blaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 24
Heimilisofbeldi mjög algengt
Sumar konur
búa við ótrúlega skelfingu
í bókunum Hulduslóð og Friðland
eftir Liza Marklund sem bókafor-
lagið ARI gaf út má lesa ótrúlega
frásögn konu sem varð fyrir ítrek-
uðu heimilisofbeldi af hendi fyrr-
verandi maka síns í mörg ár. Svo
alvarlegt var heimilisofbeldið og
svo lítið gátu sænsk yfirvöld gert að
það endaði með því að þessi sterka
kona varð að flýja heimkynni sín
og varð fyrsti pólitiski flóttamaður-
inn i Bandarikjunum sem fékk land-
vistarleyfi vegna heimilisofbeldis.
Sagan er sönn þó ótrúlegt megi
virðast en þessi sama kona býr enn
í Bandaríkjunum, loksins orðin
örugg eftir margra ára baráttu.
Heimilisofbeldi er staðreynd sem
þúsundir íslenskra sem erlendra
kvenna lifa við daglega og jafnvel í
mörg ár. 1 bókunum er hægt að lesa
hvernig ofbeldismaðurinn sviptir
konuna frelsi sínu og sjálfsmati og
Sigriður Halldórsdóttir, prófessor
á Heilbrigðisdeild Háskólans á Ak-
ureyri, segir að það sé einkennandi
fyrir heimilisofbeldi.
Sigríður hefur hlustað á sögur
margra íslenskra kvenna sem búa
við heimilisofbeldi og hún segist
hafa kannast við margt þegar hún
las bækur Lizu Marklund. „Að lesa
þessar bækur var eins og að hlusta
á konurnar sem ég hef rannsakað,
þetta var alveg sama ferlið. Konur
sem lenda í heimilisofbeldi eru
lokkaðar í net þar sem ofbeldismað-
urinn lætur sem hann geti alls ekki
lifað án hennar. Það má eiginlega
líkja heimilisofbeldi við fótboltavöll.
í eðlilegu sambandi þá hefur hvor
sinn vallarhelming en það sem gerist
í heimilisofbeldi er að annar aðilinn
tekur alltaf meira og meira af vallar-
helmingi hins aðilans þar til hann er
kominn út í horn. Heimilisofbeldi er
klárlega mannréttindabrot. Þetta er
þvílíkt niðurbrot á einni mannssál.“
Konur hnepptar í ánauð
Sigríður segir að konur sem lifi við
heimilisofbeldi lifi í fangelsi. „Of-
beldismennirnir hneppa þessar kon-
ur í ánauð. Við sjáum ekki rimlana
sem eru fyrir fangelsinu sem þessar
konur eru í en þeir eru mjög raun-
verulegir. Mannsandinn hefur svo
mikinn hæfileika til að aðlaga sig og
99.........................
Allir vilja lifa í friði
þannig að 'konurnar
standa smám saman
uppi allslausar, engir
vinir, fjarlæg fjölskylda.
það sem þessir menn gera er að þeir
færa sig stöðugt upp á skaftið. Kon-
urnar hugsa í sífellu að þær geti nú
lifað við þetta og hitt þangað til þær
er orðnar algjörlega aðþrengdar. Yf-
irleitt má konan ekki eiga neina vini
og makinn talar illa um fjölskyldu
og vini. Það er eitt sem gerist, það
vill enginn láta skamma sig því allir
vilja lifa í friði þannig að konurnar
standa smá saman uppi allslausar,
engir vinir, fjarlæg fjölskylda."
Fáránlegt að konur sé
veikara kynið
Sigríður segir að heimilisofbeldi sé
mjög algengt. „Þetta er svo algengt
að það er óhugnanlegt. Ef ég tala um
heimilisofbeldi i tólf kvenna hópi þá
er mjög algengt að stór hluti hóps-
ins þekki það af eigin
raun. Ég hef haldið
því fram að það sé
heimilisofbeldi í
gangi í þriðjungi
sambanda og ég tel
að heimilisofbeldi sé
samfélagslegurvandi.
Við vanmetum styrk
kvenna enda eru kon-
ur á íslandi í dag van-
nýttur auður. Þetta
er þvílíkur auður
því konur eru orðn-
ar svo vel menntaðar
en það hefur orðið
svokölluð menning-
arleg mishröðun.
Við höfum ekki aðlag-
að ýmis gildi við þessa staðreynd að
við eigum þennan fjölda menntaðra
kvenna og konur fá þau skilaboð að
þær eigi að sjá um heimilið þó þær
séu í fullri vinnu og stundum meiri
vinnu en karlmaðurinn. Flestar
konur eru undir miklu meira álagi
en karlmenn. Og svo erum við að
tala um að konur séu veikara kynið,
þetta er náttúrulega fáránlegt. ís-
lenskar konur eru sannarlega ekki
veikara kynið.“
Djöflar í mannsmynd
Aðspurð um ofbeldismennina sjálfa
segir Sigríður að það sé einhver skýr-
ing á þessari hegðun. „Þegar ég heyri
sumar lýsingar þessara kvenna þá
segi ég að þeir séu djöflar í manns-
mynd en ég vil ekkert vera að dæma
þessa menn, það er náttúrulega skýr-
ing á atferli þeirra. Út frá þessum lýs-
ingum sem ég hef fengið þá finnst
mér þessir menn vera brotnir að ein-
hverju leyti, eitthvað sem hefur gerst
í þeirra uppeldi sem hefur skaðað þá
en þeir eiga eitthvert innra óöryggi
sameiginlegt."
Stöðugt niðurbrot í sambandinu
Það merkilega við frásögn Sigríðar
er að enginn þessara kvenna sem
hún hefur rætt við fór í Kvennaat-
hvarfið og Sigríður segir að það sýni
að konur sem leita í athvarfið séu að-
eins toppurinn á ísjakanum. „Það er
mjög algengt að þessir menn finni
að útliti kvenna þannig að sjálfs-
myndin verði alltaf minni og minni.
Það virðist vera að markmiðið sé að
þær eigi að vera svo þakklátar að
fá að hafa þessa menn sem maka.
Það er þetta tilfinningalega ofbeldi
sem felst i þessu niðrandi tali, þess-
um tilfinningalegu árásum á sjálfs-
myndina, árás á sambönd við aðra
þangað til að konan stendur uppi
og eina sambandið sem hún er í er
við þennan mann sem stöðugt er að
brjóta hana niður. Ég dáist að þess-
um konum, að lifa þetta af.“ Sigríður
segir að það sé þó alltaf einhver von.
„Ég myndi ráðleggja konum í þessari
aðstöðu að finna sér trúnaðarmann-
eskju, annað hvort prestinn sinn,
lækni eða einhvern sem þær geta
algjörlega treyst. Margar eru mjög
hvekktar því þær byrja að opna sig
og svo er það komið allan hringinn
og staða þeirra verður því verri en
áður. Ég hvet konur til að fara sér
hægt, hugsa vel um alla möguleika
þvi þetta er miklu meira en að segja
það að koma sér út úr þessu en þær
verða að hafa stuðning. “
svanhvit@vbl.is
Full búð af nýjum
Carter's ungbarnafatnaði
O
jUóðumst
Hamraborg 7 s: 564 1451
www.modurast.is
GLÆSILEG VERSLUN MEÐ
MERKJAVÖRU FRÁ
Stílistinn, tíska og stíll.
Sunnumörk, Hveragerði Sími 483-4121
falleg hönnun, gæði og stíll!
Verslun með sérstöðu, rekin af stílista!
■ - •'
80 stilistinn
Ráðgjöf ásamt þjónustu. Fatastíll og litgreining
ncco uero