blaðið - 05.10.2005, Side 38
381FÓLK
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 blaöiö
SMAboraarirm
HÚSMÓÐIRIN í VESTURBÆNUM
Þegar Smáborgarinn var bara
ungur pjakkur man hann eftir
öllum þessum endalausu pistlum
frá þessari óþekktu húsmóður í
Vesturbænum. Þessi húsmóðir
var einhvers konar alvald og virt-
ist bæði vita allt og hafa yfir öllu
að kvarta. Smáborgarinn ímynd-
aði sér að þetta væri dularfull
kona í Hagkaupsslopp með hvíta
svuntu sem sæti við yfirdekkað
eldhúsborð með köflóttum plast-
dúk. Þar við þetta borð sæti hún
dag og nótt með blað og blýant
og ritaði niður glöggar athuga-
semdir. Hún var í huganum þessi
alsjáandi samviska samfélagsins.
Hún stóð vörð fyrir lítilmagnann
í sínum eitruðu lesendabréfum
en gat líka tekið upp á því að setja
útá hverdagslega hluti sem af ein-
hverjum ástæðum stóðu henni
nærri hjarta. Smáborgarinn bar
óttablandna virðingu fyrir þess-
ari leyndardómsfullu konu. En
með tímanum hætti Smáborg-
arinn að taka eftir henni. Ekki
það að hún hafi horfið frá huga
hans heldur missti Smáborgar-
inn kannski sýn á það sem skiptir
máli. Varð kannski of upptekinn
af sjálfum sér ef svo má að orði
komast. Ekki það að það sé svo
ofboðslega slæmt að hugsa um
sjálfan sig, maður má bara ekki
gleyma hinum sem deila þessu
landi og þessu lífi með manni.
Núna þegar Smáborgarinn hefur
kannski þroskast örlítið og skilur
að lífsgæðakapphlaupið er ekki
allt sem skiptir máli verður hon-
um stundum hugsað til þessarar
máttugu húsmóður. Hann veltir
fyrir sér hvað varð um hana og
afhverju lesendabréf hennar hafa
smám saman horfið af síðum dag-
blaðanna. Er hún kannski dáin?
Við þessa hugsun verður Smáborg-
arinn dapur og fullur afneitunar.
Kannski er bara ekki lengur pláss
á síðum blaðanna því það eru svo
margir að kvarta yfir Baugi eða
stjórnmálamönnum. Kannski er
búið að selja plássið þar sem les-
endabréf hennar voru vön að birt-
ast undir auglýsingar. Ef til vill
hefur húsmóðirin í Vesturbænum
ekki lengur tíma til að skrifa bréf.
Hún hefur kannski ekki lengur
getu til að setjast niður að lokn-
um erfiðum vinnudegi og berjast
fyrir þeim sem ekki geta borið
hönd fyrir höfuð sitt. Það má jafn-
vel ímynda sér að hún hafi sjálf
hellt sér út í lífsgæðakapphlaupið.
Sé í dag þrískilin þriggja barna
móðir að klífa upp þennan ósýni-
lega metorðastiga og hefur enga
löngun til að horfa niður fyrir sig.
Hún hefur kannski bara, eftir allt
saman, umhverfst með þjóðinni
í þessari taumlausu græðgi og
eignasöfnun án innistæðu. Hvað
sem varð um hana þá saknar Smá-
borgarinn hennar og trúir því
að hún sé þarna ennþá úti í þjóð-
félaginu. Og að enn megi finna í
henni þennan kjarna sem gerði
þetta samfélag svo sérstakt. Því
vill Smáborgarinn í einfaldleika
sínum svo gjarnan trúa.
SU DOKU
talnaþraut
65. gata
1 4 2 8
2 3 9 6
6 4 7
5 7 8
8 2
7 4 9
1 3 6
7 3 8 9
4 5 8 1
Lausn á 64. gátu
iausn á 64. gátu
Lausn á 65.
gátu verður að
tinna i
blaðinu á
morgun
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða tölu-
num frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar
til gerð box sem innihalda 9 reiti.
Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í hverri línu og innan hvers
box. Allar gátur er hægt að ráða út
frá þeim tölum sem gefnar eru upp
í upphafi. Leitað er að talnapörum
og reynt að koma þeirri þriðju fyrir.
Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta
boxinu vinstra megin og því neðsta
líka, ætti ekki að vera erfitt að átta
sig á hvar 7 á að vera í miðju-boxinu.
Ef möguleikarnir eru tveir er ágætt
að skrá þá hjá sér og halda áfram.
■ O I ''OgfgflL i.sæti
im METSÖLULISTA
Robbie leið
eins og Batman
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Hæfúeiki þinn til að finna villur mun hjáipa
þér 02 þínum mikið í dag. Finndu allra minnstu
mistöK núna ogþá kemurðu í veg íyrir mun stærri
mistök í framtíoinni.
Robbie Williams sagði að honum
hefði liðið eins og Batman þegar
amerískar stúlkur þekktu hann
ekki. Söngvarinn sagði í viðtali við
Mirror: „Þetta gerðist fyrir nokkr-
um mánuðum í Ameríku, þar sem
ekki allir kannast við andlitið á mér.
í fyrsta skipti sem stelpan kom í
heimsókn sagði hún: „Hver ertu eig-
inlega?“ Ég settist niður og sagði:
„Ég er söngvari" og setti DVD-
disk með Knebworth-tónleik-
unum á, og sagði henni að
skoða. Hún truflaðist, það
var frábært. Þetta var eins
og Bruce Wayne, þegar
hann sagði við gelluna
sína: „Ég er Batman“.
Svo sagði ég við stelp-
una: „Núna veistu
leyndarmálið mitt, og
ég verð að drepa þig.“ ■
Hugh lítur út
eins og tesbia
Hugh Grant segist líta út eins og
samkynhneigð kona með hárið
klippt mjög stutt. Leikarinn segist
hafa verið að reyna að breyta hinni
þekktu lubbalegu hárgreiðslu sinni,
en núna sé hann bara einfaldlega
„ljótur“. Stjarnan úr Notting Hill
sagði í viðtali nýlega: „Ég hef verið
að reyna að breyta mér aðeins.
Ég bað hársérfræðing Eliza
beth Hurley um að taka mig
í gegn, og skapa nýja klipp-
ingu. Ég hélt að ég myndi
líta út eins og töffari, en
í staðin lít ég út eins og
töffaralesbía. Það fer mér
bara hræðilega illa að vera
með stutt hár. Meira að
segja Elizabeth gat ekki
horft framan í mig.“ ■
V Sjálfskoðun er vel við hæfi núna. Kafaðu að
hjarta þínu, sjáðu hvaða væntingar þú hefur og
notaðu svo það sem þú finnur. Einhver vinur gæti
aðstoðað þig með þetta.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Framavonir þínar eru sjóðandi heitar, svo nú
þarftu ef til vill ao ákveða hvort þú gerir þær ekki
sýnilegar. Það borgar sig, því ef vel tekst til mun
þér skjóta upp á stjörnuhimininn en ef allt klikkar
pá taparðu engu á því.
V Venjulegast er þig að finna einhvers staðar
til hhðar, en núna viroist vera mest spennandi að
vera miðja glaums og gleði. Kannski færðu auka
orku þaðan eða kannski er einhver spennandi sem
þú verður að hitta.________________________
©Fiskar
(19.febrúar-20. mars)
$ Það verður að fara hægt og varíega í aíia samn-
inga núna. Þú bíður eítir jákvæðri orkuöldu, sem
reynist þér notadrjúg en gæti blindað sýn þína á
hugsaníega galla næstu samninga.
V Það er einhver að hræra í tilfinningapotti þín-
um, og það er bæði truflandi og spennandi. Pér
hefur ekki liðið svona lengi. Láttu bara ekki sjóða
upp úr, því þá missirðu innsæið þitt.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Tilhneiging þín til árásargirni kallar á almenn
leiðindi og illinai. Reyndu ao taka þessu ekki of
illa. Efþér tekst að taka á þessari stöou á diplóma-
tískan nátt muntu líta mun betur út þegar um hæg-
ist.
V Ef þú ert pirruð/pirraður og ful/1, reyndu að
standast þá freistingu að finna út ástæour þess.
Betra er að draga ajupt andann og bíða þess að
finna svörin, þegar þú færð fjarlægð á málm.
©Naut
(20. apríl-20. maí)
$ Dagurinn í dag er frekár íéttur svo notaðu
hann tfl að huga ao því hvernig þú átt að höndla
stress. Finndu upp nýjar vinnuleiðir sem hjálpa
þér þegar allt er Drjálað að gera.
V Rólegan æsing! Lvkillinn að hamingjunni er
að fara á pínum eigin nraða, jafnvelþótt aðrir vilji
drífa sig. Ef einhver er að reka á eftir þér, skaltu
stinga upp á að þeir hjálpi þér bara.
©Tvíburar
......(21. maí-21. júnQ.................
$ Taktu lokið af þessari ormadós, þótt þú viljir
það alls ekki. Þú ert sú eina/sá eini sem getur gert
eitthvað í málinu og því fýrr því betra.
V Reyndu að tengjast hugsunum þínum, 02
mældu stöðuna á þinu innra veðurfari. Hið and-
lega og líkamlega veður er að breytast hratt um
þessar mundir og þú ættir að búa þig undir næsta
storm.__________________________________
Krabbi
(22. júní-22. júlí)
$ Þú ert líklega ekki hrædd/ur við skuldbind-
ingar í einkalífinu, en um stundarsakir ættir þú
að passa þig á viðskiptasamningum sem krefjast
unairskritta eða bindandi ákvæða af einhverju
tagi. Svo verður þetta aftur í lagi eftir nokkra daga.
V Taktu pásu. Þú verður að hætta að svitna yfir
þessari ákvörðun, þótt hún virðist vera mikilvæg
einmitt núna. Stunaum er betra að geyma til morg-
uns, það sem ekki er hægt að finnalausn á í dag.
Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
Í Hópeflis-æfingar ættu að vera á dagskránni
núna, ef þú ræður einhverju um það. Ef ekki,
reyndu þá að mynda einhverjar tengingar milli
manna í fyrirtækinu, svo fólk geti unnio svolítið
betur saman.
V Reyndu að horfa undir yfirborðið. Vatnið gæti
litið kyírt út þaðan sem þú situr, en hver veit hvað
leynist ofaní pví? Passaðu þig á hinu óvænta.
0
Meyja
(23. ágúst-22. september)
Pítrís
hœtt við Pttrís
$ Kaup 02 saía eru á dagskrá í dag og það er
mikilvægt að fá alla til að vera samstiga áour en
ákvarðanir eru teknar. Fólk er opið fyrir þínum
hugmyndum, svo sannfærðu þau.
▼ Þú hefur ákveðið hvað gera skal varðandi eitt
hvað mál á dagskrá en á síðustu stundu dettur þér
önnur lausn í hug. Þú ’
þetta meira -bara fr;
arft ekkert að hugsa um
:ma.
Vog
' (23. september-23. október)
Paris Hilton segist hafa hætt við að
trúlofast Paris Latsis vegna þess að
hún var ekki tilbúin í hjónaband.
Hin 24 ára stjarna segist vera hrædd
um að hún sé að drífa sig of mikið
inn í alvarlegar skuldbindingar í
samböndum sínum og hefði áhyggj-
ur af því að það myndi bara enda
með skilnaði. Paris sagði: „Ég hef
séð hvernig ástfangið fólk sem flýtir
sér of mikið í hjónaband hættir oft-
ast saman og ég vil ekki gera sömu
mistök.“ Hún bætti við að hún elsk-
aði Latsis enn og að þau væru að
vinna að því að gera saman einhverj-
ar kvikmyndir. „Ég er enn ung og
hef mjög mikið að gera, ég er ekki til-
búin að fórna því. Ég hef líka þurft
að vinna hörðum höndum að því
að komast þangað sem ég er komin.
Paris er mjög góður strákur og við
munum taka á þessu með reisn og
virðingu." ■
^ Núna er fínn tími til að gera hluti fyrir þig
sjálfa(n). Gerðu það sem þú vilt gera, taxtu þao
sem þú þarft að taka og hnstu svo af þér sjálfselsk-
una aður en nokkur fattar nokkurn hlut.
I dag er „gerðu góðverk“-dagur. Hvort sem
það er í nverfinu þínu, í vinnunni eða í ástarmál-
unum. Fyrir bestu niðurstöður sendu þá ífáþér þá
tegund af orku og ást sem þú ert tilbúin ao fá til
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
$ Núna er tíminn til að lciða hópinn þinn, eða
sjarmera verðandi kúnna með frábærum kynning-
um. Þú gætir jafnvel hrætt einhvern pínulítið meo
óbeislaori orku þinni, en það endar allt vel.
V Carpe diem-gríptu daeinn með klónum þín-
um og slepptu ekki mr en þú færðþað sem þú vilt.
Stiörnurnar segja ao nú sé besti tíminn í þessari
viku til að geisla og heilla hitt kynið, svo náðu þér
nú i rómantik!
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Framadraumar 02 markmið liggja fyrir fram-
an þig eins og opið aagblað. Eydau smá stund í
að nnna út hvert pú vilt fara og hvernig þú kemst
þangað og haíðu engar áhyggjur af deginum í dag.
V Hvað er í gangi með þessa fýlu? Þetta er ekki
líkt þér en þetta er líkast til bara tímabundið. Jafn-
vel hin sólríkasta manneskia þarfnast smá skýja til
að kæla sig niður og endurnlaða sig.