blaðið - 21.07.2005, Blaðsíða 24
24 I MENWING
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 blaðið
Á islendingaslóðum i Kaupmannahöfn
,OGUr
,Þessi bók varð upphaflega til sem
minnispunktar fyrir sjálfan mig. Ég
var búinn að ganga um Kaupmanna-
höfn í mörg ár með Islendingum og
segja þeim sögur og fann fljótt að
þeir vita mjög lítið um sögu Kaup-
mannahafnar. Fólk þekkir Strikið
og Nýhöfnina en veit lítið þar fyrir
utan. Ég fann að það var þörf fyrir
svona bók“, segir Guðlaugur Arason
höfundur bókarinnar Gamla góða
Kaupmannahöfn. Guðlaugur hefur
búið í Kaupmannahöfn i fimmtán
ár og notaði þau ár meðal annars
til að safna efni í bókina. Síðustu
fimm árin hefur hann
verið að vinna
úr efninu og nú
er bókin komin á
markað. „Ég skrifa
um allar götur í
gömlu Kaupmanna-
höfn frá a - ö, segi
frá helstu húsum
sem þar koma við
sögu og hverjir hafa
búið þar með áherslu
á íslendinga. Svo segi
ég alls konar sögur sem
tengjast íslandi, fslending-
um og danskri sögu”, segir
Guðlaugur.
Áfengi í stað vatns
íslenskir stúdentar í Kaup-
mannahöfn fyrri tíma koma við
sögu í bókinni en það orð hefur leg-
ið á að drykkjuskapur hafi þjáð þá
marga. Guðlaugur segir þá umræðu
byggjast á nokkrum misskilningi.
,Á þessum tíma var vatnið i Kaup-
mannahöfn ekki drykkjarhæft og
þess vegna fannst fólki heilsusam-
legra að drekka bjór eða brennivín.
Drykkjuskapur varð því almennur í
sO^
Kaupmannahöfn, bæði hjá körlum
og konum. íslendingarnir voru van-
ir því að geta lagst niður við næsta
lækjarbakka og svalað þorsta sín-
um. I Kaupmannahöfn gátu þeir
ekki einu sinni drukkið vatnið og
drukku þá sterka drykki. Þetta þótti
einhverjum stúdentum ekki ónýtt,
festust í drykkjunni og náðu sér
ekki upp úr henni.”
Horfin kennileiti
Guðlaugur var á sínum tíma þekkt-
u r skáldsagnahöfundur
og var hann meðal
annars höfundur
verðlaunabókarinn-
ar Eldhúsmellur.
Undanfarin ár
hefur hann hald-
ið sig til hlés á
skáldsagnasvið-
inu þótt hann
sé reyndar að
vinna að skáld-
sögu. Hvað
gerðist?
„Það gerð-
ist akkúrat
ekki neitt“,
sagðihann.
„Það er svo
margt skemmti-
legt sem hægt er að gera í
þessu lífi annað en að skrifa skáld-
sögur þótt það sé skemmtilegt. Ég
ákvað að breyta til. Ég fór til Dan-
merkur og rak þar íslenskt menn-
ingarhús í þrjú ár á vestur Sjálandi.
Þetta var veitingastaður, gistihús,
matsölustaður og bóksafn. Þarna
hélt ég fyrirlestra um ísland og
kenndi íslensku. Reksturinn gekk
ekki á veturna og ég lokaði búllunni
áður en allt fór til andskotans og
Guðlaugur Arason.„Fólk þekkir Strikið og Nýhöfnina en veit lítið þar fyrir utan. Ég fann að það var þörf fyrir svona bók." BlaðiS/SteiimHugi
flutti aftur til Kaupmannahafnar.”
Guðlaugur kemur einstaka sinn-
um til ísTands en staldrar yfirleitt
fremur stutt við. „Síðastliðinn vetur
var ég hér reyndar í fjóra mánuði.
Það er í fyrsta skiptið í tiu ár sem
ég hef dvalið hér svo lengi. Ég féll
i hálfgert þunglyndi en það hrjáir
íslendinga hvort eð er í skammdeg-
inu þannig að það skipti ekki máli.
Mér gekk illa að rata í umferðinni og
kennileitin frá því í gamla daga voru
horfin. Það er lítið eftir af því Islandi
sem ég þekkti. Tvennt hefur þó ekki
breyst. Saltkjötsfarsið í Nóatúni iðar
jafn yndislega og áður og svo sé ég
enn sömu setninguna í sjónvarpinu
í lok þátta: Förðun: Ragna Fossberg.’
kolbrun@vbl.is
blaðiðu.
I ^
þmraf íéS'*
G>€) ,
m &
ICELANI)
1» * lllYJlM
Taktu þátt og sumarið veröur ógleymanlegt
Næstu vikurnar ætlar blaðið aðgera sumarfríið þitt ógleymanlegt
Sendu okkur einhverja fyrlrsögn úr Blaðinu og þú kemst í pott sem dregið verður úr einu sinni íviku og þú
gætir komist til Spánar í boöi ^ ©öa unnið einhvern af glæsilegum vinningum sumarleiks Blaðsins...
Klipptu út seöilinn hér að neðan og sendu okkur hann (Blaöið, Baejarlind 14-16, 201 Kópavogur) eða sendu okkur
tölvupóst (meö nafni kenn'itölu og símanúmeri) á netfangið sumar@vbl.ls
Dregið út á mánudögum
Ath. Takamóþátteinsonogogþúvin,þvffleir1innsencar9eðlar,þeimrnunrnelrlvinningslkur.
^ Þátttökuseöill 1
I Fyrifsögn: _________________________________________________________________________________________________ I
1 Fullt nafn: _______________________________________________________________________________________________ 1
I I
I Kennitala: __________________________________________________________________________________________________ ,
1 Sími: l
I I
l Sendefó-aaöiö.B0^arfnd14_-16_2O1Köpavogur_ _ _ __ ___ __ __ __ ____________________ y
&
'l
ia
jisrniöio0'3
011 á9'
öGU,
SKBrtQf'P ifÉ.BOro.'S
Oiaöborðaó ^
OeKurdag ögöogo ó
Hóte'
Valrtö''
ltso"u
Hvað varðar kletta
Föstudaginn 22. júlí kl. 18.00 setur
Pétur Pétursson upp málverkasýn-
inguna Hvað varðar kletta... í Lista-
safni Borgarfjarðar í Safnahúsinu
Bjarnarbraut 4-6 í Borgarnesi. Þar
sýnir hann 13 myndir sem unnar
voru á árunum 2003 til 2005. Mynd-
irnar eru allar unnar með akrýl-
litum á striga. Margar myndanna
voru til sýnis í Norska húsinu á
Stykkishólmi nú í vor en þá aðeins
yfir helgi. Pétur er ættaður af Snæ-
fellsnesinu og eru flestar myndirn-
ar á sýningunni frá því landssvæði
þótt inn á milli geti að líta myndir
frá öðrum stöðum á landinu svo og
óstaðsettar myndir. í flestum mynd-
anna er mögnuð fjallasýn íslensks
landslags viðfangsefnið.
Pétur hefur áður haldið- fjórar
einkasýningar. Þá fyrstu hélst hann
á Kaffé Kúlture, aðra á Café Milanó
og þá þriðju hjá Valhúsgögnum, all-
ar árið 2003 og nú síðast í stuttan
tíma í Norska húsinu í apríl 2005.
Sýningin í Listasafni Borgarfjarð-
ar er opin kl. 13 til 18 mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga og kl. 13 til
20 þriðjudaga og fimmtudaga. Hún
opnar eins og fyrr segir föstudaginn
22. júlí og lýkur 19. ágúst. ■
Metsölulisti erlendra bóka
I. Harry Potter&the
Half-Blood Prince
J. K. Rowling
2. Mao: The Unknown Story
Jung Chang & Jon Halliday
3. Ultimate Hitchhiker's Guide
Douglas Adams
4. Sunday Philosophy Club
Alexander McCall Smith
5. One you Really Want
Jill Mansell
Hany Potter
'kom og fór
Önnur sending af bókinni um
Harry Potter and the Half-Blood
Prince seldist upp á örskömmum
tíma í flestum bókabúðum landsins.
Sem dæmi má nefna að í Eymunds-
son í Austurstræti seldust öll eintök
upp á einum og hálfum tíma. Aðdá-
endur Harry Potter, sem enn hafa
ekki fengið eintak, þurfa þó ekki að
örvænta því ný sending mun vera
væntanleg í búðir í dag.