blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 34

blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 34
34 I KVIKMYNDIR MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 blaðiö PU GÆTIR FARIO UR KJALKALIÐMUM AF HLATRI STÉVf (AltíU m MJHE 40 YEAR-OLD VlRGIN LAUGARÁS- Sími 553 2075 ★ ★ ★ SV.mbl. ★ ★ ★ ★ IQI'PS.IS I 36.000 FETUM VARÐ HENNAR j'ERSTA MARTROÐ AÐ VERULEIKA. HORKU SPENNUTRYLLIR FRA WES CRAVEN LEIKSTJORA SCREAM MYNDANNA Sýnd Id 8 09 10:20 unx 10 bX Mén ó sur TALI Sýnd kL 6 m/íslensku ton www.laugarasbio.is -ÓHTRás2 ★ ★★ -SV MBL Slremmtileg ævintýramynd mTsíensku tali Obeint franihald af þáttaröðinni Jesú og Jósefina sem var sýnd við Ui ^ miklar vinsældir á Stóð 2 SfðUStujÓI. Sýndkl.6 ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 8, og 10.20 KVIKMYNDAHATIÐ 29. september til 9. október You bet your Life/Teningnum er kastað Sýnd kl. 6 Antares Sýnd kl. 8 Garcon Stupide/Ungur og vitlaus Sýnd kl. 10.15 kl. 6,8 og 10 skar & Jósefína kl.6 Bewitched kl. 8 TheMan kl.10 400 kr. í bíó! Til oð hafa stjorn á hrottum og illmennum er sett á laggirnar sérstok sveit sem kallarsig tltght'V/afch! ‘ Nifolr Kiilmiiri ?■ \V» ★★★ -S V MBL ph Bewiltiied qS7 GÖLDROTT GAMANMYND! Sýnd kl. 4,6,8 og 10 B.i. 14 ára Sýnd I Lúxus kl. 4,6,8 og 10 Skehimtileg ævintýramynd m Obeint tramhatd at þátlaröðinni Jesú og -Jafflfc-.. Jósefína sem var sýnd viö * éj&M M mlklar vinsældir á Stoð 2 % Í "rr siðustujól. ’.ssp . Mé Sýndkl. 5.45,8 og 10.15 Sýnd kl. 4 og 6 Miðaverð 450 kr. ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 6,8 og 10 B.L 14 ára Sýnd kl. 4 í þrívídd Sýndkl. 10 B.L 16 ára Sýnd kl. 4 fSLENSKT TAL Plata á leiðinni frá Sugarbabes Á vormánuðum síðasta árs komu stúlkurnar í Sugarbabes til Islands og héldu fjölmenna tónleika í Lauga- dalshöllinni. Ný plata er væntanleg frá þeim í næstu viku, sem er þeirra fjórða plata. 1 síðustu viku gáfu þær út fyrstu smáskífu plötunnar „Taller In More Way”, en lagið heitir Push The But- ton og fór beint í fyrsta sætið í Bret- landi. Lagið seldist í 65.000 eintök- um sem þykir feikigott á hörðum smáskífumarkaði þar á bæ. Cindarella Man í kvikmyndahús Föstudaginn 7. október verður mynd- in Cindarella Man frumsýnd en það eru óskarsverðlaunahafarnir Russ- ell Crowe og Renee Zellweger sem leika hér í dramatískri stórmynd sem styðst við raunverulega atburði. Það er enginn annar en Óskarsverð- launaleikstjórinn Ron Howard sem leikstýrir þessari kvikmynd. Russell Crowe leikur þungavigtahnefaleika- manninn Jim Braddock sem tókst að vinna þýska heimsmeistarann í þungavigt, Max Bar og hafði sá sig- ur mikil áhrif á þjóðaranda banda- rísku þjóðarinnar enda kreppan mikla að kvelja þjóðina rétt eins og aðrar þjóðir. Renée Zellweger leikur eiginkonu Jims en margir tala um að myndin fái ófáar Óskarstilnefn- ingar á næsta ári. Shneedeís á íslandi I lok janúar á næsta ári gefst íslend- ingum tækifæri á að sjá og upplifa eina fyndnustu sýningu í heimi sem heitir The Shneedles. Meðlimir leikhópsins munu þá stíga á stokk í Austurbæjabíói, föstudaginn 27. janúar, til að sýna einstaka snilli sína og kitla hláturtaugar Islend- inga á öllum aldri. Sýningunni hef- ur verið lýst sem blöndu af fimleik- um, látbragðsleik, trúðslátum og töfrabrögðum og útkoman er sögð engu lík. Sýningin byggist ekki á töluðu máíi þannig að hún höfðar til allra aldurshópa. Hér er því einstakt tæki- færi fyrir fjölskyldur landsins að skemmta sér ærlega saman. Ráðgert er að hefja miðasölu í lok október og verður nánar tilkynnt um það síðar. Sérstakt og mjög veglegt gjafakort verður í boði fyrir þá sem vilja gefa góða jólagjöf; miða á Shneedles og par með ávísun á frábæra kvöld- stund og taumlausan hlátur. Neil Young Prairie Wind ★★★★■^ Ég get ekki sagt að ég sé hlutlaus hlust- andi þegar kemur að Neil Young. Hann er einn þeirra tónlistarmanna sem ég uppgötvaði seint, en hafði það mikil áhrif á mig að ég fann hreinlega mun. Nokkurs konar fyrir og eftir Neil Yo- ung. Fyrsta platan sem heillaði mig var Harvest sem kom út árið 1972, og er hún jafnframt talin hans frægasta og aðgengilegasta verk. Fljótlega fór ég að hlusta meira og verð að segja að þær eru ófáar Neil Young plöturn- ar sem hafa yljað mér á köldum og dimmum vetrarkvöldum. Það er því sérlega yljandi tilhugsun að vera nú að fá splunkunýja Neil Young-plötu í hendurnar. Platan Prairie Wind er eins konar þriðji hluti í seríunni sem hófst með fyrrnefndri Harvest, hélt áfram tuttugu árum seinna, árið 1992 með Harvest Moon, og hér lýkur henni sem sagt. Það er greinileg tenging í nafnagiftum piatnanna þriggja, sem og í tónum þeirra. Þær eru allar hluti af kántrí- eða þjóðlagahefð sem eru þó hvorki þjóðlagatónlist eða kántr- ítónlist, heldur eitthvað þarna á milli. Hljómsveitir eins og The Band hafa einnig verið að gera svipaða tónlist, og Young hefur einmitt unnið aðeins með þeirri sveit. Á Harvest, fyrstu plötunni heida@vbl.is í seríunni, er lífrænn hljómur og óraf- magnaður ríkjandi, og þar má finna lög sem eru nánast bara trommur, bassi, smá kassagítar og söngur, með einstaka skreytingum hér og þar. Har- vest Moon var einhvers konar aftur- hvarf, úr frekar rokkuðum kafla í ferli Neil Young, til einfaldleikans og óraf- magnaðra útsetninga. Á Prairie Wind tekst Young hins vegar að halda þvi kassagítarsviðmóti sem hann er fræg- ur fyrir, en gefa samt lögunum frelsi til að breytast og springa út á allan mögulegan máta, eftir því hvað hentar hverju lagi um sig, hverju sinni. Hann rokkar lögin upp með rafgítarsólóum eins og í „No wonder", bætir inn go- spelkórum eins og í „He was the king“, (lagi sem fjallar um Elvis Presley), eða fer alla leið í kántríútsetningum eins og í „Here for you“. Jafnframt má finna á plötunni stórkostlega blásarasveit, strengjaútsetningar, afskaplega mikið af fallegum stálgítarleik og svo stingur Emmylou Harris kántrísöngkona inn nefinu í „Far from home“, „This old gu- itar“ og „No wonder“, en sú söngkona söng t.d. með Bob Dylan á plötu hans „Desire“. Neil Young spilar, eins og svo oft áður, á kassagítar og munnhörpu sjálfur, og setur munnhörpuleikurinn f&.íi. ytxjtó . PVjuY' E sterkan svip á plötuna. Það er þó rödd mannsins sem er ógleymanlegust og sérstökust, en hann er hreinlega með einstaka rödd. Brotthætt og jafnvel veimiltítuleg sem hún er á köflum, er hún þó líka hlaðin tilfinningum, og maður bara getur ekki annað en hlust- að á allt sem þessi rödd er að syngja um. Hann er alveg svakalegur töffari, og rokkari, en það er á rólegri nótum og persónulegri, sem hann er sterk- astur. Lagasmíðar á þessari plötu eru svo sem ekkert nýjar af nálinni, en engu að síður eru þær mjög góðar, og framúrskarandi útsetningar bakka upp melódíurnar. Eins og ég sagði hér í upphafi, ég er ekki að hlusta á Neil Yo- ung í fyrsta skipti, og því veit ég að ég kem aldrei að tómum kofanum þegar kemur að nýrri plötu hjá honum. Tíu yndisleg ný Neil Young lög hafa ratað inn til mín, og það á besta tíma þegar kuldi og myrkur eru að taka völdin. Ég vissi að ég gæti treyst á þig, Neil minn. Fullkomin tímasetning!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.