blaðið - 02.08.2005, Page 16
16 I VEIÐI
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005 blaöiö
Veiðikortið í Pingvallavatni
„Það er búið að semja um aðild Þing-
vallavatns fyrir landi þjóðgarðsins
af Veiðikortinu, frá og með 2006.
Handhafar Veiðikortsins geta sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi Veiði-
kortsins við Þingvallanefnd veitt í
vatninu frá og með 1. ágúst núna,“
sagði Ingimundur Bergsson í sam-
tali við Blaðið, en áður hefur verið
greint frá því á þessum stað að slíkt
væri í burðarliðnum.
„Þingvallavatn er kærkomin við-
bót við þau 20 vötn sem korthafar
geta nú veitt í en við Þingvallavatn
fyrir landi þjóðgarðsins, er nýlega
búið að stórbæta aðstöðu fyrir veiði-
menn með tveimur smáhýsum við
Vatnskotið. En þar má finna ný
salerni og aðstöðu fyrir veiðimenn.
Einnig verður sett þar upp sér að-
staða til að gera að aflanum,“ sagði
Ingimundur ennfremur.
Veiðin hefur verið ágæt í Þing-
vallavatni. Einn og einn vænn er
að veiðast í vatninu og svo auðvitað
murtan sem alltaf er að gefa sig.
Ingimundur Bergsson meö fallegan
urriða en hann er mjög hress með að hafa
náð Þingvailavatni, fyrir veiðimenn með
Veiðikortið.
Jack Nicklaus
að veiðum
Hinn heimsfrægi golfleikari Jack
Nicklaus kom um helgina til veiða
á Islandi en hann hefur oft komið
hingað áður. Oftast hefur hann
rennt fyrir fisk í Laxá f Dölum, en
hann hefur líka reynt fyrir sér í
Norðurá í Borgarfirði og þar hefur
hann verið hin seinni ár. Nicklaus
þykir fimur með stöngina eins og
með golfkylfuna. Synir hans eru
með honum í för.
Sportvörugerðín hf.,
*>k i t>fiol t 5. 5(>2 H3»3.
Þverá í Borgarfirði:
Aflahœst núna
Þverá í Borgarfirði hefur gefið
flesta laxana í sumar eða 2500, Norð-
urá í Borgarfirði hefur gefið um 2300
laxa, síðan kemur Eystri-Rangá með
1500 laxa , svo Blanda með um 1000
laxa, næst Langá á Mýrum, sem
hefur gefið 755 laxa og Haffjarðará
hefur gefið um 700 laxa. Rétt fyrir
neðan eru Grímsá, Laxá í Kjós, Ytri-
Rangá og Elliðaárnar.
Laxveiðiárnar stórbæta sig marg-
ar hverjar á milli ára. Laxar eru
ennþá að ganga í þær og það er einn
stærsti straumur ársins núna eftir
helgina.
„Það eru komnir 409 laxar á land
í Leirvogsá og það hafa farið 1500 í
gegnum teljarann hjá okkur,“ sagði
Skúli Skarphéðinsson veiðivörður
í Leirvogsá, er við könnuðum stöð-
una í ánni.
HolgerTorp með 12 laxa og 2 sjóbirtinga
á tveimur og hálfum tima i Kerfossi í Álftá
á Mýrum, við kjöraðstæður eftir miklar
rigningar.
„Hann á að fara að að rigna og það
gæti hleypt lífi í veiðina en vatnið er
orðið heldur lítið núna,“ sagði Skúli
í lokin.
„Við vorum að koma úr Álftá á Mýr-
um í síðustu viku og fengum fína
veiði, þetta voru kjöraðstæður þarna
við ána og fiskurinn tókgrimmt. Síð-
asta morguninn fengum við 17 laxa
úr Kerfossinum," sagði Snorri Tóm-
asson, en hann var á veiðislóðum.
„Við fengum 23 laxa og töluvert af
sjóbirtingi, fiskurinn tók grimmt
hjá okkur, við þessar fínu aðstæður
sem voru þarna við Álftá þennan
dag,“ sagði Snorri ennfremur.
Fallegir laxar úr Álftá á
Mýrum.
Veiðiskapurinn gengur ágætlega,
veiðimenn hafa verið að fá góða
veiði og laxinn er fýrir hendi í veiði-
ánum.
Veiðimaður kastaði grimmt á Mið-
fellsfljótið í Laxá í Leirársveit í fyrra-
dag en laxinn var tregur, þrátt fyrir
að lax stykki á mínútu fresti í hyln-
um. Það var mikið af fiski í ánni.
Veiðimenn sem voru að koma úr
Krossá á Skarðsströnd, veiddu 12
laxa og góður gangur hefur verið
í Búðardalsá og Flekkudalsánni.
Glerá í Dölum hefur gefið fáeina
laxa.
Sérfræfiingar
í fluguveiOi
Maelum stangir,
splæsum lfnur
og setjum upp.
Eitt kort
20 vatnasvæði
VEIÐIKORTIÐ
ípCORTH)
fe
•*«
tsso