blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 10

blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 10
10 I ! MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 blaöiö Sala tónlist- ar á netinu þrefaldast Sala tónlistar á netinu hefur þrefaldast á einu ári. Á sama tíma hefur dregið úr sölu á hefðbundnum geisladiskum. Samkvæmt upplýsingum ffá Alþjóðasamtökum hljómplötu- framleiðenda sem kynnt var í gær er áætlað að sala tónhstar á netinu á fyrri helmingi ársins hafi numið um 790 milljónum Bandaríkjadala sem eru um 6% af öllum tónlistarmarkaðin- um. Á sama tímabili árið 2004 nam sala tónlistar á netinu ekki nema 220 miEjónum dala. Minna drukkið á Októberfesti Minna var teygað af miði á hinu árlega Októberfesti í þýsku borginni Múnchen í ár en í fyrra þrátt fyrir að hátíðin hefði staðið degi lengur. Alls kneyfúðu gestir hátíðarinnar um sex milljónir lítra af hinum gyllta og görótta drykk en það myndi nægja til að fylla einar sex sundlaugar af stærstu gerð. Það er um 100.000 lítrum minna en á hátíðinni í fyrra. Há- tíðin var framlengd úr sextán dögum í sautján í ár vegna þess að sameiningardagur Þýska- lands bar upp á mánudag. Talið er að minni neyslu megi skýra með óvenju köldu veðurfari í október og nýrri reglugerð sem takmarkar hljóðstyrk eftir klukkan sex á morgnana. >--- •7 * / Þrátt fyrir að hafa svolgrað einar sex stórar sundiaugar af bjór drukku gestir Októberfestsins í Miinchen minna af miði í ár en f fyrra. Króatía hefur aðildarviðræður Króatar hafa fengið grœnt Ijós á að hefja aðildarviðrœður við Evrópusambandið. Samvinna þjóðarinnar við Alþjóðastríðsglœpa- stólinn hefur batnað. Landiðfœr hugsanlega aðild árið 2008. Carla del Ponte, saksóknari við Alþjóðastrfðsglæpadómstólinn í Haag og Ivo Sanader, forsætisráðherra Króatíu. Króatía getur loksins hafið viðræður um aðild að Evrópusambandinu eft- ir að yfirvöld í Zagreb lýstu því yfir að þau myndu sýna Stríðsglæpadóm- stólnum fulla samvinnu. Aðildarvið- ræður áttu upphaflega að hefjast í mars en þeim var frestað vegna þess að yfirvöld í Zagreb þóttu ekki nógu samvinnuþýð við Alþjóðastríðs- glæpadómstólinn í Haag. Við tókum sögulega ákvörðun í nótt, fyrir hönd Króatíu, og við höf- um hafið aðildarviðræður," sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bret- lands í gær en Bretar eru í forsæti sambandsins um þessar mundir. Ivo Sanader, forsætisráðherra Króa- tíu tók í sama streng á sameiginleg- um fréttamannafundi þeirra. „Ég er þess fullviss að þessi ákvörðun Evr- ópusambandsins muni ekki aðeins gera Króatíu kleift að halda áfram með umbætur heldur einnig öðrum löndum í Suðaustur Evrópu,“ sagði Sanader. Króatar samvinnuþýðir Carla del Ponte, saksóknari við stríðsglæpadómstólinn, fagnaði áfanganum og lýsti yfir ánægju með að stjórnvöld í Zagreb sýndu samvinnuvilja í leitinni að Ante Gotovina fyrrverandi hershöfðingja sem grunaður er um stríðsglæpi. Gotovina sem er þjóðhetja í augum margra Króata hefur verið á flótta síðan 2001 þegar hann var kærður fyrir stríðsglæpadómstólnum vegna glæpa gegn Serbum í stríðinu á milli þjóðanna frá 1991 til 1995. Þó að enn hafi ekki tekist að hafa hendur í hári Gotovina er Del Ponte vongóð um að hann náist bráðlega og verði leiddur fyrir dómstólinn. Aðild árið 2008 Stipe Mesic, forseti Króatíu, telur að Króatía gæti hugsanlega gengið í Evrópusambandið árið 2008 en lagði samt áherslu á að mikið starf væri framundan. Aðildarumsókn Króatíu hefur notið mikils stuðn- ings nágranna þeirra í Austurríki en stjórnvöld í Vín stóðu jafnframt í vegi fyrir því að viðræður Tyrkja um aðild að sambandinu gætu haf- ist. Aðildarviðræður Tyrkja hófust loks í fyrradag eftir að utanríkisráð- herrar Evrópusambandsins komust á elleftu stundu að samkomulagi um viðræðugrundvöll. ■ Ástralar hljóta Nóbelsverðlaun Ástralarnir Barry J. Marshall og Ro- bin Warren hljóta Nóbelsverðlaun- in í læknisfræði í ár fyrir að hafa sýnt fram á að bakteríusýking en ekki streita valdi magasári og maga- bólgu. í úrskurði úthlutunarnefnd- arinnar segir að uppgötvun þeirra hafi breytt magasári úr því að vera krónískur og hamlandi sjúkdómur í það að vera sjúkdómur sem mætti lækna á auðveldan hátt með lyfja- meðferð. Uppgötvun Ástralanna var mjög umdeild á sínum tíma enda var almennt talið að magasár stafaði af streitu og lífsstíl fólks. Þurftu þeir að hafa mikið fyrir því að sannfæra heimsbyggðina um réttmæti hennar. Árið 1985, þremur árum eftir hana, greip Marshall til dæmis til þess ráðs að smita sjálfan sig með bakter- íunni til að sýna fram á að hún ylli sjúkdómnum. Barry J. Marshail og Robin Warren fögnuðu þegar Ijóst var að þeir hlytu Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár. Háttsettur leiðtogi ETA handtekinn Harriet Aguirre einn valda- mesti leiðtogi Aðskilnaðarsam- taka baska (ETA) hefur verið handteldnn í Frakklandi ásamt tveimur félögum sínum. Agu- irre sem talinn er vera leiðtogi hernaðararms samtakanna var handtekinn í Aurillac í mið- hluta Frakklands. Jose Antonio Alonso, innanríkisráðherra Spánar, sagði að handtaka Aguirres og félaga hans væri mjög mikilvæg og lagði áherslu á að hér væri um leiðtoga samtakanna að ræða en eklci óbreytta fótgönguliða. Hann bætti við að engar vísbendingar væru um að hinir handteknu hefðu verið að undirbúa árás. Sprengjuvarpa og fleiri vopn fundust við handtökurnar sem voru sameiginlegt verkefni frönsku og spænsku lögregl- unnar. Handtökurnar eru enn eitt áfallið fyrir ETA en dregið hefur úr árásargetu þeirra á undanfórnum mánuðum. Þær eiga sér stað nákvæmlega ári eftir að franska lögreglan handsamaði Mikel Albizu Iriarte, sem grunaður er um að vera pólitískur leiðtogi ETA, og samstarfsmann hans nálægt spænsku landamærunum. ■ Harriet Aguirre, einn valdamesti leiðtogi Aðskilnaðarsamtaka baska, var handtekinn á dögunum. Schröder ýjar að eftirgjöf Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, gaf í fyrradag í skyn að hann kynni að láta af kröfúm um að hann yrði áfram kanslari landsins þrátt fyrir að flokkur hans hafi fengið litlu minna fylgi en Kristilegir demókratar í þingkosningun- um í síðasta mánuði. Hann sagði ennfremur í viðtali við RTL-sjónvarpsstöðina að hann berðist fyrir áframhald- andi setu í kanslarastól vegna hagsmuna flokksins og stefnu hans en ekki vegna persónu- legs metnaðar.„Þetta snýst ekíd um kröfur mínar og svo sannarlega snýst þetta ekki um mig. Þetta snýst um heimtingu flokksins míns á því að vera í forystu,“ sagði Schröder og bætti við að það væri í höndum framkvæmdastjórnar flokksins að taka frekari ákvarðanir um málið. „Ég mun sætta mig við hvaða ákvörðun sem hún tekur. Ég mun ekki standa í vegi fyrir að umbótaferlið sem ég hóf geti haldið áfram," sagði Schröder. Gerhard Schröder, kanslari Þýska- lands, ýjaði að því að hann kynni að láta af kröfum um kanslarastólinn I viðtali við sjónvarpsstöðina RTL

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.