blaðið - 24.08.2005, Qupperneq 36
36 IDAGSKRÁ
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaöiö
FJaRMöGNUN
á völdum
bíluni
BÍLAÞING HEKLU
tXúmer eilt i nohtifuni luiitnt
Kletthálsi 11 Laugavegi 174 sími 590 5040
www.bilathing.is
■ Stutt spjall: Margrét Marteinsdóttir
Margét er fréttamaður á Ríkissjónvarpinu
Hvernig hefurðu það í dag?
„Ég hef það bara mjög gott."
Er mikill munur að vinna í sjónvarpi og
útvarpi?
„Já, það er mjög mikill munur. Mérfannst
mjög gaman að vinna í útvarpi. Sjónvarpið er
frábær miðill, það er hægt að gera svo mikið
með hann enda er unnið með texta, umhverf-
ishljóð og sjálfa myndina. Það skiptir miklu
máli hvernig maður setur fréttir saman, það er
ekki nóg bara að skrifa texta og hlaða svo inn
einhverjum myndum. Það skiptir mjög miklu
máli að vanda sig við alla þessa þætti þannig
aðfréttirnar komi sem best út."
Er þetta skemmtilegt starf?
„Já þetta er það skemmtilegasta sem ég hef
gert. Ég efast um að ég eigi eftir að gera nokk-
uð skemmtilegra. Þetta er svo fjölbreytt."
Hvað hefurðu unnið lengi í fjölmiðlum?
,Ég hef unnið hjá Sjónvarpinu síðan 1999 en
ég byrjaði hjá Ríkisútvarpinu 1998. Þar á und-
an var ég rúmt ár á fréttastofu á Fínum miðli."
Hvað er skemmtilegast?
.Nánast á hverjum degi skoðar fréttafólk ný
mál og þannig lærir það eitthvað nýtt daglega.
Þá talar maður við fjölmargt fólk á hverjum
degi og ég hef kynnst svo mörgu merkilegu
fólki í gegnum starfið. Get til dæmis nefnt
gamla konu sem upplifði síðari heimsstyrjöld-
ina í Þýskalandi og missti eiginmann sinn í
fangabúðum nasista. Starfið er alltaf að koma
á óvart. Ég hef fengið verkefni að morgni dags
sem mér list ekkert á. Svo þegar ég hef kynnt
mér málin, talað við fólk sem því tengist og
veit allt um það verður það mjög áhugavert.
Svo er ég að vinna með frábæru fólki, frétta-
fundireru skemmtilegustu fundir sem ég sit."
Hefur margt breyst síðan þú byrjaðir að
vinna ífjölmiðlum?
„Það hefur mjög margt breyst á sjö árum. Með
tilkomu blaða eins og DV, Hér og nú og Séð
og heyrt hefur umhverfið breyst heilmikið.
Það hefur líka ýmislegt breyst í sjónvarpi,
bæði hér og erlendis. Sumt jákvætt, annað
neikvætt. Hverjum hefði dottið í hug fyrir
áratug að stefnumót þar sem karl eða kona
velur maka sinn úr hópi fólks eða lýtaaðgerðir
yrði vinsælt sjónvarpsefni. Sitt sýnist hverjum
um ágæti þess."
Þarf maður að vera fréttafikill í þetta starf?
„Fólkverður það mjög fljótlega. Vinnan er hjá
flestum I þessum bransa aðaláhugamálið. Svo
er starfið alltaf að koma á óvart. Fréttafólk er í
rauninni alltaf á vakt. Stundum dettur manni
meira að segja eitthvað í hug þegar maður er
kominn upp í rúm á kvöldin."
Er þetta stressandi starf?
„Maður ræður því eiginlega svolítið sjálfur.
Með tímanum lærir maður visst vinnulag og
með því er oft hægt að koma í veg fyrir það
að missa hárið af stressi. Auðvitað koma svo
toppar, þegar eitthvað gerist rétt fyrir fréttir
eða þegar það eru stórir dagar fréttalega séð
þá er stundum mjög mikið stress. En það er
bara parturaf prógramminu."
■ Eitthvað fyrir..
...sönqvara
Stöð 2 - What not to Wear (i:6) - kl.
20-3o(Druslur dressaðar upp)
Raunveruleikaþáttur þar sem fatasmekkur
fólks fær á baukinn. Ekki eru allir gæddir
þeim hæfileika að kunna að klæða sig sóma-
samlega. Það er oft erfitt fyrir vini og ætt-
ingja að horfa upp á fatasóðana en brátt heyr-
ir vandamálið sögunni til. Hér eru snjallar
tískulöggur kallaðar til verka og árangurinn
er ótrúlegur. Þeir sem áður voru til skammar
fá nú ný föt til að klæðast og ef þurfa þykir er
hárið og förðunin líka tekin í gegn.
RÚV - Indíánar í Bólivíu - kl.
20.55
Finnsk heimildamynd um réttinda-
baráttu indíána í Bólivíu, fátækasta
landi Suður-Ameríku. Bólivía rambar
á barmi borgarastyrjaldar. Indíánarn-
ir hafa öldum saman verið kúgaðir
en eru nú farnir að krefjast réttar
síns. Þeir hafa farið í fjölmennar mótmælagöngur og árekstrar þeirra við
lögregluna og herinn hafa ýtt undir uppreisn í landinu. Indíánar, sem eru
meirihluti bólivísku þjóðarinnar, krefjast aukinna lífsgæða og hafa jafnvel
farið fram á að auðlindir Bólivíu verði þjóðnýttar. Mótmæli þeirra eru mikið
áfall fyrir hvítu valdastéttina í landinu og það er ósennilegt að erlendir hags-
munahópar með Bandaríkjamenn fremsta í flokki láti sér nægja að fylgjast
aðgerðalausir með þeirri þróun mála sem gæti mótað framtíð allrar Suður-
Ameríku.
...enqla
Bíórásin - My Cousin Vinny - kl.
oo.oo (Vinny frændi)
Gamanmynd um vinina Bill og Stan
sem eru á ferðalagi um Suðurríkin
þegar þeir eru handteknir og ákærð-
ir fyrir morð. Bill fær frænda sinn,
Vinny, til að verja þá í þessu erfiða
sakamáli þar sem sönnunargögnin
hrúgast upp. Vinny hefur tæpast þá
reynslu sem til þarf í jafn erfiðu máli en hann er kappsfullur og trúir því að
réttlætið nái fram að ganga. Aðalhlutverk: Joe Pesci, Ralph Macchio, Marisa
Tomei, Fred Gwynne, Mitchell Whitfield. Leikstjóri: Jonathan Lynn. 1992.
Leyfð öllum aldurshópum.
6:00-13:00 13:00-18:30 18:30-21:00
70? 17.05 Lelðarljós (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Disneystundin 18.01 Stjáni (7:11) (Stanley) 18.24 Slgildar teiknimyndir (6:38) (Classic Cartoons) 18.32 Liló og Stitch (6:19) (Lilo & Stitch) 18.54 Víkingalottó 19.00 Fréttlr, Iþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.10 Ed (80:83) 20.55 Indiánar í Bólivíu (Indian Revolt) Finnsk heimildamynd um réttindabaráttu Indlána 1 Bólivíu, fátækasta landi Suður-Ameriku.
WT 06.58 fsland í bítið mW JM 09.00 Bold and the Beautiful W (Glæstar vonir) 09.20 (fínu formi (þolfimi) 09.35 Oprah Winfrey (Follow-Up Show: Fall 2004) Oprah Gail Winfrey er valdamesta konan í bandarfsku sjónvarpi. 10:.20 ísland í bítið 12.20 Neighbours (Nágrannar) 12.45 (fínu formi(styrktaræfíngar) 13.00 Sjálfstætt fólk (Hallbjörn Hjartarson) 13.30 Jamie Oliver (Oliver's Twist) (20:26) (Kokkurán klæða) 13.55 Hver lífsins þraut (5:8) (e) 14.25 Extreme Makeover - Home Edition (10:14) (Hús í andlitslyftingu) 15.10 Amazing Race6(11:15) (Kapphlaupiö mikla) 16.00 Barnatími Stöövar 2 Mr. Bean, Lizzie McGuire, Smá skrítnir foreldrar, Tracey McBean, Snjóbörnin, Póstkort frá Felix 17.53 Neighbours (Nágrannar) 18.18 (slandídag 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 fslandídag 19.35 The Simpsons (7:25) (e) (Simpson-fjölskyldan 8) 20:00 Strákarnir 20.30 What not to Wear (1:6) (Druslur dressaðar upp) Raunveruleikaþáttur þar sem fatasmekkur fólks færábaukinn.
0 17.55 Cheers 18.20 BrúOkaupsþátturinn Já (e) Ella sér sem fyrr um að rómantíkin fái að njóta sln og að þessu sinni verður bryddað upp á þeirri nýbreytni að fengnir verða sérfróðir aðilar til að upplýsa áhorfendur og brúðhjón um praktlsku atríðin varðandi hjónabandið. 19.15 Þak yfir höfuðið (e) 19.30 Everybody loves Raymond (e) Bandariskur gamanþáttur um hinn seinheppna fjölskylduföður Raymond, Debru eiginkonu hans og foreldra sem búa hinumegin við götuna. 20.00 Coupling - Tvöfaldur 20.50 Þakyfir höfuðið 21.00 Dr.Phil
J 14.00 Sunderland - Man. City frá 23.08. 16.00 Chelsea - Arsenal frá 21.08. 18.30 Arsenal * Fulham (b) EB 2 Chelsea - WBA (b) EB 3 Bolton - Newcastle (b) EB4 Blackburn -Tottenham (b)
sUs 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 TruCalling (8:20) 19.50 Supersport (6:50) 20.00 Seinfeld (The Pitch/The Ticket - part 1) 20.30 Friends 2 (19:24) (Vinir) (The one where Eddie won't go)
07.00 Olíssport 07.30 Olíssport ^ ’’ ' 08.00 Olíssport 08.30 Olíssport 16.10 Olíssport 16.40 UEFA Champions League (Liverpool - CSKA Sofia) 18.20 UEFA Champions League (Debreceni - Man. Utd.) Bein útsending frá síðari leik Debreceni og Manchester United. 20.20 UEFA Champions League (Víllarreal - Everton) Útsending frá síðari leik Villarreal og Everton í 3. umferö forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
06.00 Playing Mona Lisa jr jmmm (Eins og Mona Lisa) 08.00 CalendarGirls (Nekt fyrir málstaöinn) 10.00 Dalalíf 12.00 Josie and the Pussycats (Jósie og Kisulórurnar) 14.00 My Cousin Vinny (Vinný frændi) 16.00 Calendar Girls (Nekt fyrir málstaðinn) 18.00 Dalalíf Félagarnir Þór og Dannl ráða sig I sveit en eru alls ekki vanir að mjólka kýr og moka skít. Sigild gamanmynd sem verður betri með hverju ári. Aðalhlutverk: Eggert Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Slgurjónsson. Leikstjóri: Þráinn Bertelsson. 1984. Leyfð öllum aldurshópum. 20.00 Piaying Mona Lisa (Eins og Mona Lisa) Gamanmynd. Píanóleikarinn Claire Goldstein er ( öngum slnum. Kærastinn sagði henni upp og því er erfitt að taka. Hann er stöðugt i huga hennar en vinkonur Claire segja henni að gleyma honum hið snarasta. Þær eru líka með góð ráð til að krækja (karlmenn. Vertu dularfull, segja þær við Claire. Vertu svona eins og Mona Lisa. Aðalhlutverk: Alicia Witt, Harvey Fierstein, Brooke Langton. Leikstjóri: Matthew Huffman. 2000.
■ Af netinu
Er búinn að vera að horfa á fyrstu
seríuna afþáttum sem heita Arrested
Development og ég gjörsamlega
dýrka þessa þætti. Fæ ekki nóg af
þeim. Er búinn að vera að horfa það
mikið á þá, að síðustu nótt dreymdi
mig skondinn draum sem ég tengdi
beint við þættina.
ht tp://eddieskimo.blogspot.com/
í dag lá ég í sófanum heima
hjá mömmu meðan ég var að
bíða eftir þvottavélinni. Það
var ekkert í sjónvarpinu nema
Brúðkaupsþátturinn Já sem ég þar
af leiðandi fylgdist með. í þættinum
kom fram hjónabandsráðgjöf - sem
nota bene mér fannst snilld. Það
voru prestarnir Bjarni og Jóna
Hrönn. Þau voru að tala um að
það væru til ýmis heimili. Heimili
samkynhneigðra, gagnkynhneigðra,
einstæðra foreldra o.s.frv. og það
bæri að virða. Svo kom það sem
mér fannst líka mesta snilldin. Það
var þegar Jóna Hrönn talaði um
einhleypinga, að sumir kysu að vera
einir, sambúðarformið væri ekki
fyrir þá og það bæri að virða. Ekki
hrúga spurningunum um hvenær
þeir/þau/þær ætli nú að ná sér í maka
og ætli ekkert að ganga út. Það ber að
virða hvernig hver og einn kýs að lifa
sínu lífi og haga sínu heimili. Snilld.
Held þau hafi ekki gleymt neinum.
Finnst reyndar þessi Bjarni prestur
mjög fínn. Hef ekki mikið kynnst af
honum en það litla sem ég hef séð
er ég virkilega að fíla hjá honum.
Finnst hann vera í tengslum við
fólk. Margir þyrftu einmitt að læra
að virða líf annarra og hvernig þeir
haga sínu lífi. Vera ekki að skipta
sér af því sem þeim kemur ekki við.
Hvað ætli þau viti betur hvernig
annar einstaklingur geti hagað
betur sínu lífi. Þetta með virðinguna
kemur inn á svo margt annað - gæti
minnkað fordóma til dæmis. Gæti
einfaldlega gert lífið betra en þar
sem maður veit náttúrulega alltaf
betur en næsti maður þá getur þetta
orðið erfitt!
http://vargur.blogspot.com/
Þar sem internetið er ekki til
staðar horfi ég töluvert mikið á
sjónvarpið og ég verð að játa það að
„The Biggest Loser“ er í uppáhaldi.
Ég veit ekki út af hverju en ég er
ginkeypt fyrir þessu. Það sem mér
finnst æðislegast er að enginn fer
í lýtaaðgerðir. Öðruvísi en í „The
Swan“ sem ég held ekki út að horfa á.
1 „The Biggest Loser“ finnst mér svo
spennandi hvað hver tapar miklu og
ég gladdist mikið þegar þau voru í
næst síðasta þættinum send heim
og látin viðhalda lífsstílnum í þrjá
mánuði. The Swan, hins vegar. Ég hef
ekkert á móti lýtaaðgerðum. Hins
vegar finnst mér algerlega klikkað
að safna saman konum með ekkert
sjálfstraust, breyta þeim í barbie-
plast-súper-konur og kóróna svo
ósómann með fegurðarsamkeppni,
nei takk. Þetta nenni ég sko ekki að
horfa á. Law and Order stendur alltaf
fyrir sínu, en mikið ofleikur Jesse L.
Martin stundum. (Detective Green
fyrir þá sem hafa ekki aðgang að
Google). Ég horfði á þáttinn í gær og
fannst hann skemmtilegur, að öðru
leyti en því, sem sagt, að ofleikurinn
hjá manninum var alveg að gera út
afviðmigáköflum...
http://blog.central.is/nomdeplum