blaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 2
2 I IWNLEWDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUE 28. JÚLÍ 2005 > blaöiö ISiatoa & Sw 7rygQvagötn S, 101 ReyQiavíQ „_______________ —-------_ S. 511 2272 Hefði átt að Bogi Nílsson, ríkissaksóknari sendi í gær frá sér yfirlýsingu í kjölfar umræðu um afskipti lögreglu af ökumanni sem grunaður er um að hafa ekið á 208 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem leyfður há- markshraði er 90 kílómetrar. Öku- maður var ekki sviptur ökuréttind- um á staðnum, heldur fékk að aka af vettvangi. í yfirlýsingu Boga segir að hann hafi ritað öllum lögreglu- stjórum bréf um bráðabirgðasvipt- ingu ökuréttinda. 1 bréfinu segir að hann hafi áður sent út tilmæíi um að ökumenn skyldu ekki sviptir öku- réttindum nema brot þeirra sé það alvarlegt að þeir eigi yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda í þrjá mán- uði eða meira. Það þýði að keyri öku- maður m.a. á 161 til 170 km. hraða þar sem leyfður ökuhraði sé 90 km, þýði það ökuleyfissviptingu í þrjá mánuði, og því eigi í slíkum tilfell- um að svipta ökumann ökuréttind- um á staðnum. í bréfinu segir að hafi ökumaður verið staðinn að því að aka hraðar en að ofan geti sé enn- þá ríkari ástæða til þessa en ella. Segja má að með bréfinu sé ríkis- saksóknari að taka undir þá gagn- rýni sem komið hefur fram í fjöl- miðlum undanfarið vegna málsins. Tilboð í Símann opnuð í dag Bindandi tilboð i hlut ríkisins í Símanum verða opnuð á Hótel Nordica klukkan 13.00 i dag. Sam- kvæmt upplýsingum frá einkavæð- inganefnd munu tilboðin verða opnuð í viðurvist allra bjóðenda. Ennfremur verður tjölmiðlum boð- ið að vera viðstaddir opnunina. Verði 5% eða minni verðmun- ur á tilboðum hæstu bjóðenda verður viðkomandi aðilum gefinn kostur á að skila inn nýju og hærra verðtilboði síðar um dag- inn, einnig í viðurvist bjóðenda og fjölmiðla. Þegar niðurstaða liggur fyrir mun framkvæmda- nefnd um einkavæðingu boða til fréttamannafundar þar sem niðurstaðan verður kynnt. Lögreglueftir- lit um helgina Lögregla á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði mun í aðdraganda og yfir verslunarmannahelgina vera með sérstakt eftirlit inni í íbúðahverfum eins og áður. Hún mun hafa afskipti af og ræða við þá sem þar eru, telji hún ástæðu til, og hvetur jafn- framt til árvekni íbúa gagnvart öllu því sem óvenjulegt eða grunsamlegt getur talist og að tilkynna um það til lögregTu. Það hefur sýnt sig að samstarf lögreglu og íbúa að þessu leyti hefur skilað góðum árangri í sambandi við forvarnir og uppljóstrun afbrota eins og innbrota og þjófnaða og því leggur lögreglan áherslu á að framhald verði á samstarfinu.. Samherji úr Kauphpllinni Kauphöll Islands hefur sam- þykkt að afskrá hlutabréf í Samherja af aðallista Kauphall- arinnar. Þetta kemur fram í yfir- lýsingu frá Kauphöllinni í gær. Þar segir að Fjárfestingarfélagið Fylkir og aðrir yfirtökuaðilar hafi eignast 91,6% af heildar- hlutafé Samherja oguppfyllir félagið þar með ekki skilyrði skráningar um dreifingu hluta- fjár. Samherji verður afskráður eftir lokun viðskipta í dag. O Heiðskirt <3 LéttskýjaS ^ Skýjað Q Alskýjað , / Rignlng, Irtllsháttar //' Rlgnlng Súld sf: 'Í' Snjðkoma * jj Slydda ^jj Snjóél ^jj Skúi Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinkl Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 23 30 28 17 30 25 20 20 21 27 29 17 24 27 17 26 19 9 31 23 13 14 Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýalngum (rá Veðurstofu Islands Á morgun Sena selur Office 1 Sena, sem áður var Skífan, hefur selt Office 1 verslanirnar með manni og mús til fyrirtækisins Egilsson, sem er gróið heildsölufyrirtæki á sviði ritfanga og skrifstofuvöru, en það hyggst nú snúa sér að smásölu á þeim vettvangi. Eftir því sem næst verður komist hyggst Egilsson ekki gera breytingu á Office 1 verslununum heldur reka það sem sjálfstæða einingu innan fyrirtækisins. Office 1 er með versl- anir í Skeifunni, Smáralind, Akur- eyri og Egilsstöðum. Sverrir Berg Steinarsson, forstjóri Senu, segir samninga hafa gengið vel og telur söluna hafa verið báðum til hagsbóta. Söluverðið er á hinn bóginn ekki gefið upp. „Við treyst- um Egilsson vel til þess að taka við Office í, við höfum unnið mikið og vel með þeim og þeir hafa mikla og farsæla reynslu úr þessum geira,“ segir Sverrir. „Við höfum fyrst og fremst verið í afþreyingariðnaðin- um þannig að Office 1 átti sjálfsagt minni samleið með okkur en ýmis- legt annað.“ Sverrir segir að fram- legðin af Office 1 hafi verið mjög góð og fyrirtækið í mikilli sókn. „Ég hef enga trú á öðru en að fyrirtækið eigi bjarta framtíð fýrir sér í höndum þeirra hjá Egilsson.“ Egilsson er gróið fyrirtæki í rit- fangainnflutningi, en upphaf þess má rekja til Parker-penna umboðs Sigurðar H. Egilssonar frá árinu 1939. Það hefur verið fjölskyldufyrir- tæki síðan, og hefur umboð fyrir fjölda þekktra vörumerkja á borð við 3M, Elba, Durable og UNI-Mitsu- bishi Pencil svo fátt eitt sé nefnt. Lyfjakostnaður Tryggingastofnunar: Sóknarfæri felast í magni lyfja fremur en verði Útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins vegna lyfjanotkunar í fyrra voru um sex og hálfur milljarður króna og hækkuðu um 481 milljón milli ára. Deildarstjóri lyfjadeildar Trygginga- stofnunar segir ljóst að sóknarfæri til frekari sparnaðar í lyfjakostnaði felist í magninu. „Þar eru það lækn- arnir sem halda um pennann.“ Sá lyfjaflokkur, sem talið er að helst megi ná kostnaði niður í eru maga- lyf og áformar Tryggingstofnun sér- staka herferð gagnvart þeim. Inga J. Arnardóttir, lyfjafræðing- ur hjá Tryggingastofnun, segir að vissulega hjálpi kostnaðargreining sem þessi stofnuninni til þess að minnka lyfjakostnað. „Þar er fyrst og fremst um að ræða sóknarfæri gagnvart læknunum með því að hvetja til skynsamlegri lyfjanotkun- ar á ákveðnum stöðum,“ segir Inga. „Okkur hefur orðið vel ágengt í því að ná niður lyfjaverðinu, en hins vegar höfum við minna gert í því að minnka magnið, en það verður auðvitað að huga að því ef ná á kostn- aðinum niður. Það má t.d. skoða tiltekin lyf og lyfjaflokka þar sem við erum með meiri notkun en ná- grannalöndin.“ Magalyfjanotkun þarf að minnka Mikill kostnaður vegna magalyfja vekur athygli þar sem þau eru þriðji kostnaðarmesti lyfjaflokkurinn. Þar ber langmest notkun á lyfjum gegn sýrutengdum sjúkdómum sem má nánast rekja beint til lífstíls lands- manna og mætti hugsanlega komast hjá í mörgum tilfellum. „Við erum að greiða afar mikið fyr- ir magalyfin og sá kostnaður jókst mikið við bakflæðisvitundarvakn- inguna 2001. Þar teljum við að lyfja- notkunin sé of mikil, bæði sé verið að nota lyfin of lengi og í of stórum skömmtum. Þar langar okkur til þess að fara af stað með átak til þess að minnka notkunina. Ein leið væri að auka kostnaðar- þátttöku sjúklinga, en ég tel árang- ursríkara að koma hinumegin að málinu, að leiðbeina læknum frekar um það hvernig megi minnka neyslu magasjúklinga á þessum lyfjum. Þar kemur landlæknisembættið einnig að, en þar er einmitt verið að ganga frá útgáfu á klínískum leiðbeining- um vegna magalyfja og við þær bind- um við nokkrar vonir,“ segir Inga. „Skynsamlegasta leiðin til þess að draga úr ofneyslu magalyfja væri sjálfsagt tvíþætt: að hvetja lækna til hóflegri lyfjagjafar, en síðan að vekja fóTk til ábyrgðar um eigin heilsu. Það verður ekki hjá því litið að hér er oftast um að ræða neyslu- tengdan lífstílssjúkdóm. Sú leið hef- ur ekki verið reynd að ráði.“ ■ mrmm búk í fiíí niú I kiuiu ymm Ungr kona missir eiginmann sinn vegna veikinda. Hann kemur henni óvænt til aðstoðar eftir andlátið, leiðir hana f gegnum erfiðleikana og kennir henni að Irfa Iffinu á ný. Hugljúf saga, sem lofsyngur ástina, vináttuna og Iffið. Höfundur er 23 gömul, dóttir forsætisréðherra Irlands. Bókin hefur hvarvetna hlotið einróma lof gagnrýnenda og verið þýdd á meira en 30 tungumál. Verkið nýtur sfn vel I stórgóðri þýðingu Sigurðar A. Magnússonar rithöfundar. 'Þessi bók lofsyngur vínáttuna og fjölskylduna, og í lokin skíldi hún eftir hjá mér hlýja og dúnmjúka tilfinníngu' Nadia Lachance, Elle Girl feawMa* sfwlr ai sfina ést d«yr «Wrri /f fjþil A.MBKIC'A mm

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.