blaðið - 02.08.2005, Side 2
2 I IWNLEWDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 blaðÍA
Bryndís út -
Ingibjörg inn
Bryndls Hlöðversdóttir, þingmaður
Samfyikingarinnarlétafþingmennsku
í gær, en hún var þriðji þingmaður
Reykjavíkurkjördæmis norður. Hún
afsalaði sér þingmennsku frá og með
í. ágúst með bréfi sem hún sendi for-
seta Alþingis 26. júlí síðastliðinn. Það
var stór dagur hjá Bryndísi í gær, því
ásamt því að hætta þingmennsku, tók
hún við starfi deildarforseta lagadeild-
ar Viðskiptaskólans á Bifföst.
Það er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, sem tek-
ur sæti Bryndísar á Alþingi. g
Enn ein
breytingin
hjá Strætó
Strætó sendi í gær frá sér tilkynningu
um að breytingar verði á þjónustu
Strætó á stofnleiðum alla þessa viku.
Þar segir að á álagstimum verði ekið á
20 mínútna fresti í stað 10 mínútna og
að nk. laugardag verði ekið á 30 mín-
útna fresti í stað 20 mínútna. Leiða-
bókin muni þó gilda að öllu leyti nema
hvað álagstíma stofnleiða varðar.
Samkvæmt tilkynningunni eru
tvær ástæður fyrir breytingunni nú.
Annarsvegar er um að ræða skort
á mannskap vegna sumarfría vagn-
stjóra en í ofanálag hafi vagnstjórum
fjölgað með breytingum á leiðakerfi
Stætó.
Sem sagt - ferðir strætó verða færri
þessa viku vegna þess að bílstjóra vant-
ar.
Þeir sem hyggjast nota strætó en
vilja fá frekari upplýsingar geta hringt
í þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800
1199.
Sameining Landsbanka,
Straums og Buröaráss
Sameiningarviðræður milli
Landsbankans og fjárfest-
ingafélaganna Straums og
Burðaráss hafa staðið yfir um
helgina og var samþykkkt að
leggja sameiningu Burðaráss við
Landsbankann annars vegar og
Straum fjárfestingarbanka hins
vegar. Gert er ráð fyrir að nafn fjár-
festingarbankans verði Straumur-
Burðarás fjárfestingarbanki hf.
Þetta er í fyrsta skipti sem skráð
félag í Kauphöll íslands er sameinað
tveimur félögum. Stjórnendur hjá
þessum fyrirtækjum vildu í engu
svara spurningum fjölmiðla um
málið í gærkvöldi.
Markmið sameininganna er að
mynda enn stærri og öflugri fjár-
málafyrirtæki, sem eru í stakk
búin til þess að takast á við breyttar
aðstæður í banka- og fjárfestingar-
starfsemi og metnaðarfull verkefni
á alþjóðavettvangi.
Sameiningin á að skila stækkuð-
um efnahag og sterkari einingu.
Hagnaður Landsbanka, Straums
og Burðaráss var afar góður á fyrri
hluta ársins. Landsbankinn hagn-
aðist um 11 miljarða eftir skatta,
Straumur um tæpa 8 miljarða og
Burðaráss um rúma 24 miljarðar
sem er einn mesti hagnaður íslensks
fyrirtækis fyrr og síðar.
Félögin þrjú hafa öll tengst átök-
um um eignarhald íslandsbanka
undanfarin misserin og hugsan-
legum samruna Landsbanka og Is-
landsbanka, en Landsbankamenn
hafa verið mjög áfram um slíkt þó
áhuginn sé dræmari inn við Kirkju-
sand. Straumur á nú ríflega 21% hlut
í Islandsbanka og Burðarás um 8%
hlut þannig að nýtt félag myndi þá
eiga tæplega þriðjungs hlut í íslands-
banka. ■
Fjármálaeftirlitið kannar málefni Sparisjóðs Hafnarfjarðar
Þjófnaður í beinni
segir Lúðvík Bergvinsson
w
>'
$
$
$
Tölvunám í viðurkenndum skóla
Heimasíðugerð
fyrirbömogunglinga
Skemmtilegt námskeið um vefsíðugerö,
myndvinnslu fyrir vefinn, gestabækur,
blogg og fleira.
Tveggja vikna námskeíð á morgnana
hefst 8. ágúst. VerS20.900.
TÖLVU- OG
VERKFRÆÐIMÓNUSTAN
Tölvusumarskólinn
Sími 520 9000 • www.tv.is
Fjármálaeftirlitið kannar nú hvort
myndast hafi virkur eignarhluti
í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Þetta
staðfesti Jónas Fr. Jónsson, nýráð-
inn forstjóri Fjármálaeftirlitsins í
samtali við Blaðið í gær, en sagðist
ennfremur ekkert geta tjáð sig frek-
ar um málið.
Sigurður G. Guðjónsson (einn eig-
enda Blaðsins), er einn þeirra sem
nýlega hefur fest kaup á stofnfjár-
hlut í Sparisjóðnum. Hann segist
hafa móttekið bréf frá Fjármálaeftir-
Iitinu þann 26. júlí síðastliðinn þar
sem spurt er útí ástæður fyrir kaup-
unum sem og farið er fram á að fá
afrit af kaupsamningi. Ennfremur
er spurt útí hvort hann sé bundinn
einhverjum samningum fyrir aðal-
fund, eða hvort virkur eignarhluti
hafi myndast. Sigurður segir að í
bréfinu séu spurningar um mál sem
hann sjái ekki að komi Fjármálaeftir-
litinu við eins og ástæður kaupanna.
Hann hyggst skila inn svari til eftir-
litsins fyrir klukkan 15.00 í dag.
Eiga stofnfiáreigendur sjóðinn?
Málefni Sparisjóðs Hafnarfjarðar
hafa verið nokkuð til umræðu að
I ”
.11 1^^.
m 'TT'
„það er ódýrt og einfalt
að framkalla stafrænar
myndir hjá okkur
J&S'M tWiinf/AS Alfabakka 14 s. 557 4070
’W'mfNwww.myndval.is
undanförnu. Hart hefur verið tek-
ist á um hann og um stofnfjárhluti
i sjóðnum sem seldir hafa verið fyrir
allt að 50 milljónir króna. Þeir sem
keypt hafa stofnfjárhluti virðast líta
þannig á að þeir sem stjórna þeim,
stjórni sjóðnum, og með þvi að
kaupa stofnfjárbréf sé í ra un hægt
að kaupa Sparisjóðinn sjálfan. Lúð-
vík Bergvinsson segir þetta aðför að
sjóðnum og að í raun sé þetta eins
og „rán í beinni útsendingu“.
„Þetta er sorglegt dæmi um þá
græðgi og bíræfni sem menn sýna
til að komast yfir fjármuni sem þeir
eiga ekki,“ segir Lúðvík.
Löggjafinn á að bregðast vlð
Hann bendir á að stofnfjárbréf hafi
verið seld handvöldum og fámenn-
um hópi.
„Ég lít þannig á að þessum aðilum
hafi fyrst og fremst verið falin varð-
veisla og stjórn félagsins“.
Nú virðast menn líta þannig á að
þeir séu eigendur sjóðsins fremur
en umsjónarmenn. Lúðvík segir að
þessir menn hafi aldrei lagt neitt
undir, og aldrei tekið neina áhættu,
en geti nú selt með óheyrilegum
hagnaði.
„Ekki svo að ég skilji ekki þessa
aðila. Ef einhver kæmi til mín og
segðist vilja kaupa útidyrahurðina á
100 milljónir myndi ég selja. Það er
hinsvegar mjög alvarlegt ef löggjaf-
inn ætlar að láta þetta rán fara hjá
án þess að grípa til ráðstafana“. Lúð-
vík segist ætla að taka málið upp á
alþingi á hausti komanda. _
Mótmœlendur við Kárahnjúka
Fóru inn á stórhættulegt
vinnusvæði
Sjö manna hópur íslenskra og er-
lendra mótmælenda, sem nú dvelja
á landi Vaðs í Skriðdal fór inn á
vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar í
gær og hengdu upp mótmælaborða.
Borðinn var hengdur upp á norður-
vegg aðalstíflu Kárahnjúkavirkjun-
ar. Að sögn Ómars Valdimarssonar,
upplýsingafulltrúa Impregilo, lítur
fyrirtækið þetta mjög alvarlegum
augum.
„Þarna er farið inn á mjög hættu-
legt svæði, og þó að engar fram-
kvæmdir séu nákvæmlega þar sem
borðinn var hengdur upp, þurfti
fólkið að fara í gegnum fram-
kvæmdasvæði stíflunnar.“
Hann segir ennfremur að þó
vinna fari ekki þarna fram, þar sem
borðanum hafi verið komið fyrir, sé
hætta á grjóthruni á svæðinu og það
því hættulegt.
Ómar gerir ráð fyrir að fólkið
verði kært fyrir uppátækið.
Hópurinn var handtekinn af lög-
reglunni á Egilsstöðum í gær, en þeg-
ar Blaðið fór í prentun lá ekki fyrir
hvort það myndi gista fangaklefa
lögreglu í nótt.
Hundruð
fastir i
Eyjum
Nokkrar tafir urðu á flugi til og
frá Vestmannaeyjum í gær vegna
þoku. Mestu vandræðin voru í
tengslum við flug til og frá Bakka-
flugvelli, og síðdegis í gær höfðu
aðeins 300 af þeim 850 farþegum
sem áttu bókað flug þangað kom-
ist leiðar sinnar, en ófært var á
flugleiðinni frá þvi klukkan tvö í
gær.
Flug til og frá Reykjavík gekk
örlítið betur enda flugvélar sem
mega fljúga blindflug á þeirri
leið. Um klukkan sex stöðvaðist
hinsvegar allt flug milli Reykja-
víkur og Eyja. Búist er við að um
500 þjóðhátíðargestir hafi verið
strandaglópar í Vestmannaeyjum
í nótt vegna þessa.
Vont veður var í Vestmannaeyj-
um í gær, rok og rigning, og fengu
þeir sem ekki komust leiðar sinn-
ar að koma sér fyrir í íþróttamið-
stöðinni í Eyjum. n
Afalla-
lítið á
Akureyri
Aðstandendur hátíðarinnar Ein með
öllu á Akureyri sögðust í samtali við
Blaðið í gær vera nánst klökkir yfir
því hversu vel hefði gengið nyrðra
um helgina. Gera þeir ráð fyrir að
10 til 12 þúsund gestir hafi verið í
bænum um helgina, og að þegar
einnig sé gert ráð fyrir heimamönn-
um megi búast við að 20 til 25 þús-
und manns hafi verið á Akureyri
um helgina. Miðað við fjöldann fór
allt áfallalítið fram þó auðvitað hafi
í ýmsu verið að snúast hjá lögreglu
og gæslufólki. I gær höfðu til að
mynda alls komið upp 24 fíkniefna-
mál, 47 verið teknir fyrir of hraðan
akstur og 9 fyrir ölvun við akstur.
Einhverjar ryskingar urðu á hátíð-
inni og á sunnudag var t.d. tilkynnt
um 5 líkamsárásir en ekki hlutust
mikil meiðsl í þeim og óvíst með eft-
irmála vegna þeirra.
Að sögn Braga Bergmann, eins for-
svarsmanns hátíðarinnar, má segja
að þetta hafi verið áfallalítið miðað
við fjöldann. Til vitnis um mann-
fjöldann á svæðinu var aðsókarmet
slegið á Akureyrarvelli á sunnudag-
inn, þegar um 16 þúsund manns
flykktust á kvöldvöku.
O Heiftsklrt (3 Léttskýjað Skýjað 0 Alskýjað /J Rignlng, MtaMttar '///, Rlonlng y Súld Sniókoma jj Slydda jj Snjóél
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Oriando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Oublln
Glasgow
18
24
23
23
23
18
21
19
20
25
27
21
24
26
18
21
19
13
28
26
17
16
/ /
„/ /
/ '
11°
14c
40
13°
12oW
r
130 /'/,
♦©///
// /
///
///
10°
///.,
’ið11
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Vedurstofu fslands
11°
* C4
12°' '
l morgun
///
///
///
11°