blaðið - 24.08.2005, Síða 2

blaðið - 24.08.2005, Síða 2
2 I IWWLEWDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaöiö BÍLAÞING HEKLU A'iínier eitt i iutliiAiin /hIiiiii Kletthálsi 11 Laugavegi 174 sími 590 5040 www.bilathing.is Hagnaður Eskju eykst milll ára Eskja hf. á Eskifirði var rekin með um 260 milljón króna hagnaði á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður fé- lagsins um 228 milljónum. Þetta kemur fram i sex mánaða uppgiöri sem Eskja birti fyrr í vikunni. I til- kynningu frá félaginu vegna þessa segir: „Rekstur félagsins út árið ræðst mjög af hvernig kolmunnaveiði og -vinnslu miðar á síðari hluta árs en veiðar júlí og ágúst eru und- ir áætlunum félagsins. Afurðaverð á mörkuðum ásamt gengi íslensku krónunnar munu einnig hafa mik- il áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins. Mjölverð hefur farið hækkandi á síð- ustu mánuðum." loftkœling VerÓ fró 49.900 án vsk. ís-húsid 566 6000 Varnarliðið: Um 200 uppsagnir a tveimur arum „Að meðtöldum þeim 13 sem áætlað er að segja þurfi upp um þessi mán- aðamót hefur 200 manns verið sagt upp hjá varnarliðinu síðan í októb- er 2003.” Svona hljóðar svar varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli við fyrirspurn Blaðsins um það hversu margir hefðu misst vinnu hjá varn- arliðinu á undanförnum árum. I gær var sagt frá uppsögnum á um- ræddum 13 starfsmönnum sem vinna flestir í snjóruðningsdeild varnarliðsins. Varnarliðið ber ábyrgð „Þetta eru svakalegar tölur”, sagði Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur þegar haft var samband við hann í gær. „Ég hef alltaf haldið því fram að varnarliðið bæri atvinnupólit- íska ábyrgð á svæðinu. Þeir hafa sogað til sín allt vinnuafl og aðrir atvinnuvegir á svæðinu hafa liðið fyrir það“, segir Kristján ennfrem- ur. Hann bendir á að uppsagnar- hrinan hafi hafist fyrir um tveim- ur árum og komið beint í kjölfarið af miklu uppbyggingartímabili á Þrettán starfsmenn varnarliðsins munu um næstu mánaðamót bætast í stóran hóp manna sem misst hafa vinnuna hjá varnarliðinu vellinum. Það hafi ennþá erfiðara. gert ástandið Stjórnvöld ekki að standa sig Kristján er ennfremur á því að þetta verði ekki síðustu uppsagnir hjá varn- arliðinu. Hann bendir á að Bandaríkja- her hafi verið að loka herstöðvum um allan heim og meðal annars heima við. Dæmi séu um að þúsundir ein- staklinga hafi misst vinnuna við slík- ar aðgerðir sem augljóslega hafi verið ákaflega umdeildar heima fyrir. „Mér finnst að mikið skorti á að stjórnvöld hér á landi taki heildstætt á málinu og finnst menn þar á bæ nálg- ast málið í allt of mikilli nauðvörn. Það vantar fr amtíðarsýn og stjórnvöld eiga að vera ákveðnari við Bandaríkja- menn um að lögð verði fram ákveðin plön til framtíðar. Ég veit ekki hvort þetta er feimni eða undirlægjuháttur við þá en niðurstaðan er aftur og aftur sú að við stöndum frammi fyrir orðn- um hlut“, segir Kristján. Vinaböndin ekki alltaf á vegum vinanna Svonefnd „vinabönd“ eða „tryggð- arbönd“ hafa orðið afar vinsæl und- anfarna mánuði, en þau eru gúmmí- armbönd sem fólk ber um úlnliðinn, yfirleitt til stuðnings einhverju til- teknu málefni. Erlendis hefur orðið verulegur misbrestur á því að ágóðinn skili sér til þess málefnis, sem böndin eiga að styrkja, og er t.d. talið að í Ðan- T Ert þú einn afþeim sem átt stafræna upptökuvél og langar til að læra að vinna efnið og gera það sem sölumaðurinn sagði að hægt væri að gera? Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á undirstöðuatriðum myndbandsgerðar allt frá því að breyta hugmynd í handrit og fínpússa myndbönd með ýmsum effektum. Nemendur verða að hafa góða almenna tölvukunnáttu og æskilegt er að nemendur eigi eða hafi aðgang að stafrænni tökuvél. Kennt er á Premiere klippiforritið frá Adobe sem er eitt visælasta forritið á markaðnum í dag. Kvöldnámskeið Mán. & mið. 18-22 og laugard. frá 13 - 17 Byrjar 3. og lýkur 14. sept. UPPLÝSINCAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS mörku sé um 80% allra slíkra banda framleidd og seld sem tískuvarningur án þess að uppgeftn málefni uppskeri eyri af. Hlutfallið er engan veginn hið sama hér á landi, en þó hefur borið nokkuð á böndum, sem eiga að tákna stuðn- ing við hin ólíku málefni, án þess að nokkuð sé vitað um upprunann. Þá má víða finna netverslanir, sem höndla með bönd af þessu tagi, en þar er nær undantekningalaust um fjárplógsstarfsemi að ræða. í þeim tilvikum felst stuðningurinn við F málefnið ekki í neinu öðru en vel- líðunartilfinningu þess, sem það ber. Gildi lögmál framboðs og eft- irspurnar á þessum markaði sem öðrum má þó ætla að raunveru- leg góðgerðarsamtök verði af ein- hverjum fjármunum, sem renna í vasa framleiðenda armbanda með óljósari tilgang. Hér á landi hefur mest borið á böndum á vegum Krabba meinsfélagsins, sem seld eru á bensínstöðvum Esso og öðrum á vegum stúlkna- hljómsveitarinnar Nylon, sem seld eru til stuðn- ings krabbameinsveik- um börnum í samstarfi við Select og Fanta. Þessi bönd eru vendilega merkt ogþarf enginn að efast um að ágóðinn af sölu þeirra berist á réttan stað og komi að góðum notum. Tískubólu þessa má rekja til banda- ríska hjólreiðakappans Lance Arm- strong, sem sigraðist á krabbameini og útbreiddi gula armbandið til stuðn- ings krabbameinsrannsóknum. Önn- ur samtök og þrýstihópar hafa bæst í hópinn svo tugum skiptir og helgar hvert málefni sér jafnan lit eða litasamsetningar. Þannig táknar svart og hvítt baráttu gegn kynþátta- misrétti, hvítt er gegn fátækt, bleiktgegnbrjósta- krabba, blátt getur verið gegn einelti, ljósblátt með friðar- baráttu, rautt getur verið til stuðnings fórnarlömbum flóð- bylgjunnar í Asíu, al- næmissjúkum, Bush Bandaríkjaforseta eða fótboltaklúbbnum Li- verpool. Kaupmáttur launa hefur aukist að undanförnu Laun á íslandi hafa hækkað um 6,6% að meðaltali undanfarna 12 mánuði samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Islands. Þar kemur ennfremur fram að launavísitala í júlí hækkaði um 0,4%. 1 Morgun- korni Islandsbanka segir að kaup- máttur launa hafi vaxið hér á landi að undanförnu þrátt fyrir aukna verðbólgu. „Stuðlar það að enn frekari vexti einkaneyslu sem hefur verið umtals- verður á síðustu misserum“, segir í Morgunkorninu. Þar kemur enn- fremur fram að á sama tíma og laun hafi hækkað um tæp 7% hafi verð- lag hækkað um 3,5%. Aukið launaskrið í Morgunkorni íslandsbanka segir ennfremur: „Spenna ríkir á íslensk- um atvinnumarkaði. Eftirspurn er vaxandi og atvinnuleysi í landinu er mjög lítið eða aðeins um 2% af vinnuafli. Aukið launaskrið mun því að öllum líkindum gera vart við sig á næstu mánuðum og misserum en það táknar kostnaðarauka hjá fyrirtækjum í landinu.“ ■ Einkaflugvél nauðlenti í Mosfellsdal Tveggja sæta eins hreyfils flugvél af gerðinni Cessná 150 nauðlenti á veg- inum við Laxnes í Mosfellsdal í gær- morgun. Flugmaðurinn var einn um borð og sakaði hann ekki og lend- ingin gekk vel. Þegar vélin var yfir Mosfellsdal á leið til Reykjavíkur sendi flugmaðurinn út neyðarkall og sagði að hreyfill flugvélarinnar hefði misst afl. Skömmu síðar til- kynnti flugmaðurinn að hann væri lentur á veginum við Laxnes. B Samskip í útrás Samskip hafa opnað skrifstofu í Ho Chi Minh borg í Víetnam og er hún fjórða skrifstofa félagsins í Asíu. Fyrir eru skrifstofur einnig í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao og Dalian í Kína. Rekstur nýju skrif- stofunnar heyrir undir aðalskrif- stofu Samskipa í Pusan og verða þrír starfsmenn á henni til að byrja með. Flutningar á frystum fiski eru meginverkefni skrifstofa Samskipa í Asíu og hefur starfsemin gengið mjög vel að sögn Samskipa allt frá opnun fyrstu skrifstofunnar í Pus- an í febrúar árið 2003. 0Heiískírt (3 Léttsltýjaö l^þ Skýjað 0 Alskýjað /ý Rignlng, litiisháttar /// Rignlng 9 9 Súld /// ^ Snjókoma Amsterdam 20 Barcelona 25 Berlín 20 Chicago 16 Frankfurt 22 Hamborg 18 Helsinki 20 Kaupmannahöfn 19 London 16 Madrid 30 Mallorka 27 Montreal 15 New York 22 Orlando 25 Osló 18 París 21 Stokkhólmur 21 Þórshöfn 12 Vín 20 Algarve 28 Dublin 17 Glasgow 15 Slydda Snjóéi ■ 10° o 1°°C^ r5 // /// 12° +*'//, 10°/// 12' /// /// t yi1° 10c Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands o "0 ,0 Imorgun //'í / //

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.