blaðið - 24.08.2005, Side 26

blaðið - 24.08.2005, Side 26
26 I MENNTUN MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaðið Nemendum sem stunda fjamám fer fjölgandi - Háskólinn á Akureyri með margt í boði Þó svo að margir gefi sér ekki tíma til þess að sitja á skólabekk er ekki þar með sagt að þeir eigi ekki mögu- leika á að leggja stund á nám. Fjar- nám er eitthvað sem margir nýta sér, bæði þeir sem ekki vilja sækja daglegar kennslustundir og einnig þeir sem kjósa að sinna starfi sínu með námi. Háskólinn á Akureyri hefur verið vinsæll þegar kemur að námi utan skóla enda eru þeir með marga góða möguleika í þessu samhengi. Frá ár- inu 1998 hefur námið verið vaxandi þáttur í framboði skólans og nú bjóða fjórar deildir af sex upp á fjar- nám, auðlindadeild, heilbrigðisdeild, kennaradeild og viðskiptadeild. Fólk getur búið víðs vegar um landið og stundað námið í gegnum netið auk þess að fara einstöku sinnum til Ak- ureyrar þegar kemur að prófunum. Það er ýmist um að ræða fullt nám eða nám sniðið að þörfum og starfi hvers og eins, en þannig er hægt að dreifa náminu á lengri tíma. Innrit- unargjöld í skólann eru þau sömu fyrir þá sem stunda fjarnám og þá sem stunda fullt nám í dagskóla. Erlendur Steinar Friðriksson, verk- efnastjóri fjarnáms við Háskólann á Akureyri, segir 40% nemenda við skólann vera fjarnemendur. „Þetta er eiginlega tvískipt. Fólk leitar í fjar- nám til þess að þurfa ekki að flytj- ast búferlum en vill engu að síður stunda nám við skólann. Svo er það fólkið sem vill stunda háskólanám með þeirri vinnu sem það hefur en það hefur nokkuð færst í aukana upp á síðkastið“, segir hann og tek- ur fram að fjarnámsfyrirkomulagið hafi hingað til gengið mjög vel. „Við varla önnum eftirspurn enda gefur námið góða raun og engan mun er að sjá á námsárangri þeirra sem eru í fjarnámi og þeirra sem sækja tím- ana. Það er alveg gríðarleg aðsókn í þetta.“ Aðspurður segir Erlendur sömu kröfur gerðar til fjarnema og ann- arra enda séu sömu próf lögð fyrir og sömu námskeið. „Það eru alveg sömu kröfur - eini munurinn er sá að fólk mætir ekki í tímana. Svo er prófað í nokkrum landshlutum og því oftast nokkrir á sama stað sem taka próf samtímis. Við erum með samning við Fræðslu- og símenntun- arstöð en aðilar frá þeim sitja yfir á prófatíma í Reykjavík og á öðrum stöðum þar sem prófað er. Svo auð- vitað eru skilaverkefni, umræðutím- ar og próf sem fara fram á netinu“, segir hann og bætir við að símennt- un skólans fari afar vel af stað. „Við erum með mjög góð námskeið í sí- og endurmenntun en flest nýt- ist fólki rosalega vel. Svo erum við einnig með undirbúningsnám fyrir háskólanám almennt, svo það er af mörgu að taka.“ ■ Fjölbreytt fjarnám og símenntun SamVil ehf er eitt af þeim fyr- irtækjum sem sérhæfa sig í fjarkennslu og símenntun. Að sögn Kristínar Helgu Guðmunds- dóttur, rekstrarstjóra og umsjónar- manns fjarnámsins, er það að færast í aukana að fólk nýti sér nám utan skóla. „I nútíma þekkingarþjóðfélagi, eins og stundum er sagt um þann tíma sem við lifum á, gildir símennt- un allt lífið. Örar tækni- breytingar og alþjóðavæð- ingin kalla eftir aukinni símenntun og því er nauð- synlegt að hafa nóg framboð af námsfögum og námskeiðum fyrir þá sem vilja stunda slíkt nám“, segir Kristín en hún hefur sérhæft sig í fjarnáms- kennslu og starfað mikið við hana. „Meistaraverkefnið mitt við Kennara- háskóla íslands var rannsókn sem ég gerði árin 2002-2003 á námsstíl fjarnemenda sem stunda nám við Kennaraháskólann. Helstu niður- stöður varðandi námsumhverfi fjar- nemenda voru að fjarnemendur telja nauðsynlegt að kennsla sé skipulögð í samræmi við námsformið. Fjar- nemendur vilja fjölbreyttar kennslu- aðferðir og að framsetning námsefn- is sé aðgengilegt á Netinu í formi texta, hljóðs og mynda. Skipulagðar umræður á Netinu eru mikilvægar að mati fjarnemenda og endurgjöf frá kennurum fyrir verkefnaskil er þýðingamikið. Nemendur vilja auk- inn stuðning frá kennurum í námi og telja samskipti við kennara og aðra nemendur mikilvæg", segir Kristín sem leggur áherslu á þessi atriði í sínu starfi. Ekki ráðiegt að ætla sér um of Aðspurð segir Kristín erfitt að stunda fulla vinnu samhliða fjar- námi enda taki heimanám sinn tíma og því ekki gott að ætla sér um of í öðru. „I öllu námi þarf að gera ráð fyrir tima til að stunda námið. Ef um háskólanám er að ræða tel ég ekki ráðlegt að fjarnemandi sé í fullu starfi með námi. I háskólanámi er gert ráð fyrir ákveðnu vinnufram- lagi, þ.e. ástundun náms í ákveðinn tíma í hverri viku og ef námið á að gagnast sem skyldi verða nemendur að gefa sér tíma til að stunda það“, segir hún en segist þó ekki hafa séð nýlegar samanburðarannsóknir á gildi staðnáms og fjarnáms við há- skóla. „Nám er auðvitað alltaf að ein- hverju leyti undir námsmanninum komið. Sé viðkomandi í stakk búinn að takast á við fjarnám mæli ég hik- laust með því, hvort sem um fullt nám er að ræða eður ei. Við erum t.d. með fjölbreytt úrval námskeiða í fjarnámi sem getur verið gagnlegt að nýta sér samhliða öðru.“ -En stendurðu í þeirri trú að fjar- nám komi sérjafn vel fyrir nemend- ur oghefðbundið dagskólanám? „Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Námskeið í fjarnámi eru í flest- um tilvikum jafn góð og námskeið í staðnámi ef þau eru hönnuð af sérfræðingum á viðkomandi svið- um með aðstoð kennslufræðings. Það má með sanni segja að flestir háskólar hér á landi standi vel að fjarnáminu, þannig að nám í fjar- námi er jafn gott og nám í dagskóla. Mestu skiptir að námið sé vel skipu- lagt en til þess að svo sé þurfa skól- ar að huga að því að umsækjendur sem sækja um nám í fjarnámi hafi grunnmenntun í samræmi við kröf- ur skólans.“ ■ halldora@vbl.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.