blaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 30

blaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÓTTIR FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 blaöiö Körfubolt- inn byrjar um helgina Þá geta körfuknattleiksunnend- ur tekið gleði sína á ný. Körfu- boltavertíðin hefst formlega á sunnudaginn. Þá fara fram hinir árlegu leikir íslandsmeist- ara og bikarmeistara í karla- og kvennaflokki. 1 kvennaflokki mætast íslandsmeistarar Kefla- víkur og bikarmeistarar Hauka. Sá leikur er klukkan 17.00 og klukkan 19.15 hefst leikur íslandsmeistara Keflavíkur og bikarmeistara Njarðvíkur í karlaflokki. Báðir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu í Keflavík og að vanda er keppt um sæmd- arheitið Meistarar Meistaranna. Forystumenn Körfuknattleiks- sambands íslands hafa um margra ára skeið gefið allar tekjur af þessum leikjum tfl góð- gerðarmála og í ár er engin und- antekning þar á. Að þessu sinni er það Foreldrafélag barna með axlarklemmu sem verður styrkt af körfuboltamönnum. Félagið er innan Umhyggju en undanfarin ár hafa félög innan þeirra samtaka fengið styrki frá körfuboltamönnum sem er hið ágætasta mál og glæsflegt framtak hjá Körfulaiattleiks- sambandi íslands. Mörg önnur sérsambönd mega taka þá sér til fyrirmyndar í þessum efnum. F'átbolti ESB er með kceru á hendur ensku úrvalsdeildinni: Hver fær réttinn á enska boltanum 2007-2010? Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu er eitthvert vinsælasta íþróttaefni sem völ er á í heiminum í dag og þar er heldur betur bitist um sýn- ingarréttinn í sjónvarpi frá leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Sky-sjón- varpsstöðin hefur verið með einka- rétt á Bretlandseyjum með sýningar frá leikjunum. Hér á landi eru leikir sýndir á Enska Boltanum sem er sér- stök stöð ætluð ensku úrvalsdeild- inni. Nú er komið upp mál á Englandi þar sem kapalstöðin NTL er búin að kæra ensku úrvalsdeildina til ESB (Evrópusambandsins) og krefst þess að engin sjónvarpsstöð megi einoka sýningar frá leikjum í ensku úrvals- deildinni. NTL, sem nýlega tók yfir Telewest kapalstöðina, er orðin sú öflugasta á Bretlandseyjum í heimi kapalstöðvanna. Sky-sjónvarpsstöð- in er þó miklu stærri og í raun þrisv- ar, ef ekki fjórum sinnum stærri en NTL. Áskrifendur af Sky eru um 8 milljónir heimila af 19 milljónum sem segir meira en margt annað um stærð SKY. Hvað sem stærð og öðru líður verður kæra NTL tekin fyrir af ESB á næstunni en ekki er vitað hvenær það gerist. Ef ESB úr- skurðar NTL i vil, má reikna með að verð á enska boltanum hríðlækki og þar með lækka tekjur félaganna til muna, sem og laun leikmanna þannig að dominos-áhrifin yrðu allsráðandi í þessu máli. Ef ESB úr- skurðar NTL í vil, þá sjá menn einn- ig að fleiri réttindamál fari sömu leið, nægir í þvi sambandi að nefna Meistaradeildina í knattspyrnu, Evr- ópukeppni landsliða, Heimsmeist- arakeppnina og Formúlu 1 kappakst- urinn. Þetta eru aðeins örfá dæmi. wbbiiibw* jNttsnwioGKwn, HPI Savage fjarstýrður bensínbíll. Fáanlegur með þremur vélastærðum 3,5,4,1 og 4,6cc. Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is m í * Í LIÐIÐ MITT í KVÖLD KL. 20.00 Ábyrgð þeirra hjá ESB sem koma til með að úrskurða um þetta mál er því mikil og í raun mun meiri en maður gerir sér grein fyrir í upp- hafi. Magnús Ragnarsson sjónvarps- stjóri Islenska sjónvarpsfélagsins sem rekur Skjá 1 og Enska Boltann hafði þetta að segja um kæru NTL á hendur ensku úrvalsdeildinni. „Þetta er ekkert nýtt mál. Það hef- ur lengi verið áhugi Eftirlitsstofnun- ar ESB á þessu efni. Besta myndlík- ingin er HM 2010 en þar verður sent út á ríkisstöðvum. Það virðist vera sveifla í þá átt að líta á þessa hluti sem rétt almennings. Það er við- skiptasjónarmið í þessu öllu og þar takast á menn um réttindi almenn- ings og síðan viðskiptalegu sjónar- miðin þar sem peningamennirnir eru. Þetta mál snýst eins og stendur að- allega um Bretland, Sky gegn NTL, eins og staðan er í dag en við verðum bara að bíða og sjá til. Við erum að tala um 2007-2010 í þessu sambandi og það eru heil tvö ár í það,“ sagði Magnús Ragnarsson sjónvarpsstjóri íslenska sjónvarpsfélagsins sem rek- ur Skjá 1 og Enska Boltann. En hvaða áhrif getur þetta haft á ísland? Blaðið hafði samband við Björn Sigurðsson dagskrárstjóra hjá Skjá 1 um þetta mál? „Ef úrskurðurinn verður NTL í vil þá hefur þetta áhrif hér á landi 2007- 2008. Þessi pakki, 2007-2010 verður boðinn út eftir um það bil ár. Úr- skurður ESB kemur til með að liggja fyrir áður en þetta verður boðið út, “ sagði Björn. „Þetta gæti haft þau áhrif að það verði mun erfiðara að láta enska bolt- ann standa undir sér, það er að segja ef verðið verður það sama. Þetta get- ur líka haft þau áhrif að ekki verði hægt að sinna boltanum eins vel og gert er til dæmis í dag. En hvað með dominosáhrifin? „Þetta getur haft áhrif mjög víða, á leikmenn, tekjur félaga og margt annað. Miðaverð á leiki kemur örugglega til með að hækka veru- lega og svo framvegis,“ sagði Björn Sigurðsson dagskrárstjóri Skjás 1 í samtali við Blaðið um hvaða áhrif allt þetta réttindamál í ensku úrvals- deildinni gæti haft á ísland. Úrskurðar ESB verður því væntan- lega beðið með mikilli eftirvæntingu, ekki bara áhugamanna um iþróttir almennt, heldur einnig þeirra sem sjá um peningamálin hjá íþróttafé- lögum sem og atvinnumönnum í íþróttum. Ábyrgð ESB-manna er því mikil í þessu vandasama máli.B Aganefnd KSI hefur enn að í máli 7 leikmanna 2. flokks Víkings 7. september síðastliðinn fór fram leikur Víkings og KA í úrslitum C-deildar í 2. flokki karla á íslands- mótinu í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á heimavelli Víkings en fyrri leikur liðanna fór fram viku fyrr á Akureyri en þar unnu Norðan- menn 3-0. Seinni leikurinn var mjög harður og dómari leiksins, Ólafur Kjartansson, hafði í nógu að snúast. Hann rak meðal annars einn leik- mann Víkings af velli á 78. mínútu en alls lyfti Ólafur gula spjaldinu 12 sinnum í leiknum og því rauða einu sinni. Leiknum lauk með sigri Víkings 2-0 og það nægði KA til að komast upp í B-deild. Á leiðinni inn i búningsklefa varð allt vitlaust svo vægt sé til orða tekið því þar veittust menn allharkalega að Ólafi dómara og lauk þessu með því að hann gaf 6 leikmönnum Víkings til viðbótar rauða spjaldið. Málið er litið alvar- legum augum og því ætluðu margir að aganefnd KSÍ ætti að vera búin að taka það fyrir. Svo er ekki og menn spyrja afhverju ekki? Blaðið hafði samband við höfuðstöðvar KSÍ en þar varð til svara Birkir Sveins- son starfsmaður sambandsins til margra ára. „Það tafðist aðeins þetta mál vegna vanhæfni nokkurra nefndarmanna aganefndar sem tengdust aðilum málsins og- að auki voru nokkrir úr aganefndinni staddir erlendis um tíma. Hinsvegar verður farið á fullt í þetta mál á næstu dögum og úrskurður mun liggja fyrir innan skamms,“ sagði Birkir Sveinsson starfsmaður Knattspyrnusambands íslands um aganefndarmál sem lýt- ur að 7 leikmönnum 2.flokks Vík- ings í karlaflokki sem fengu rauða spjaldið i leik og eftir leik gegn KA fyrir um mánuði síðan. Það má fastlega reikna með að einhver eða einhverjir leikmanna 2.flokks Víkings fái þunga refsingu hjá aganefndinni því svona nokkuð á ekki að líðast i íþróttum. ■ Guðmundur var ráðinn til Blika Það fór svo á endanum að Guð- mundur Magnússon var ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðablik í knattspyrnu. Þetta var ákveðið á fundi knattspyrnudeild- ar Breiðabliks að kveldi þriðjudags. Guðmundur hefur þjálfað hjá Breiða- bliki undanfarin 5 ár með mjög góð- um árangri og er einn sigursælasti þjálfari félagsins. Hann er 30 ára íþróttakennari en hann útskrifað- ist frá íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1998. Þar hafði hann fótboltaþjálfun sem valgrein. Guð- mundur hefur UEFA-B-þjálfararétt- indi aukþess að hafa 5-stigs þjálfara- menntun frá KSÍ. Guðmundur á um það bil 200 meistaraflokksleiki með einum fjórum liðum, Haukum, Hug- inn, Hetti frá Egilsstöðum og Þrótti Neskaupstað. Guðlaug Jónsdóttir var svo ráð- in aðstoðarþjálfari Guðmundar hjá Breiðabliki. Guðlaug er einn leikreyndasti leikmaður íslenskrar kvennaknattspyrnu með 50 A-lands- leiki og 154 leiki í efstu deild kvenna og skorað 77 mörk í þeim leikjum. Þá var Björn Björnsson einnig ráð- inn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki en Björn verður þjáifari 2. flokks kvenna eins og síðastliðið sumar. Það verða því tveir aðstoðarþjálfarar hjá meistara- flokki kvenna hjá Breiðablik í knatt- spyrnu sem verður að teljast harla óvenjulegt. Guðmundur Hreiðarsson hefur verið ráðinn markmannsþjálfari hjá Breiðabliki, bæði fyrir 2.flokk og einnig meistaraflokk kvenna en Guðmundur var í þessu starfi í sum- ar með mjög góðum árangri. Marg- ur knattspyrnusérfræðingurinn hefur látið hafa eftir sér að Þóra B. Helgadóttir aðalmarkvörður Breiða- bliks hafi aldrei verið betri en ein- mitt í sumar. ■ Böddi Bergs tekur á móti stuðningsmönnum ensku liðanna sem skeggræða um leikmenn, væntingar og drauma ásamt því að fjalla um gullaldarár hvers liðs. TRYGGÐU PÉR ÁSKRIFT í SÍMA 800 7000, Á WWW.ENSKI.IS EÐA í NÆSTU VERSLUN SÍMANS. EIISHI $ B O LT I N

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.