blaðið - 24.08.2005, Side 25

blaðið - 24.08.2005, Side 25
Cover er póstalaust qlerbrautakerR, sérhannað Fyrir svalalokanir, sólstoFur o.þ.h. KerFið er 95% opnanlegt og einstaklega auðvelt í notkun. CDver-glerbrautakerFiö er eina kerfiö sem rennur á jafnstárum hjólum að ofan og neðan sem útilokar möguleika á glamri og stirðleika. Með Cover Færð þú: Öruqgt og sterkt glerkerfi sem stenst íslenskt veðurfar. 98% lokun og koma PVC-plastlistar á milli glega með öllu gleri. Cover er 95% opnanlegt og eru þrif einstaklega auöveld því glerið opnast inná við (þrif báðum megin). Tært útsýni og nánast engin utlitsbreyting. Cover-gler setur Fallegan blæ á fasteignlna. Alltaf logn og hreinar svalir. Glerkerfi sem er auðvelt og fljótlegt í uppsetnlngu og frágangur allur til sóma. Gler & brautir ehf • Gllsöuö 7 • 210 GarOabær • Siml 517 1417 • www.cover.ls greiningu og þá kemst ég að því að hann var líklegast ekki lesblindur heldur ofvirkur. Það skýrði meðal annars af hverju hann mundi lítið því það er svo mikill hraði í huga ofvirkra og þeir eiga erfitt með ein- beitingu. Þessi einstaklingur las illa og kom í leiðréttingu til min í viku, um þrjátíu klukkutíma. Á fimmtu- 24 I VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÖST 2005 blaöiö blaöiö MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 VIÐTALI 25- 99.................. Lesblindir hugsa yfir- leitt alltafí myndum en ekki orðum. Þess vegna notum við leirinn og ger- um myndir afhlutunum. degi þá les þessi einstaklingur eins og besti leikari og hann mundi allan textann sem hann las. Þetta hafði hann aldrei upplifað áður þrátt fyr- ir að vera greindur strákur. Þetta breytti hans lífi. En frekari upplýs- ingar um Davis-leiðréttinguna má fá á www.lesblind.com.“ svanhvit@vbl.is á dugnaði einstaklinganna. „Eftir námskeiðið þurfa einstaklingarnir að æfa sig í 1-2 klukkustundir á viku í ár en eftir það ætti það ekki að þurfa. Þetta verður partur af þeirra lífi og verður svo eðlilegt. Það er ef þau eru dugleg og þá er maður að heyra að einkunnir hækki um 2-3 heila. Svo veit maður um einstaklinga sem hafa verið latir og þá gengur þetta ekki nægilega vel. Einu sinni fékk ég einstakling sem var að stofna fjöl- skyldu og hafði flosnað upp úr skóla. Hann sagðist ekki geta munað eitt né neitt en vildi mennta sig. Hann var búinn að fara til alls kyns lækna en ekkert gekk. Til að byrja með var hann neikvæður en ég tek hann í Lesblindir læra stafrófið upp á nýtt Upphafsmaður Davis leiðréttingar var Ronald Davis sem sjálfur var ein- hverfur og lesblindur. Framan af var Davis talinn bjáni og greindarvísitala hans mældist 40 stig. f dag er Davis talinn vera einn af gáfuðustu mönn- um Bandaríkjanna með greindarvísi- tölu upp á rúmlega 140 stig. Þór Elís segir: „Við tökum fólk í greiningu til að byrja með og við sjáum oft hvernig lesblindan liggur. Lesblindir hugsa yf- irleitt alltaf í myndum en ekki orðum. Þá eru tvívíð tákn eins og letur ákveð- in truflun. Þess vegna notum við leir- inn og gerum myndir af hlutunum. Þetta er mjög mikilvægt til dæmis hjá ofvirkum einstaklingum því þeir búa til aðstæður sem þau hafa lent í. Ein- staklingar með lesblindu byrja á því að læra allt stafrófið upp á nýtt með því að leira alla stafina. Svo er þjálf- Um leið og einstaklingurinn er orðinn skynstilltur þá getur hann lesið þokkalega vel. unarferlið sem fer fram eftir að þau eru búin að vera hjá okkur gríðarlega mikilvægt en þá þurfa þau að leira og myndgera öll kveikiorð. Kveikiorð er þau orð sem ekki er hægt að tengja mynd við eins og þessi, er, og, það, þá og fleiri slík orð. Þau orð detta út hjá lesblindum og það verða því bara hol- ur í textanum. Þess vegna þurfa þau að búa til mynd og leira sjálft orðið. Það verður því bara að samtali við undirmeðvitundina og þarf í raun- inni að endurforrita hana. Las sína fyrstu bók 37 ára gamall Davis var laminn af pabba sínum og bróður vegna þess að þeir töldu hann vera skömm fyrir fjölskyld- una. Hann ólst upp í Texas þar sem honum var oft hent út í garð þar sem jarðvegurinn er mjög leirkenndur og hann harðnar þegar hann þornar. Da- vis leiraði því mikið og bjó til sína eigin veröld úr leir. Hann hefur aldr- ei sagt frá því hvernig hann komst út úr einhverfunni en í kjölfar þess uppgötvuðust ótrúlegir stærðfræði- hæfileikar. Einhverfan háir honum Htið í dag en hann hugsar algerlega í myndum samkvæmt Þór. Davis gerð- ist verkfræðingur hjá NASA en datt niður á hugmyndina um kerfið þeg- ar hann vann sem skúlptúristi. Verk- fræðihæfileikar hans fengu hann til að leiða rök að því að ef hægt væri að breyta lesblindu með huglægri starfsemi gæti lesblinda ekki verið vegna líkamsgalla heldur hlyti að vera um starfrænan galla að ræða. Þá dró hann þá ályktun að hann hlyti að geta gert eitthvað í hugan- um sem leiðrétti lesblinduna. Þetta var fyrsta skref hans í rannsóknum á námsörðugleikum. Hann gerði til- raunir á sjálfum sér og þróaði þetta. Einn daginn áttaði hann sig á að hann var kominn með þetta og las sína fyrstu bók á einum degi, 37 ára gamall. Síðan þá hefur hann unnið við að þróa aðferðir grundvallaðar á þvi sem hann hafði uppgötvað. Hon- um hefur tekist að hjálpa þúsundum lesblindra barna og fullorðinna að fá orðin - og um leið veröldina - til að standa kyrra.“ Lærði að lesa á fjórum dögum Þór Elís segir að árangurinn sé undraverður en þó velti það líka Lesblinda og ofvi rkni leiðrétt - Vinna með leir gefur góða raun Davis leiðréttingin hefur reynst lesblindum og ofvirkum börnum vel en hægt er að fara á slíkt námskeið hérlendis. Lesblindir einstakling- ar hugsa í myndum, oft án þess að gera sér grein fyrir því, og því getur skólakerfið reynst þeim erfitt. Með því að leira myndir og ímyndir er hægt að endur- forrita undirmeðvitundina og með því verður daglegt líf les- blindra auðveldara, sérstaklega lærdómur og lestur. Einnig er verið að hanna svipað kerfi fyrir einhverfa. Þór Elís Pálsson, kvik- myndagerðarmaður og kenn- ari, leiðbeinir einstaklingum samkvæmt kenningum Davis og segir það likast kraftaverki hvað leiðréttingin gerir fyrir fólk. „Þetta eru fýrst og fremst börn sem koma til mín þvi þetta kemur svo augljóslega fram hjá þeim í náminu. En til mín koma líka fullorðnir. Les- blinda og ofvirkni fer illa með sjálfs- ,mat barnanna og þau lenda jafnvel í einelti út af þessu. Við gefum þeim í raun hugartæki og kennum þeim að vinna með þeim en Davis aðferðin leiðréttir lesblinduþáttinn og skyn- stillir einstaklinginn.“ Skynstilling er til þess gerð að viðkomandi nái valdi á að beita fullri athygli með samblandi af skynjunar- og líkams- æfingum. Þegar skynstillingu er náð verður strax mun auðveldara að ná og halda athygli við lestur auk þess sem það gefur viðkomandi stjórn á sinni skynjun og þá er hægt að finna þrálát mistök í lestri og leiðrétta þau. ,Unnið er markvisst með einn nem- anda í senn og fær hann fulla athygli leiðbeinandans meðan á þeirri vinnu stendur eða í um það bil 30 klst. Þó er hægt að sníða námskeiðin að einstak- lingnum og stundum eru þau lengri. Þetta fer þannig fram að ég fæ ein- stakling í viku og vinn með honum maður við mann. Um leið og einstak- lingurinn er orðinn skynstilltur þá getur hann lesið þokkalega vel. Eftir vikuna er lesturinn yfirleitt orðinn mjög góður og minnið er komið í lag. Maður upplifir kraftaverk í næstum hvert einasta skipti sem maður vinn- ur með einstaklingi“, segir Þór Elis upprifinn.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.