blaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 30
301ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MaAÍA
UEFA-keppnin í kvöld
Keflvíkingar og Etzella frá Lúxem-
burg mætast í kvöld í seinni leik lið-
anna í forkeppni Evrópumóts félags-
liða í knattspyrnu. Keflvíkingar æfla
að leika leikinn á Laugardalsvelli og
hefst hann klukkan 19.15. Stuðn-
ingsaðilar Keflavíkurliðsins ætla að
bjóða öllum ókeypis á leikinn. Fyrri
leik liðanna sem fór fram í Lúxem-
burg lauk með stórsigri Keflavíkur
0-4 og skoraði Hörður Sveinsson öll
mörk Keflavíkur. Það er því nánast
formsatriði fyrir Keflavík að ljúka
þessum leik í kvöld því að liðsmenn
Etzella þurfa að sigra 0-5 til að kom-
ast áfram í 2.umferð forkeppninnar.
(BV á erfiðan leik fyrir höndum
Lið ÍBV verður einnig í eldlínunni
í kvöld í Evrópukeppninni en ÍBV
leikur í Færeyjum gegn B-36. Fyrri
leik liðanna lauk með jafntefli í
eyjum 1-1 og því verður um mjög
erfiðan leik fyrir IBV að ræða í
kvöld. Leikurinn hefst klukkan
17.30. ÍBV leikur án eins síns besta
leikmanns, markvarðarins snjalla
Birkis Kristinssonar, en hann er
meiddur eins og flestum knatt-
spyrnuunnendum er kunnugt um.
Gronkjær til Stuttgart
Danski landsliðsmaðurinn Jesper
Gronkjær sem lék með spænska
hðinu Atletico Madrid á síðasta
keppnistímabih hefur gengið til hðs
við þýska liðið Stuttgart. Frá þessu
var gengið í gær. Gronkjær átti að
fara í læknisskoðun í gærkvöldi hjá
læknum Stuttgart og eftir það átti
að ganga endanlega frá samning-
um. Hann hefur komið víða við
á undanförnum árum og nægir í
því sambandi að nefna Atletico
Madrid, Birmingham og Chelsea
á síðastliðnum tveimur árum.
Unglingalandsmót UMFÍ 2005
29.-31. júlí í Vík
Unglingalandsmót UMFÍ er vímu-
efnalaus fjölskylduhátíð um versl-
unarmannahelgina þar sem börn
og unglingar, 11 - 18 ára taka þátt i
hinum ýmsu íþróttagreinum. Auk
þess er boðið upp á fjölbreytta af-
þreyingu, leiki og skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Fyrsta Unglingalandsmót UMFÍ
var haldið árið 1992. Unglingalands-
mót eru haldin á hverju ári um
verslunarmannahelgina. Unglinga-
landsmótið 2005 verður haldið í Vík
í Mýrdal.
Búist er við á bilinu 7-10 þúsund
keppendum og gestum. Skráning
hófst 1. júlí og fer hún fram á heima-
síðu mótsins www.ulm.is. Öll að-
staða í Vík er hin glæsilegasta og
uppbygging íþróttamannvirkja
hefur staðið þar yfir á síðustu miss-
erum. Nýlokið er við byggingu frjáls-
íþróttavallar þar sem hlaupabrautir
eru lagðar gerviefni. Fyrir á staðn-
um var íþróttahús í fullri stærð og
ekki alls fyrir löngu var tekin í notk-
un ný sundlaug.
Samhliða unglingalandsmótinu
hefur verið reist stærsta tjald lands-
ins, alls rúmir 1300 fermetrar. Tjald-
ið mun hýsa ýmsar uppákomur á
mótinu.
Haefileikakeppni, fitness
og fjölbreytt dagskrá
Á Unglingalandsmótinu verður
keppt í hæfileikakeppni en þar geta
unglingar látið ljós sitt skína með
ýmsum hætti, leikrænni tjáningu,
dansi og fleiru. Á mótinu í Vík verð-
ur í fyrsta skipti keppt í fitness en
þessi iþrótt hefur verið kynnt sem
jaðaríþrótt á undanförnum ung-
lingalandsmótum. Aðrar jaðargrein-
ar verða leikhússport, kíassaklifur
og bogfimi. Samhliða íþróttakeppn-
inni fer fram fjölbreytt skemmtun
og margvísleg afþreying en sérstök
áhersla hefur verið lögð á að skapa
umgjörð fyrir alla fjölskylduna.
Má þar nefna leikjabrautir og leik-
tæki fyrir yngstu börnin og kvöld-
vökur, dansleiki og flugeldasýningu
þegar mótinu lýkur á sunnudags-
kvöldinu. Á meðal þess sem sem
finna má sér sér til skemmtunar á
mótinu eru gönguferðir, leiktækja-
garður, kvöldvökur, flugeldasýn-
ing og dansleikir. Landsþekktir
skemmtikraftar sem og mjnni
spámenn skemmta gestum á kvöld-
vökum unglingalandsmóta. Hildur
Vala syngur við setninguna á föstu-
dagskvöldinu. Auk hennar koma
fram hljómsveitirnar Á móti sól,
Svitabandið og ísafold.
8. Unglingalandsmót UMFÍ
Unglingalandsmótið í ár er nú hald-
ið í áttunda skipti frá árinu 1992, en
þá var það haldið á Dalvík 10. - 12.
júlí. Árið 2000 var gerð áherslubreyt-
ing á mótinu, en þá var það í fyrsta
skipti haldið um verslunarmanna-
helgina. Þeirri brey tingu hefur verið
mjög vel tekið af landsmönnum.
Frá upphafi unglingalandsmóta
frá því að vera nánast eingöngu
47 mál hjá Aganefnd KSÍ
Aganefnd Knattspyrnusambands ís-
lands kom síðdegis á þriðjudag sam-
an til síns vikulega fundar en fyrir
nefndinni lágu 47 mál einstaklinga
og 8 mál þar sem félög voru sektuð.
Fimm leikmenn úr Landsbankadeild
karla í knattspyrnu voru úrskurðað-
ir í leikbann og allir fengu þeir eins
leiks bann. Davíð Þór Viðarsson úr
FH, Vestmannaeyingarnir Andri Ól-
afsson og Heimir Snær Guðmunds-
son og KR-ingarnir Sölvi Sturluson
og Bjarnólfur Lárusson. Fimm leik-
menn úr í.deild voru úrskurðaðir í
eins leiks bann hver um sig. Andri
Valur Ivarsson og Baldvin Jón Hall-
grímsson úr Völsungi frá Húsavík,
Guðmann Þórisson úr Breiðabliki
og Randver Sigurjónsson og Hörð-
ur Bjarnason úr Víkingi Reykjavík.
íþróttakeppni fyrir aðildarfélög UM-
Fl hefur mótið þróast út í að vera ein
stærsta skipulagða fjölskylduhátíðin
sem haldin er um verslunarmanna-
helgina á hverju ári. I dag geta öll
börn og unglingar á aldrinum 11
-18 ára tekið virkan þátt í unglinga-
landsmóti UMFÍ 2005.
Reynsla frá fyrri unglingalands-
mótum UMFÍ, þar sem mótið hefur
skapað sér það stóran sess og virð-
ingu allra sem að koma, að það hefur
ekki þurft að nefna það neitt sérstak-
lega að mótið sé algerlega vímuefna-
laust, það gerir fólkið sjálft sem þar
kemur, því það er mjög meðvitað
um tilgang og markmið unglinga-
landsmóta og vilja fá tækifæri til að
upplifa eitthvað jákvætt og einstakt,
gleði og vináttu.
Tilkynnt um mótstað 2007
- mikil spenna í loftinu
Unglingalandsmótið 2006 verður
haldið á Laugum í Þingeyjarsýslu og
hafa framkvæmdaaðilar nú þegar
hafið undirbúning. Þar var á dögun-
um tekin ný og glæsileg sundlaug í
notkun sem mun nýtast fyrir mótið.
Meiri uppbygging er fyrirhuguð og
verður m.a. gerður nýr frjálsíþrótta-
völlur.
Á setningu mótsins í Vík í Mýr-
dal á föstudagskvöldið mun Björn
Bjarndal Jónsson, formaður UMFÍ,
tilkynna hvar Unglingalandsmót-
ið 2007 verður haldið. Mjög mikil
spenna er um það hvar mótið verð-
ur haldið en þrír aðilar berjast um
að halda það og eru þeir eftirtaldir:
Þorlákshöfn, framkvæmdaaðili
HSK, Hornafjörður, framkvæmdaað-
ili USÓ, og Blönduós þar sem fram-
kvæmdaaðili er USAH. ■
Að auki var aðstoðarþjálfari Knatt-
spyrnufélags Siglufjarðar, Brynjar
Harðarson úrskurðaður í eins leiks
bann vegna brottvísunar og KS var
dæmt i 10.000 króna sekt vegna
hegðunar Brynjars. Knattspyrnulið
Afríku og GG
voru
12.000
dæmd til
króna
sektargreiðslu
hvort félag
vegna 12 refsi-
stiga.
KSI
Vinningar frá:
open - golfmót 2005
Mótið fer fram mánudaginn 1. ágúst hjá golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ.
Mótið er punktakeppni með forgjöf.
5 efstu sætin fá glæsileg verðlaun auk verðlaunagripa.
Nándarverðlaun og lengsta teighöggið.
Dregið úr skorkortum í mótslok.
Skráning á www.golf.is
/A
&JÖ
M. Ms<*S KFC Iffl
Venezúela
kemur ekki
til íslands
Það eru ekki margir dagar síðan
að forystumenn KSÍ tilkynntu að
náðst hefði samkomulag við lands-
lið Venezúela og Póllands um lands-
leiki í ágústmánuði og október. I
hádeginu í gær greindi RÚV frá því
að líklega yrði ekkert af landsleik
íslands og Venezúela þar sem Suður-
Ameríkumennirnir hefðu bókað sig
á leik gegn Ekvador um svipað leiti.
Umboðsmaður KSÍ staðfesti þetta
við framkvæmdastjóra KSl síðdeg-
is í gær. Venezúela kemur sem sagt
ekki til íslands. „Þetta eru mikil
vonbrigði fyrir okkur og við höfð-
um þegar hafið undirbúning fyrir
þennan leik,” sagði Geir Þorsteins-
son framkvæmdastjóri KSÍ í sam-
tali við Blaðið. „Það er lítill tími til
stefnu og ekki miklar líkur á að við
fáum leik í staðinn þann íyágúst en
aldrei að segja aldrei. Hlutirnir ger-
ast stundum hratt en við ætlum að
fara á fullt í málið á næstu dögum.
Við vonum það besta en svona er
fótboltinn. Það er alltaf eitthvað að
koma manni á óvart í þessu“, sagði
Geir Þorsteinsson. ■
Genóa dæmt niður
íC-deildina
ítalska félagið Genóa sem er ffá
samnefndri borg, hefur verið dæmt
niður um tvær deildir af ítalska
ólympíusambandinu. Genóa, sem
vann sér á vormánuðum rétt til þátt-
töku í A-deildinni á næstu leiktið
með 3-2 sigri á Venezia í fyrsta sinn
í 10 ár, er dæmt niður um tvær deild-
ir vegna hagræðingar á úrslitum í
síðasta leik liðsins gegn Venezia. Að
auki er um mikla
fjármálaóreiðu að
ræða hjá félaginu.
Genóa skuldar
stórfé og að auki
eiga leikmenn liðs-
ins inni margra
mánaða laun hjá
félaginu. Forseti
Genóa, Enrico Prezi-
osi og framkvæmdastjóri, Stefano
Capozucca, voru dæmdir í 5 ára
keppnisbann og stranglega bannað
að koma nálægt knattspyrnufélagi á
þeim tíma. Framkvæmdastjóri Ven-
ezia og tveir leikmenn þess liðs voru
einnig dæmdir í keppnisbann. Leik-
mennirnir, Massimo Borgobello og
Martin Lejsal fengu 5 og 6 mánaða
keppnisbann. Málið er litið mjög
alvarlegum augum á Ítalíu og stuðn-
ingsmenn Genóa-liðsins eru brjál-
aðir þessa dagana vegna málsins og
krefjast þess að öll stjórn félagsins
segi af sér. Deildarkeppnin á Italíu
í A-deildinni hefst 28.ágúst og ætlar
Genóa að áfrýja áðurnefndum dómi.
Skagamenn
ásigurbraut
23,júní töpuðu Skagamenn fyrir FH
á Kaplakrikavelli, lokatölur 2-0, og
þá voru þeir gulu og glöðu ekki
að spila vel. Olafur Jóhannesson
þjálfari FH lét hafa eftir sér að þeim
leik loknum að ÍA hefði komið til
að spila allt annað en fótbolta. Efitir
þennan leik hefur blaðinu verið
snúið við á Akranesi og af síðustu
fjórum leikjum f Landsbankadeild-
inni hafa þrír unnist og einn hefur
endað með jafntefli. I þessum fjór-
um leikjum heftir ÍA skorað 7 mörk
og fengið aðeins 1 stig á sig. I tólftu
umferð fóru liðsmenn ÍA til Grinda-
víkur. Þar voru heimamenn án Óla
Stefáns Flóventssonar sem var í
leikbanni. Eftir 23 mfnútur voru
Skagamenn komnir í 0-1 með marki
frá Hirti Hjartarsyni. Þannig stóðu
leikar allt þar til á þriðju mínútu
seinni hálfleiks að Andri Júlíusson
skoraði ágætismark, 0-2. Á 66.mín-
útu var Robert Niestroj leikmaður
Grindavíkur rekinn af leikvelli
fyrir grófit brot úti á miðjum velli
og skagamenn fengu aukaspyrnu.
Boltinn var sendur inní vítateiginn
þar sem Helgi Pétur Magnússon
skoraði eftir að vörn Grindavíkur
hafði alls ekki verið með á nótunum
þrátt fyrir að hafa fengið tækifæri á
að hreinsa boltann í burtu, 0-3. Sjö
mínútum fyrir leikslok minnkuðu
heimamenn muninn og þar var að
verki Mounir Abandour en þá léku
Grindvíkingar tveimur leikmönn-
um færri þar sem Milan Stefán
Jankovich þjálfari hafði notað allar
þrjár skiptingar sínar og einn leik-
manna liðsins meiddist og varð að
fara af velli. Lokatölur 1-3.
Skagamenn eru því
komnir með 17 stig
Í5.sæti eðajafn-
mörg stig og Fylkir
sem er í fjórða sæti
en bæði lið hafa
leikið 11 leiki. Grind-
víkingar hafa 9 stig í
11 leikjum og eru í neðsta
sæti Landsbankadeildarinnar.
Næsti leikur ÍA verður á útivelli
gegn Fylki sunnudaginn yág-
úst. Næsti leikur Grindavfkur
verður í Vestmannaeyjum gegn
ÍBV sunnudaginn 7.ágúst. ■