blaðið - 24.08.2005, Side 16

blaðið - 24.08.2005, Side 16
 16 I HÉIMILI MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaðiö Heimilisleg hlýia með haustinu ** * * FJaRMöGNUN á vökíum bíliim BÍLAÞING HEKLU Númcr eilt i noliuhin bílum Klctthálsi 11 Laugavegi 174 sími 590 5040 www.bilathing.is Marokkóskt te Setjið grænt te í sigtið og nokkur myntuplöð í tepott- inn sjálfan. Hellið heitu vatni yfir og látið standa í 2 og 1/2 mínútu. Setjið 5-8 furu- hnetur í hvert glas og hellið nýlöguðu teinu yfir. Njótið í birtu kertaljósa. Nú þegar daginn tekur að stytta og sólarljóssins nýtur ekki jafn lengi við, kuldablástur hvissast inn um gluggaraufar og dyrastafi má gera ýmislegt til að gera heimilið hlý- legra. Auðvitað er gott að nýta ullar- sokkana sem pakkað var niður með útilegubúnaðinum á kvöldin og hlýjar, prjónaðar peysur eru auðvit- að nauðsynlegar þegar hausta tekur. En að pakka líkamanum inn í mörg klæðalög við hvert tækifæri er ekki endilega besta tilhugsunin. Kertaljósin skapa ró Kertaljós eru líklega sá aukabún- aður sem getur gert hvert heimili huggulegra og skapað góða stemmn- ingu án þess að miklu þurfi að kosta til. Birtan af kertaljósum er mun hlý- legri en sú sem stafar af rafmagns- ljósum og skapar mun náttúrulegri tilfinningu og færir ró yfir heimilið. Svokölluð sprittkerti má fá í helstu stórmörkuðum fyrir lítinn pening og líklega er Ikea verslunin sá staður sem býður upp á mesta úrval kerta fyrir lítið fé. Tiger verslanirnar og Rúmfatalagerinn bjóða einnig gott úrval. Með því að koma kertaljósum fyrir í gluggakistum, á stofuborðum og í bókahillum má gefa stofunni al- gerlega nýtt útlit og jafnvel draga úr kyndingu því brennandi kerti gefa frá sér töluverðan varma. Austurlensk áhrif I fjölda verslana má sjá að austur- lensk áhrif hafa sett sitt mark á úrval húsbúnaðar. Mynstraður varningur sem skapar stemmningu 1001 nætur í heitum litum getur gért kraftaverk fyrir gömlu stofuna. Mjúkir púðar í mörgum litum, litlar skálar eða lit- ríkar krukkur og falleg tesett skapa litríka og skemmtilega stemmningu sem lífgar upp á haustið og svarar litadýrð þess inni á heimilunum. Þessari stemmningu má ná með því að bæta einungis örfáum hlutum við innbúið svo sem eins og púða, nokkrum kertum eða fallegum te- glösum. Innri hlýja Eftir langan vinnudag, hvort sem hann er við nám eða önnur störf, er gott að hella sér upp á góðan tepott. Fátt er notalegra þegar komið er inn úr svölu haustloftinu en að setjast í mjúkan púðahlaðinn sófa i kerta- lýstri stofu og drekka bolla af ilm- andi tei frá fjarlægum slóðum. Teúr- val verslana í dag er gríðarlega gott og þar má finna allt frá blönduðum ávöxtum og berjum til gamla góða svarta tesins sem allir þekkja. Spenn- andi nýjung, ef nýjung skyldi kalla því hér er á ferðinni gömul íslensk hefð, er lífræna teið frá ísplöntum. Það er unnið úr rammíslenskum galdrajurtum sem hver og ein hefur sín sérstöku áhrif á líkamann, bólgu- eyðandi, vatnslosandi og róandi svo eitthvað sé nefnt. Það má til að mynda fá í verslunum Te&kaffi sem einnig bjóða upp á úrval af tei frá mörgum heimshornum. ernak@vbl.is Púöaver frá Tiger f mörgum litum 400 kr. Japanskur tebolii með undirskál úr leir frá Te&kaffi 1395 kr. Tvö maríukerti I pakka frá lllgresi 1100 kr. Þrjú marokkósk teglös í pakka frá Tiger 400 kr. Handskreyttir kfnverskir tes- taukar frá Te&kaffi Minni 925 kr. Stærri 1195 kr. Margvísleg te fráTe&kaffi frá 190 kr. Blómaskreytt emaleruð skái frá lllgresi 550 kr. Blómaskreyttur emaleraður disk- ur frá lllgresi 650 kr. Japanskur tepottur úr ieir frá Te&kaffi 4350 kr. f.6Rk VBIAOOÍI Rautt maríukerti frá lligresi 450 kr. Blátt maríukerti frá lligresi 260 kr. Sex induglös f standi frá lllgresi 4500 kr.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.