blaðið - 24.08.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaöið
Enn dregst að írakar
fái stjómarskrá
íraska þingið fékk drög að nýrri
stjórnarskrá landsins í hendur
á mánudagskvöld en þá rann út
frestur stjórnarskrárnefndar til
að skila af sér skránni. Nefnd-
inni hefur verið veittur þriggja
daga aukafrestur sem rennur út á
morgun en áður hafði nefndinni
verið veittur vikufrestur til að
klára verkið.
Útilokaðir frá viðræðum
Ágreiningur við leiðtoga súnní-mús-
lima varð til þess að ekki tókst að
klára stjórnarskrána fyrir mánudag
að sögn leiðtoga shíta og kúrda. Leið-
togi súnní-múslima, sem er minni-
hlutahópur í írak, var útilokaður
frá samningum ríkisstjórnarinnar
mestan hluta vikunnar ásamt öðr-
um minnihlutahópi sem er undir
stjórn fyrrum forsætisráðherra
landsins, Ayad Allawi. Þegar þeir
voru svo boðaðir á fund síðdegis á
mánudag neituðu þeir að samþykkja
fjöldamörg atriði.
íslamsmiðaðar áherslur
Minnihlutahóparnir gagnrýna
meirihluta stjórnarskrárnefndar-
innar fyrir að leggja áherslu á það
sem þeir kalla íslammiðaðar áhersl-
ur og tilraunir til að ná undir sig
stóru landsvæði í suðurhluta lands-
ins sem er ríkt af olíuauðlindum.
Shíta-leiðtogarnir gerðu tilraun
til að leggja drögin sem frumvarp
fyrir þingið á mánudag, án þess að
hafa til þess samþykki minnihluta-
hópanna, en nokkrir af leiðtogum
kúrda og Allawi komu í veg fyrir að
málið næði fram að ganga. Leiðtogi
súnní múslima hefur gefið það út að
hann treysti shíta múslimum ekki
lengur og í reynd ekki Bandaríkja-
mönnum heldur.
Frekari ágreiningsatriði
Þrátt fyrir þessi vandkvæði halda
sumir leiðtogar íraka því fram að
sátt muni nást um málið á næstu
þremur dögum. Önnur stór atriði
sem menn eru ekki sammála um
fsraeiskir hermenn stökktu hópum manna á brott úr landnemabyggöum á Vesturbakk-
anum (gærdag en þeir halda enn uppi mótmælum gegn aðgerðum fsraelsstjórnar á
Gaza svæðinu. Lögreglan segir að hóparnir hafi töluvert magn af smásprengjum undir
höndum sem þeir ætia að nýta gegn hernum en stórvirkum vinnuvélum er nú beitt til
að ryðja niður húsum á svæðinu. Landnemahóparnir sem enn berjast gegn aðgerðum
fsraelsstjórnar hafa komið sér fyrir í tómum húsum, komið upp vegatámlum og hellt
matarolfu á götur til að erfiða hernum ætlunarverk sitt.
HVAÐA TÝPA ERT ÞÚ?
Verð: 139.700 kr.
Stílhrein og flott vél sem er ríkulega
hlaðin búnaði. Öflugt skjákort gerir þér
auðveldlega kleift að spila leiki. í gegnum
FireWire tengið flytur þú myndir beint úr
stafrænu videótökuvéiinni inn á tölvuna.
TM tölvukaupalán
100% lán til allt aö 36
mánaöa á 9,5%
vöxtum. Einnig býðst
fartölvutrygging fyrir
lántakendur.
taeknival.is og taktu
þátt i T0SHI8A-
týpuleiknum og þú
gætir unnið fartölvu.
Toshiba Easy Guard tryggir að gögnin
þín eru öruggari. Þetta er öflug tölva sem
hentar öllum.
Kaupauki: □----------
Fartölvubakpoki, mús og
MS OneNote fylgir öllum
Toshiba tölvum.
Tæknival
Sjfta-múslimar fagna á götum Bagdad
er hvort í stjórnarskránni verði til-
greint að meðlimir Baath-flokks
Saddams Hussein verði útilokaðir
frá stjórnsýslunni og hvernig velja
skuli forseta og forsætisráðherra
landsins.
Hamingjuóskir frá Bandaríkjunum
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, óskaði leiðtog-
um íraka til hamingju með að hafa
náð að leggja fram drögin og sagði
það virðingarvert að nefndin leggði
á það áherslu að ná sem breiðastri
samstöðu um stjórnarskrána með
því að óska eftir þessum þriggja
daga aukafresti til að klára málið.
„Skref fyrir skref ganga írakar stíg-
inn sem mun auka framtíðarmögu-
leika þeirra til frelsis“, segir í yfirlýs-
ingu frá Rice. ■
Armstrong hafnar
ásökunum
Bandaríski hjólreiðakappinn Lance
Armstrong, sem unnið hefur Tour
de France hjólreiðakeppnina sjö
sinnum, hefur hafnað ásökunum
franskra blaða um að hann hafi tek-
ið ólögleg efni áður en hann keppti
í Frakklandi. Síðast var það íþrótta-
blaðið L’Equipe sem hélt því fram
að hann hefði tekið efnið EPO til
að ná betri árangri en afrek hans í
hjólreiðum verður seint leikið eft-
ir. Blaðið segist hafa sannanir fyrir
lyfjanotkun Armstrongs og segir að
sex þvagprufur sem teknar voru hjá
honum árið 1999 hafi reynst jákvæð-
ar, þ.e.a.s. að leifar af EPO hafi fund-
ist í þeim. Á þeim tíma var hjólreiða-
mönnum ekki bannað að taka lyfið.
Armstrong segir á heimasíðu sinni
að hann hafi aldrei tekið örvandi lyf
og að umfjöllun L'Equipe sé ekkert
annað en nornaveiðar. „Blaðið viður-
kennir meira að segja að aðferðirnar
sem notaðar voru til að mæla EPO
hafi verið vafasamar. Þar að auki
hef ég ekki haft neitt tækifæri til að
verja sjálfan mig”, segir hann.
Meint lyfjanotkun Armstrongs
hefur verið blaðaefni í gegnum tíð-
ina þrátt fyrir að aldrei hafi sannast
að hann hafi tekið ólögleg efni. Síð-
ustu árin hefur hann svarað fyrir sig
með málshöfðunum gegn þeim blöð-
um sem hafa birt slíkar sögur og er
þekktast mál gegn breska blaðinu
Sunday Times. ■
-15? Sumarferð
Sumarterö sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
verður farfn laugardaginn 27. ágúst.
Heimsóttur verður þjóögarðurinn á Snæfellsnesi. Kristinn Jónasson bæjarstjóri
Snæfellsbæjar mun taka á móti hópnum á Hellnum. Þar verður grillaö, farið í
leiki, sungið og margt fleira skemmtilegt gert.
Lagt verður af stað f feröina frá Valhöll Háaleitisbraut 1, kl. 9.00 og komið til
baka um kvöldmatarleyti.
Miðaverð er kr. 1.500 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn yngri en 12 ára.
Innifalið í verði er rútuferðin og grillmatur.
Vinsamlega skráið ykkur f ferðina á skrifstofu Sjálfstæðlsflokksins f sfma
5151700 fyrirkl. 16.00 föstudaginn 26. ágúst.
Alllr velkomnir!
Stjórnir sjálfstæðlsfélaganna I Reykjavík.
Fimm látnir
eftir gíslatöku
Byssumaður í Inglewood í Kali-
forniu skaut fjóra til bana áður
en hann framdi sjálfsvíg í gær.
Maðurinn hafði tekið mágkonu
sína, eiginmann hennar og tvö
börn í gíslingu á heimili þeirra
snemma í gærmorgun. Þegar
lögreglan réðst til inngöngu á
heimilið nokkrum stundum
síðar var það of seint, byssu-
maðurinn hafði myrt gísla
sina og skotið sjálfan sig að
þvi loknu. Ekki er vitað um
orsakir verknaðarins en eigin-
kona byssumannsins tilkynnti
lögreglu um hvarf hans um
miðja nótt. Að sögn hennar var
hann í uppnámi vegna fjárhags-
vandræða. íbúar í Inglewood
hverfinu í Los Angeles voru
skefingu lostnir eftir atburðinn
í gær en lögregla hefur ekki
gefið miklar upplýsingar um
ffölskylduna sem í hlut átti.
Skóladreng-
ur myrtur í
Skotlandi
Lögreglan í Skotlandi rannsak-
ar morð á ellefu ára gömlum
dreng sem fannst látinn í skógi
í nágrenni við skólann sem
hann hvarf frá þremur dögum
áður. Móðir drengins sá hann
síðast þegar hún keyrði hann
í skólann en íjölskyldan býr í
bænum Livingston. Eftir það
hvarf drengurinn en það var
ekki fyrr en að loknum skóla-
degi þegar afi hans kom til að
sækja hann að í ljós kom að
drengurinn hafði ekki mætt f
skólann þann daginn. Hann
fannst svo undir gömlu tjaldi
í skóginum eftir umfangs-
mikla leit lögreglu og leiddi
krufning í ljós að hann hefði
verið kyrktur. Engar vísbend-
ingar hafa enn komið fram
sem upplýst gætu málið.
Nýnasistar
í Rússlandi
fangelsaðir
Fimm nýnasistar í Rússlandi
voru dæmdir í gær til níu ára
vistar á fanganýlendu fýrir
morð á fólki frá Mið-Asíu
og Kákasus og fyrir íjölmörg
ofbeldisverk. Þá voru mennirn-
ir einnig fundnir sekir um að
ýta undir hatur og ódæðisverk
gegn fólki af erlendum upp-
runa. Samkvæmt lögregluyfir-
völdum bera mennirnir ábyrgð
á dauða þriggja einstaklinga
sem létust effir barsmíðar
mannanna á árunum 2003 og
2004. Einn þeirra mun þó hafa
verið stunginn til bana. I ljós
kom að mennirnir voru aðilar
nýnasistasamtaka í Rússlandi
og fundust bunkar af fféttabréf-
um nasista og öðru tengdu efni
í íbúðum þeirra. Fimmmenn-
ingarnir hafa rétt til þess að
áfrýja dómnum innan 10 daga.
Á þessu ári hafa minnst átta
verið myrtir af nýnasistum í
Rússlandi og 115 slíkar líkams-
árásir hafa verið kærðar. Flest
ódæðisverkin hafa átt sér stað
i höfuðborginni Moskvu eða
þar í grennd. Fórnarlömbin
voru m.a. frá Gíneu, Angóla,
Malí, Kfna, Víetnam, Albanfu
og heimalandinu Rússlandi.