blaðið - 06.10.2005, Page 11

blaðið - 06.10.2005, Page 11
blaðiö FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 Maður ekur hestakerru sinni um götur á kafi í vatni f borginni Veracrus í Mexíkó. Manntjón og eyðilegg ing í Mið Ameríku Meira en 65 manns hafa farist eftir að fellibylurinn Stan reið yfir Mið Ameríku. Tré rifnuðu upp með rót- um, þakplötur fuku af húsum og brýr eyðilögðust í suðausturhluta Mexíkó. Tæplega fimmtíu fórust í höfuð- borg El Salvador, aðallega út af aur- skriðum sem fóru af stað eftir gríðar- legar rigningar sem fylgdu óveðrinu. Þá þurftu meira en 16.700 íbúar landsins að yfirgefa heimili sín og hafast við í neyðarskýlum. Eduardo Rivera, talsmaðurþeirra sem stjórna björgunarstarfi, sagði að þetta væri þjóðarharmleikur og að ekki fyndist sá blettur á landinu sem ekki hefði orðið fyrir barðinu á hamförunum. Nágrannaríkið Hondúras hefur lýst því yfir að það muni senda neyðar- aðstoð til landsins og Mexíkó hefur einnig boðið fjárhagsaðstoð. Flóð í kjölfar mikilla rigninga ollu einnig skemmdum á brúm og færðu þjóð- vegi á kaf víðar í Mið Ameríku. ■ íraksþing lætur undan þrýstingi alþjóðasamfélagsins Fallið frá breytingum á kosningareglum fraska þingið samþykkti í gær að afturkalla ákvörðun um breyting- ar á reglum um þjóðaratkvæða- greiðslu um stjórnarskrá landsins sem fram fer 15. október. Said Arikat, talsmaður Sameinuðu þjóð- anna í landinu fagnaði ákvörðun þingsins en samtökin mótmæltu harðlega brey tingunum á reglunum sem samþykktar voru í þinginu á sunnudag. Samkvæmt þeim hefði þurft tvo þriðju skráðra kjósenda í að minnsta kosti þremur héruðum af átján til að fella stjórnarskrána í stað tveggja þriðju þeirra sem mæta á kjörstað og greiða atkvæði. Þingið ákvað að hætta við breytingarnar eftir að hafa verið beitt þrýstingi af Sameinuðu þjóðunum og Bandaríkj- unum. • Frá Irak 3000 borgarstarfsmenn missa vinnuna Um 3000 starfsmenn New Orleans borgar missa vinnuna í þessum mánuði vegna sparnaðaraðgerða í kjölfar fellibylsins Katrínar. Ray Nagin, borgarstjóri, sagði að það væri sárt að þurfa að standa að upp- sögnunum. Hann sagði ennfremur að borgaryfirvöld hafi reynt vikum saman að tryggja fjármagn til launa- greiðslna en án árangurs og því hafi verið gripið til þessara ráðstafana. Jafnt faglærðir sem ófaglærðir borg- arstarfsmenn verða meðal þeirra sem missa vinnuna. Nagin sagði þó að lögregluþjónar, slökkviliðsmenn og aðrir sem sinntu neyðarstarfi yrðu líklega ekki fyrir barðinu á að- gerðunum. Gert er ráð fyrir að fólki verði sagt upp á næstu tveimur vik- um. _ Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, hef- ur tilkynnt aö segja þurfi upp um 3000 borgarstarfsmönnum. SPRENGITILBOÐ TAKMARKAÐ MAGN Jámhilla 3 hillur H 121 x B 62 x □ 21 Verð 12.500 Járnhilla 4 hillur . H 159 x B 64 x □ 25 Verð 17.500 Hornhilla úr járni H180 x B 60 Verð 17.500 Handklæði með hekluðum bekk, 110 cm X 60 cm Verð 1.400 Veggklukka H 35 x B 30 Verð 1.700 Blaðagrind úr járni H 81 x B 32 Verð 4.900 Postulínsdúkka H 60cm Verð áður 6.900 Verðnú 1.900 £ Gjafabox 6 í setti, ferköntuð eða hringlaga Verð 2.500 settið 192§ VERSLUN • VÖRUHÚS Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • 10-18 manudaga til föstudaga og 11-16 laugardaga

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.