blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 32

blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 32
32 i MENNING MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 blaöiö „Það vottar fyrir mannsævi i henni, það er maður á ferð, skáld á stjái, líklega stundum i leit að fegurð," segir Þorsteinn frá Hamri um nýja Ijóðabók sína. Blaöiö/Frikki ,Form ljóðanna ætti að vera kunn- uglegt lesendum mínum. Það er nokkuð bundið, áberandi víða gripið til ljóðstafa og bragsetninga að hefðbundnum hætti,“ segir Þor- steinn frá Hamri um nýja ljóðabók sína, Dyr að draumi. „Ein þýðing er þarna á ljóði eftir Brecht, gerð fyrir allmörgum árum. Einhvern veginn fannst mér hún eiga við þar sem ég valdi henni stað. Annars verður bók- in að bera sér vitni. Hér gildir gamla sagan að ég er öldungis ófær um að lýsa efni hennar fram yfir það sem ljóðin gera sjálf. En hún er langt frá því að vera endilega stödd á „forn- um slóðum“ eins og ýjað hefur verið að í kynningum, þótt sums staðar sé horft um öxl. Bókin er svona nokk- urs konar „ágrip af okkur sjálfum“, eins og ég segi þarna einhvers stað- ar. Ágrip af heimsviðhorfi manns og leit hans að einhverju sem hugs- anlega er stundum nær en hann órar fyrir.“ Það standa einkunnarorð fyrir bókinni. Þau eru frá Jóni Óskari og hljóða svo: „Þegar ég gekk um ein- stigi jarðarinnar í leit að fegurð”. „Kannski segir þetta eitthvað smá- vegis um bókina,“ segir Þorsteinn. ,Það vottar fyrir mannsævi í henni, það er maður á ferð, skáld á stjái, líklega stundum í leit að fegurð. Hann spyr sig áfram en tortryggir reyndar flest svör eins og óbreyttur nútímamaður ætti að hafa lært af reynslu. 20 öldin var óspör á svör og enn vaða uppi verdens-lausnar- ar ætíð vissir í sinni sök, blóðugir upp til axla. Enn er klifað á göb- belskum staðhæfingum og reynt að halda allri sýn í svart-hvítu. Þetta er auðvitað andstætt allri sannri mennsku. Vonandi gengur þetta bókakver annarra erinda, þótt í litlu sé, og reynir að gangast við sönnum tilfinningum með því tungutaki sem mér er eiginlegast, hvernig sem til hefur tekist. Og nú er ég auðvitað búinn að tala ógætilega, raska hlutföllum, impra á ákveðnum efnisþætti á kostnað allra hinna. Enda læt ég þetta duga. Mér er hvort sem er allt- af fremur óljúft að tala mikið um kvæðin mín.“ ■ Tónleikar helgaðir sjálfstæöi Norðmanna Nú eru 100 ár liðin frá friðsamleg- um sambandsslitum Noregs og Sví- þjóðar. í Noregi og víðar, er þess- um tímamótum fagnað á ýmsan hátt. Sinfóníuhljómsveitin helgar dagskrá tónleikanna 6. október ald- arafmæli sjálfstæðis frænda okkar frá Noregi og býður velkomna þá Havard Gimse píanóleikara, og Ei- vind Aadland hljómsveitarstjóra. Efnisskráin er að sjálfsögðu norsk að mestum hluta. Verk eftir fræg- asta tónskáld Norðmanna, meist- arann sjálfan Edvard Grieg ásamt verki eftir fremsta nútímatónskáld Noregs í dag, að margra mati, Rolf Wallin. Einnig verður sjöunda sin- fónía Beethovens á dagskrá þetta kvöld. Eivind Aadland var einn besti fiðluleikari Noregs, lærði hjá Yehudi Menuhin og var konsert- meistari Fílharmóníusveitarinnar í Bergen um árabil en á miðjum ferli skipti hann um gír, settist aft- ur á skólabekk og lærði hljómsveit- arstjórn. Norski píanóleikarinn Hávard Gimse hefur hlotið marg- víslegar viðurkenningar fyrir leik sinn, meðal annars Grieg-verð- launin (1996), Steinway-verðlaun- in (1995) og Sibeliusar-verðlaunin (2004). Hávard Gimse. Þessi norski pfanóleikari leikur á Sinfóníutónleikum i Háskólabfói á fimmtudag. Afkastamikill spennusagnasmiður Mary, Mary eftir bandaríska saka- málahöfundinn James Patterson trónir í efsta sæti metsölulista SundayTimesyfirinnbundnarskáld- sögur. Leynilögreglumaðurinn Alex Cross eltist þar við kvenmorðingja sem hefur Hollywood stjörnur að skotmarki. Þetta er fjórða skáldsaga Patterson sem kemur út á þessu ári. Hann hefur ekki látið sér það nægja heldur skrifaði barnabók sem kom út fyrir nokkrum mánuðum og er auk þess að vinna að tveimur skáld- sögum sem koma út á næsta ári. Les- endur virðast ekkert þrey tast á form- úlu hans því allar bækurnar hafa komist á metsölulista i Bretlandi og Bandaríkjunum. Frá árinu 1999 hef- ur Patterson komið 17 skáldsögum sinum á metsölulista. Sigurgöngu annars spennusagna- höfundar, Dan Brown, er hvergi nærri að ljúka. Da Vinci lykillinn er í þriðja sæti metsölulista New York Times og hefur verið þar samfellt á lista i 132 vikur. Bókin er í öðru sæti á lista Sunday Times en þrjú og hálf James Patterson. Á þessu ári hafa komið út fjórar spennusögur eftir hann og ein barnabók. milljón eintaka hafa verið seld af henni í kiljuútgáfunni. Þrjár aðrar bækur Dan Brown eru einnig á topp tíu lista Sunday Times. B Ödýrasta huöm íbwnum CASH & CARRY Fálkahúsinu ■ ** _ _4/aciinne . Suðurlandsbraut 8 Sími: 554 0655 • can d@simnet.is • www.cogc js. opið:l0-18 virka daga

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.