blaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 12
12 I MATUR
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 blaöiö
Euí
Ragga Ómars
Það sem mér finnst svo skemmtilegt
þegar manni er boðið í matarboð
eða fer út að borða er það þegar boð-
ið er upp á skemmtilegt og frumlegt
viðbit með brauðinu. Smjörið er nátt-
úrulega gott og gilt en betra finnst
mér að fá eitthvað mauk eða olíur.
Það er endalaust hægt að leika sér
með þetta því ég hef tekið eftir því
að á veitingastöðum er þetta það
fyrsta sem fólkið talar um og finnst
rosa spennandi að ’ dýfa brauðinu
eða smyrja með einhverju skemmti-
legu og bragðgóðu viðbiti.
Þetta geta verið hinir ótrúlegustu
hlutir eins og mismunandi kryddað-
ar olíur, ýmis konar smjör, bauna-
mauk úr hinum og þessum baunum,
„hummus“, maukaðar ólífur, tómatar
eða ætiþistlar. Síðan er hægt að vera
með olíu sem þú dýfir fyrst í og síð-
an i ristaðar hnetur eða fræ. Mögu-
leikarnir eru óteljandi!
Hérna koma uppskriftir af nokkr-
um viðbitum.
Kveðja Raggi
Ólífusmjör:
300 gr smjör (við stofuhita)
1 stk hvítlauksrif
100 gr svartar ólífur (steinlausar)
Hnefafylli af ferskri steinselju
Aðferð: allt maukað saman í raf-
magnsblandara.
Tómat- og paprikuídýfa
1 stk rauð paprika (miðlungsstór)
2 stk tómatar miðlungsstórir
1 stk hvítlauksrif
1 dl ólífuolía
Hnefafylli af ferskri basil
1 tsk kapers
Safi úr V2 sítrónu
Blaðlö/Gúnd!
Takið kjarnan úr paprikunni og
tómötunum og setjið allt saman í
rafmagnsblandara og maukið vel,
bragðbætið með salti og pipar.
Jógúrt- og parmesanídýfa
1 dós hrein jógúrt
1 dl rifinn parmesanostur
ístk hvítlauksrif
Safi úr Vi sítrónu
Kúmen á hnífsoddi
Hnefafylli af ferskri steinselju
Salt og pipar
Allt sett í rafmagnsblandara og
maukað vel.
Blaðið kynnir
Delicato - Californía - USA.
Fallega þykkt og bleikt, hefur
magnaðan jarðaberja- og kiwi keim,
sem endist út vínið. Einkennist af sætu
sem gefur því suðræna stemningu. Það
er vel þess virði að prófa vínið með
bleikju eða léttum laxaréttum. Vínið er
einn besti kosturinn fyrir mannfagnaði
og með pinnamat eins og tapasréttum.
Drekkist kalt! Ómissandi í útileguna
eða sumarbústaðinn.
Verð: 990,-
V/HITE 7li,
\ _
„Chilluð" frá Chile
Stefán Baldvin Guðjónsson,
Sommelier
Undanfarin fimmtán ár hafa vín
framleidd í Chile verið mjög vin-
sæl á tslandi. Ástæðurnar eru
þrjár. Vínin eru ódýr, gæðin eru
mjög góð miðað við verðið og
hægt er að stóla á að bragðið og
gæðin verði eins frá ári til árs. Þar
að auki erum við með vín frá há-
gæðaframleiðendum hér á íslandi.
Vitis vinifera
Chile á ríka hefð í vínrækt, meðal
annars fluttu Spánverjar inn vitis
vinefera vínþrúguna til Chile á t6
öld. Á 19 öld var vínræktun í Chile
bæði vinsæl og árangursrik. Margar
vínþrúgutegundir frá Frakklandi
voru fluttar til ræktunar í Chile um
árið 1830 af Frakka að nafni Claudio
Gay. Þar með sluppu þrúgurnar rétt
fyrir horn frá tveimur af verstu
faröldrum í vínrækt sem blossuðu
upp í Evrópu á þessu tímaskeiði um
1850-1895. Þeir voru Phylloxera lús,
sníkjudýr sem étur ræturnar á vin-
viðnum og powdery mildew, mygla,
sem drepur allt sem er grænt í vín-
viðnum. Þó vínræktunin hafi verið
vinsæl og gengið vel voru gæðin
ekkert sérstök fyrr en seint á 20. öld-
inni þegar útflutningur á víni hófst
í Chile. 1 kringum 1990 fóru vín frá
Chile að hljóta mikið hrós og vekja
umtal fyrir að vera ódýr vín í háum
gæðaflokki. Núna í dag eru fram-
leidd ódýr, meðal dýr og dýr vín
í Chile. Nánast allt vín er í óvenju
háum gæðum miðað við verðið.Vín
er ræktað á eftirtöldum svæðum í
Chile; Aroncagua, Casablanca, Mai-
po, Rapel, Maul og Bio-Bio.
Vínþrúgur
Þó að nokkuð af vínvið í Chile sé vel
yfir 100 ára gamall og vin frá Chile
sé að fá fleiri og meiri viðurkenning-
ar með hverju árinu eru tvö frekar
leiðinleg atvik sem hafa komið
upp sem sýna að vínframleiðendur
eiga ennþá ýmislegt ólært. Seint á
áttunda áratugnum komst vínsér-
fræðingur að því að ástæðan fyrir
því að Chile gat ekki framleitt góð
Sauvignon Blanc vín var sú að
ekki voru notaðar Sauvignon Blanc
vínþrúgur, heldur þrúgur sem voru
kallaðar Sauvignesse, sem þýðir “
eins og Sauvignon”, en í raun er
ekkert líkar þeim. Þvert á móti eru
þær þrúgur frekar illa lyktandi og
bragðvondar. Þegar vínframleiðend-
ur leiðréttu loksins þessi mistök og
fóru að rækta ekta Sauvignon Blanc
komu önnur „mistök“ í ljós um sjö
árum seinna. 90% af þeim vínþrúg-
um sem voru flokkaðar sem Merlot
voru í raun og veru komnar af vín-
þrúgum sem voru fluttar inn frá
Frakklandi fyrir yfir 100 árum síðan
en vínframleiðendur eru löngu hætt-
ir að nota í Bordeaux! Sú vínþrúga
heitir Carmenére en það sem er
skrítnast við þetta er að talið er að
úr Carmenére þrúgunni í Chile fá-
ist betra vín en úr Merlot þrúgunni.
Carmenére þrúgan gefur Chile víni
sérstöðu miðað við önnur og margir
vínframleiðendur eru farnir að nýta
þessa sérstöðu í dag og búa til vín úr
100 % Carmenére.
Aðrar vínþrúgur sem eru notaðar
í Chile í dag eru eftirfarandi:
Hvítvín:
Chardonnay, Semillion, Gerwurztr-
aminer og Sauvignon Blanc.
Rauðvín:
Cabernet Sauvignon, Merlot, Car-
menére, Syrah og Cabernet Franc.
WWW.SMAKKAR1NN.IS