist auðveld-
lega frá dýrum til manna eða jafnvel
frá mönnum til manna. Gæti það
orsakað heimsfaraldur veirunnar
sem kynni að verða tugmilljónum
að bana.
Af þeim 57 sem látist hafa úr veir-
unni voru 38 í Víetnam, 12 i Taílandi,
fjórir í Kambódíu og nú þrír í Ind-
ónesíu. Þá hafa tugmilljónir hænsna
drepist eða verið slátrað vegna veir-
unnar. ■
bjornbragi@vbl.is
VerÖ frá 49.900 án vsk.
ís-húsiö 566 6000
Ferðabox
THUI
Ocean 100
J 360 lítrar
Ocean 600
/330
lítrar
Spint 820 ^ 480 ,jtrar
AÐALNÚMER - SlMI 520 B000 WWW.Stllling.IS
SKEIFUNNI 11 RVlK. ■ SlMI 520 8001 SMIDJUVEGI 68 KÓP. ■ SlMI 520 8004
DALSHRAUNI 13 HFN. ■ SlMI 520 8003 BÍLDSHÖFÐA16 RVlK. ■ SlMI 520 8005
EYRARVEGI 29 SELF. • SlMI 520 8006
i Ipí&jí m > &
f Cf
Þýskir læknar og sjúkrahússtarfsmenn stungu sér til sunds i stöðuvatni á meðan á mótmælum stóð í Langenselbold, nálægt borginni
Frankfurt í gær. Nokkur hundruð læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar frá fjölmörgum spítölum í ríkinu Hesse mótmæltu
þunglamalegu skriffinnsku bákni í stjórnsýslukerfi spitalanna.
Brak lestarvagnsins
fjarlægt
Lundúnalögreglan fjarlægði seint
á þriðjudagskvöld brak lestarvagns-
ins sem sprengdur var við Edgware
Road lestarstöðina í árásunum í
borginni fyrir réttum tveimur vik-
um síðan. Sjö manns létust við Edg-
ware Road, sem er í miðhluta Lund-
únaborgar, en í heildina eru minnst
56 látnir eftir árásirnar. Sú tala gæti
enn hækkað þar sem margir liggja
alvarlega slasaðir.
Lestarvagninn var vafinn þykku
bláu plasti áður en honum var lyft
af kranabíl ofan á stærðar flutninga-
bíl. Verður vagninn í umsjá lögregl-
unnar og munu vísindamenn rétt-
arrannsóknadeildar halda áfram
rannsóknum sínum. Lestarvagninn
sem sprengdur var við Russell Squ-
are er enn í göngunum þar en vagn-
inn við Aldgate-stöðina hefur verið
fjarlægður.
Búist er við því að lestarferðir um
göngin við Edgware Road og Ald-
gate hefjist að nýju innan tveggja
vikna en ferðir um Piccadilly Line,
sem fer um Russell Square, munu
liggja niðri í mun lengri tíma. H
Breskir
hermenn
ákærðir fyrir
striðsglæpi
Þrír breskir hermenn sæta nú ákær-
um fyrir stríðsglæpi og aðra glæpi
í tengslum við dauða fanga í Irak í
september 2003. Einn þeirra, Don-
ald Payne, er ákærður fyrir morð en
hinir tveir fyrir alvarlega illa með-
ferð á fanganum. Hinn 34 ára gamli
Payne er sagður hafa myrt Baha Mo-
usa, hótelstarfsmann frá Basra, sem
lést í haldi hermannanna eftir að
hann var handtekinn.
Þá er Payne einnig sakaður um
grófar misþyrmingar á öðrum
föngum. Fjórir hermenn til viðbót-
ar hafa einnig verið ákærðir vegna
tengsla við málið. Réttað verður yfir
mönnunum sjö í breskum dómstól-
um en ekki í stríðsglæpadómstóln-
um í Haag.
Bresk yfirvöld hafa legið undir
miklu ámæli vegna þess hve langan
tíma rannsókn málsins hefur tekið.
Phil Shiner, lögfræðingur Mousa-
fjölskyldunnar, sagði það óviðeig-
andi að breski herinn réttaði yfir
sínum eigin mönnum og sagði að
réttast væri að gefa út hefðbundna
morðákæru.
Þá hafa fjórir aðrir hermenn
verið ákærðir í öðru máli vegna
dauða írasks manns sem drukkn-
aði í skurði eftir að hafa verið lam-
inn. Var sá í haldi hermanna vegna
gruns um aðild að ráni. Einn mann-
anna fjögurra sem ákærðir eru mun
vera ofursti og hefur svo háttsettur
maður aldrei verið ákærður fyrir
glæpi tengda stríðinu í Irak. ■
Varð fyrir lest
eftir lausn úr
haldi lögreglu
Maður sem ákærður var fyrir að
setja á svið, ásamt félaga sínum, rán
á móteli sem hann starfaði á varð
fyrir lest og dó aðeins nokkrum
klukkutímum eftir að hann losnaði
úr haldi lögreglu. Hinn 29 ára gamli
Joseph Henderson, frá Tennessee-
fylki i Bandaríkjunum, var látinn
laus um klukkan 20.30 á mánudags-
kvöld. Laust eftir klukkan 23.00
sama kvöld barst lögreglunni til-
kynning um að maður hefði orðið
fyrir lest og á slysstað fundu þeir lík
Hendersons. Rannsóknarlögreglu-
maður sagði málið vera í rannsókn
lögreglu þar sem ekki væri útilokað
að um morð hafi verið að ræða. ■
ímsmmsiB
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is