blaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 18
18 I SNYRTIVÖRUR
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2003 blaðiö
Fótsnyrting
heima við
Það er algjör nauðsyn að fá
sér fótsnyrtingu í sumar. Ekki
einungis er það afsökun til að
kaupa sér ennflottari skó held-
ur liður okkurbetur effœturnir
okkar eru í góðu ásigkomulagi.
Flestar snyrtistofur bjóða upp á
fótsnyrtingu en það er líka ein-
falt mál að taka sjálfan sig ífót-
snyrtingu heima við á jallegu
síðkvölai. Hér koma nokkrar
leiðbeiningar að góðri og fljót-
legri fótsnyrtingu.
1
Fjarlægið gamalt naglalakk af
tánöglunum. Bleytið bómul
með naglalakkeyði og nuddið
naglalakkið af.
5
Notið fótþjöl til að fjarlægja
dauða skinnið á hælnum og í
kringum tærnar. Varist þó að
nota þjölina of mikið.
2Klipptu neglurnar í snyrti-
lega lengd. Til að koma í veg
fyrir inngrónar táneglur skal
klippa þær beint. Passið að neglurn-
ar nái ekki fram fyrir tærnar. Notið
naglaþjöl á hornin á nöglunum svo
þær verði fallega bogadregnar.
3Fyllið bala af heitu vatni og
setjið í það góða olíu. Setjið
einnig í það hálfan bolla af
mjólk því sýran losar dautt skinn.
Stingdu fótunum í vatnið og hafðu
þær þar í 5-10 mínútur. Ef fæturnir
eru illa farnir þá er nauðsynlegt að
vera lengur í fótabaðinu.
4Settu naglabandaeyði á nagla-
böndin og hafðu á í mínútu.
Ýttu naglaböndunum varlega
niður, með þar til gerðu priki. Pass-
ið að fjarlægja einungis skinnið sem
er á nöglinni.
6Þurrkið fæturna vel og ekki
gleyma tánum. Berið á ykk-
ur þykkt og gott fótakrem og
nuddið því vel inn í fæturnar. Settu
naglabandaolíu á naglaböndin.
Bíddu í 3 mínútur.
7Notið naglalakkeyði til að fjar-
lægja alla olíu af nöglunum
einnig naglabandaolíuna. Ber-
ið naglalakkið á með aðeins þremur
strokum. Ein stroka í miðjuna og
stroka sitt hvoru megin naglarinn-
ar. Ekki naglalakka naglaböndin. Ef
þú lakkar útfyrir skaltu setja bómul
á naglabandaprikið og dýfa því í
naglalakkeyði og fjarlægja blettinn.
Leyfðu nöglunum að þorna í að
minnsta kosti 40 mínútur.
8
Eftir að neglurnar eru þorn-
aðar settu örlitla olíu á þær
og naglaböndin.
Fœtur þurfa umhyggju
til að fyrirbyggja mein
Valgerður Sæmundsdóttir, snyrtifræðingur
Valgerður Sæmundsdóttir snyrti-
fræðingur á Snyrtistofu Jónu í
Kópavogi segir að allir hafi gott af
því að fara í fótsnyrtingu. „Það er
nauðsynlegt að hugsa vel um fæt-
urna sína, oft þurfa þeir mikla um-
hyggju til að fyrirbyggja að einhver
mein komi. Á fótum geta myndast
líkþorn, sveppasýking og inngrónar
táneglur.“ Valgerður talar um að all-
ir þurfi að koma reglulega í fótsnyrt-
ingu, jafnvel á 6-8 vikna fresti. En ef
ekkert er að þá er í lagi að koma 4-5
sinnum á ári. „Snyrtifræðingur sér
vitanlega miklu betur hvað er að en
þegar maður er sjálfur að beygja sig
yfir fæturna." 1 fótsnyrtingu á snyrti-
stofu er farið í fótabað og síðan eru
táneglurnar klipptar og þjalaðar.
Naglaböndin eru snyrt og hörð húð
er fjarlægð af fótunum. Eftir það
fylgir gott fótanudd og naglalakk
fyrir þá sem það vilja.
Þykkar neglur þarf að þynna
Þegar Valgerður er spurð um hvað
sé gert í fótsnyrtingu á snyrtistofu
og hvað viðskiptavinir geti ekki gert
heima hjá sér segir hún: „Flestar
stofur eru til dæmis með bor sem
tekur burt naglaböndin auk þess
sem neglurnar eru pússaðar og sigg
er fjarlægt. Ef neglurnar eru þykkar
þá þarf einnig að þynna þær og það
er líka gert með bor. Snyrtifræðing-
ur þorir einnig að taka meira en
maður gerir sjálfur heima hjá sér. Ef
fólk er með líkþorn þá er betra að
koma áður en það fer að meiða því
ef það fer of djúpt getur það farið
að þrýsta á taugar. Það er hægt að
fjarlægja líkþorn en það er einstak-
lingsbundið hvort það kemur aftur
eða ekki. Þegar einstaklingur hef-
ur farið í fótsnyrtingu þá er mikið
auðveldara að halda fótunum við
og hann er meðvitaðri um það.“ Val-
gerður minnist á að sé fótsnyrting
framkvæmd heima við er hætta á að
tekið sé of mikið sigg af fótunum og
það sé því betra að gera oftar og gera
minna heldur en að taka of mikið og
vera sárfættur. „Húð okkar er bleik
og við sjáum dauðu húðina. Einn-
ig verður húðin frekar gul þar sem
dauðu húðfrumurnar eru.“
svanhvit@vbl.is
SKYPE SIMTÆKIÐ
^ w HRINGDU FRÍTT í HVERN
SEM ER HVAR SEM ER.
VERTU FRJÁLS
NOTAÐU SKYPE !
The whoie world
can talk for free.
Góðar vörur Sýrir
íótsnyrtingu
■ u
[IÐ ER FULLKOMLEGA SAMHÆFT SKYPE
ITINU, SKYPE ER FRÍTT FORRIT SEM
tXR FÓLKI KLEIFT AÐ TALA SAMAN
tÍTT í GEGNUM HEIMILISTÖLVU.
.verzla
net
/ fótsnyrtingu fór á stúfana ogfann nokkrar
er gott að nota tegundirsem henta einstaklega
alls kyns krem veí við hina fullkomnu fótsnyrt-
og um nóg er ingu.
ao velja. Blaðið
Sally Hansen, Healinjg Foot Cream. Mýkir þurr-
riuSmá
ar fætur og leggi. Ver
lind
1325 krónur í Lyfju Smára-
Pumice Foot Stone. Góður steinn til að
hreinsa dautt skinn. Verð: 250 krónur í
Body Shop Smáralind
Scholl Softening Lotion. Mýkiandi
húðmjólk fýrir fætur og leggi. Verð:
503 krónur 1 Lyfju Smáralina.
jermint Cooling Foot Spray. Kælandi fótaúði
meö piparmyntu. Verð: 680 krónur í Body Shop
Smáralmd.
Tenerife
Loksins fyrir íslendinga
www.sumarferdir.is
575 1515 ► BÓKAÐU ALLAN SÓLARHRINGINN
fu
UfDAf!
AEf
T) AUTAf
T i A RÉTTU VERÐI