blaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 19

blaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 19
blaðið FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 HELGIN 119 í kvöld Ámi Johnsen spenntur fyrir brekkusöng - brekkukórinn ótrúlegt fyrirbœri á Broadway I kvöld kemur fram hinn víðfrægi Sirkus Jim Rose. Hópurinn, sem er vafalaust einn sá vinsælasti í heim- inum, mun leika listir sínar á Broad- way. Hér er á ferðinni furðulegasti sirkus veraldar en sýningin hefur farið sigurför um heiminn sökum afspyrnu fyndinna og vægast sagt frumlegra atriða, en þess má geta að þau hafa hitað upp fyrir ekki ómerk- ari bönd en Korn, Nine Inch Nails og Marilyn Manson. Þá hafa þau verið í Simpson þáttunum og komið fram í The X-files, en hópurinn hefur ver- ið starfandi við góðar undirtektir áhorfenda í ein 15 ár. Jim Rose og viðundrin sem eru með í för lentu á klakanum síðastliðinn mánudag og á ferð sinni um bæinn hafa þau vakið mikla athygli, enda ekki við eina fjölina felld í fram- komu og klæðaburði. Aðspurð segj- ast þau ánægð með land og þjóð og vægast sagt spennt fyrir sýningunni á Broadway, enda í fyrsta skipti sem þau koma hingað. Þau ljúka yf- irstandandi túr sínum á íslandi og vilja því hafa sýninguna sem mest krassandi, að eigin sögn. Hanakamb- ar, járnhlutir í andliti og skrautleg andlitsmálning eru meðal þess sem hópurinn skartar og því forvitnilegt að berja þau augum á sviði Broad- way í kvöld. Auk listahópsin' ætlar hljómsveit- in BRAIN POLICE að spila fyrir gesti, eivþeir munu sjá til þess að all- ir séu í rétta gírnum þegar viðundr- in stíga á stokk. Miða er hægt að nálgast í Skífunni, BT á Akureyri og Selfossi, event.is og í síma 575-1522 en miðaverð er að- eins 2.500 kr og aldurstakmark 18 ár. Húsið opnar kl. 19:00 og sýningin hefst kl. 20:00. ■ Árni Johnsen er annálaður þjóðhá- tíðarmaður, en hann hefur í ein 30 ár staðið fyrir brekkusöngnum sem fram fer í Herjólfsdalnum. Flestir telja brekkusönginn einn stærsta viðburð þjóðhátíðar, enda það atriði sem hvað mest er gert úr og fæstir sem á annað borð fara til Eyja láta fram hjá sér fara. „Þjóðhátíð er alltaf mjög spenn- andi og ég hlakka mikið til,“ segir Árni aðspurður um tilhlökkun fyrir komandi helgi. „Það er frábært að spila fyrir allt þetta fólk og maður er með upp undir 10.000 manna hljóm- sveit að taka undir með sér. Fólk syngur hástöfum með og það eru mörg dæmi þess að fólk sem aldrei hefur sungið uppgötvar að það er stórsöngvari.“ Árni segir brekkukórinn, eða gesti sem taka undir með sér, ótrúlegt fyrirbæri. „Það er alveg dýrlegt að heyra fólkið syngja og t.d. var ekki alls fyrir löngu þjálfaðasta kórfólk landsins að hlusta og táraðist við að heyra í almenningi, sem stóð sig með stakri prýði,“ segir brekkukórs- stjórnandinn sjálfur og bætir við að fólk kunni flest öll lögin sem séu aðallega gömul og góð íslensk þjóð- lög. „Þau þurfa engar leiðbeiningar, söngbæklingurinn er í hjarta hvers og eins og í undirmeðvitundinni,‘ segir hann og bætir við að hann viti að þarna komi fólk frá fjarlægustu landshlutum til þess eins að taka þátt og syngja. „Þetta verður að vanda rúm klukkustund af góðri tónlist og stemningin verður án efa með besta móti, ef ég þekki landann réttsegir Árni að lokum og lofar mikilli skemmtun í dalnum urn helgina. Það verði enginn svikinn af upplifun sem þessari. Verslunarmonna- helgin víðfrœga rennur í garð -helgin sem allir bíða eftir ár hvert Landinn gerir sér jafnan glaðan dag þegar verslunarmannahelgina ber að en þá flykkist fólk milli staða með það fyrir augum að skemmta sér og sínum. Ár hvert er erfitt að segja til um hvar mannmergðin verður sem mest, enda oft sem fólk leitar sólina og fallega veðrið uppi eftir því sem hægt er. Síldarævintýrið á Siglufirði, Kántríhátíð á Skagaströnd, Neista- flug, Bindindismótið í Galtalæk, Ein með öllu á Akureyri, Innipúkinn í Reykjavík og Þjóðhátíð í Eyjum eru meðal hátiða sem eru hvað vin- sælastar auk annarra, en það er um auðugan garð að gresja og eitthvað að finna í flestum landshlutum. Þá eru allflestir staðir með eitthvað í boði þannig að óhætt er að elta gleð- ina um víðan völl án þess að verða fyrir vonbrigðum. B SsBSi _ Þjóðhátíð í Eyjum Þjóðhátíð Vestmannaeyja í Her- jólfsdal hefur verið ein sú vinsæl- asta í áratugi, en hún er arfur frá þjóðhátíðinni árið 1874 þegar hátíð var haldin í dalnum 2.ágúst eins og annars staðar á landinu. Fagna átti þúsund ára afmæli þjóðarinnar á Þing- völlum, en eyjamenn komust ekki upp á fastalandið vegna veðurs og héldu því sína eigin hátíð. Árið 1901 var aftur haldin þjóðhátíð í Eyj- um en hún hefur haldið velli allar götur síðan. Frá því um 1920 hafa íþróttafélögin Þór og Týr annast hátíðahöld en 1996 voru félögin sam- einuð í ÍBV, sem nú sér um hátíðina. Á þjóðhátíð í Eyjum hefur jafnan verið mikið um gleði og hafa þar ým- is sönglög fest rætur, en þeir Árni ég trúi því að hérna verði stór- skemmtileg hátíð Sirkus Jim Rose úr Eyjum, Ási í Bæ og Oddgeir Krist- jánsson höfðu allir veg og vanda af mörgum þeim Eyjalögum sem þekktust eru í dag. Lög þjóðhátíð- ar hafa yfirleitt náð að lifa í hugum fólks og Eyjamenn líta á þau sem arfleifð ......... sem þejr eru st0Uir af. Útihátíð þessi á sér án efa sögulegar rætur og því ekki óeðlilegt hversu fjölmennt er á .......... hátíðinni hvert ár. Páll Scheving, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, segir alltaf jafn mikið um dýrðir á henni þó svo að veðurguðirnir séu mishlið- hollir, enda hafi hún aldrei verið lögð niður sökum leiðindaveðurs. ,Þjóðhátíð hefur alltaf verið haldin frá því hún byrjaði og ótrúleg að- sókn ár hvert,“ segir Páll, og segir hátíðina í ár leggjast afar vel í sig, þá sérstaklega ef veðurspáin gangi eft- ir„. „Það er búið að spá hægviðri alla helgina en lítilsháttar rigning gæti gert vart við sig á laugardeginum, útihátíð með sögu þannig að ég trúi því að hérna verði stórskemmtileg hátíð. Smá væta truflar auðvitað engann.“ Ár hvert flykkjast allmargir til Vestmannaeyja til þess að upplifa stemninguna; flugeldasýningu, brekkusönginn, brennuna og alla þá tónleika sem í boði eru, en um 7-8000 manns heimsækja Eyjar yfir helgina. Það er að vanda mikið um góða tónlist og í ár verður t.d. hægt að berja hljómsveitirnar Grafík og Trabant augum, sem eru helst til ólíkar þeim böndum sem hafa stigið á svið í dalnum. „Við erum svona að- eins að reyna að rokka þetta upp og hafa slíkar hljómsveitir með enda alltaf gaman að krydda dagskrána.“ Páll bætir við að mikið sé um ör- yggisgæslu og að allar komuleiðir til Eyja séu vel vaktaðar svo að fíkniefni komist ekki með í dalinn. „Lögregl- an er ötul við að fylgjast með enda er afar auðvelt fyrir hana að vakta komusvæði hingað. Það er alveg á hreinu að fólk tekur áhættu með því að taka fíkniefni með sér.“ ■

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.