blaðið - 06.10.2005, Side 20
20 I ÖLMENNING
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 blaóiö
Bjórtegundir
Hinir mörgu angar ölsins
Bjór hefur verið búinn til frá því
um 4000 fyrir krist. Hann er okk-
ur f slendingum vel kunnur í sögu-
legum skilningi þar sem öl var
hér teygað af grið og erg á fyrstu
öldum Islandsbyggðar. Bjór er
hins vegar ekki ein föst breyta
heldur skiptist hann í margar
tegundir. Þær eru jafn ólíkar inn-
byrðis og þær eru margar. Bjór-
flóran er raunar fjölbreyttari og
víðtækari en flesta grunar því að
af hverri tegund eru framleiddar
gríðarlega margar undirtegund-
ir. Hér að neðan verður stiklað á
þeim helstu.
Lager
Orðið lager á rætur sínar að rekja
til þýsku sagnarinnar „lagern“ sem
þýðir að geyma. Á miðöldum, þegar
frysting var vitanlega ekki komin
til sögunnar, var afar tilviljunar-
kennt hvort að gerjun öls tækist
þannig að afurðin myndi uppfylla
þær lágmarkskröfur sem til hennar
voru gerðar. Þetta átti sérstaklega
við yfir heitan sumartímann. Til að
tryggja framboð af bjór á sumrin þá
fóru brugghúsin í Bæjaralandi að
geyma birgðir af bjór í ísilögðum
fjallahellum. Þegar ölið þroskað-
ist varð til dökkur en tær og freyð-
andi bjór með ferskara og mildara
bragði. Lagerbjórinn öðlaðist síðan
KRUSOVICE IMPERIAL LAGER
Fullfrískur úrvalsbjór frá Tékklandi
Tékkneskur bjór er góður!
KRUSOVICE Imperial Lager sannar þá staðhæfingu.
Undanfarna mánuði hefur þessi úrvalsbjór verið fáanlegur hér á landi,
bjórgæðingum til ánægju og yndisauka.
Bragðið erfyllt, með nokkurri humlabeyskju, malti og friskleika. Þetta
er lagerbjór sem bragð er að.
Allt frá árinu 1583 þegar Rudolf II keisari keypti litð brugghús í bænum
Krusovice, skammt frá Prag, hefur KRUSOVICE bjór verið bruggaður með
gæðin í fyrirrúmi. (gegnum aldirnar hefur KRUSOVICE bjórinn þótt
ómissandi í konunglegum veislum í Prag kastala og er svo enn þann dag í
dag. Brugghús KRUSOVICE er nú eitt hið fullkomnasta í Tékklandi, allt
nýlega endurbætt eftir áratuga þjóðnýtingu á tímum kommúnista-
stjórnarinnar.
Eingöngu eru bruggaðar tvær gerðir,
KRUSOVICE IMPERIAL LAGER, og
KRUSOVICE CERNÉ.
Bjórgæðingar munu gleðjast þegar
Cerné bjórinn kemur (vínbúðirnar
næsta sumar, en Cerné er
afbragðs dökkur maltbjór, mest
seldí dökki bjórinn í Tékklandi.
KRUSOVICE fæst i helstu vínbúöum
landsins og kostar 500ml dós Kr 198,-
KRUSOVICE bjór smakkast best vel
kældur og borinn fram I vlöelgandl
glösum, Tékkneskum kristalsglösum
Hvaö annaö?
BYRJENDUR í HEIMAVÍNGERÐ !
Áman stendur fyrir námskeiðum í heimavíngerð.
Næsta námskeið verður haldið miðvikudaginn
12. Október kl. 19:00
Farið verður yfir ferilinn við víngerðina og gefin góð ráð.
Leiðbeinendur eru starfsmenn Ámunnar.
Lengd u.þ.b. 2 klukkustundir.
Verð kr. 2.000- og innifalið er byrjunarsett.
Þáttakendum býðst 20% afsláttur af öilum vörum
Ámunnar á námskeiðskvöldinu.
Skráning og nánari upplýsingará
www.aman.is og síma 533-1020.
sinn fræga gyllta lit þegar að brugg-
verksmiðja í Pilsen fullkomnaði
gerjun hans um miðja nítjándu
öld. Helsti munurinn á framleiðslu-
. ferlilagerbjórsogann-
arra er sá að það tekur
lengri tíma að brugga hann og það
er vanalega ekki notaður sykur við
framleiðsluna. Dæmi um vel þekkta
lagerbjóra eru Carlsberg, Tuborg, og
Budweiser.
Ol
Ö1 er aldagamalt heiti yfir gerjaða
áfengisdrykki sem voru aðallega
framleiddir úr maltbyggi. Síðar
meir voru drykkir sem innihéldu
ekki humla kallaðir þessu nafni
á meðan að hinir sem innihéldu
slíka voru kallaðir bjórar. Sá grein-
armunur á þó ekki lengur við. Ö1 er
yfirgerjað við kjallarahita og tekur
gerjunin mun styttri tíma en hjá lag-
erbjórnum. Það er líka
vanalega borið fram
kaldara en lager-
inn. Skil-
greiningin á því hvað öl sé getur
reyndar verið dálítið ruglingsleg
því að mörg fylki Bandaríkjanna
nota hugtakið yfir alla miði sem
eru með hærra áfengismagn en það
sem lagabókstafurinn skilgreinir
sem bjór, algerlega óháð bruggunar-
aðferð. Dæmi um þekkt öl er Newc-
astle Brown Ale og hinn belgíski
Leffe.
Hveitibjór
Hveitibjór er bjór sem er bruggaður
úr bæði maltbyggi og hveiti. Hveit-
ið gefur bjórnum léttari bragð og
fölari lit en flestir aðrir byggbjórar.
Hveitibjór er vanalega yfirgerjaður
líkt og öl þrátt fyrir að hann líkist
lagerbjór meira í útliti. Bruggun
hveitibjórs var bönnuð víðsvegar
fyrr á öldum þar sem hveiti þótti
of mikilvæg vara til þess að eyða í
munaðarvöru eins og bjór. Dæmi
um þekktan hveitibjór er Hoegaar-
den og Erdingen Weissbier.
Dökkur og sterkur bjór (Stout)
Dökkur og sterkur bjór, oftast nefnd-
ur stout, er dökkur bjór sem er bú-
inn til úr ristuðu malti eða ristuðu
byggi. Hann inniheldur mjög sterk-
an malt eða karamellukeim og get-
ur verið afar brey tilegur í bragði eft-
ir tegundum, eða allt frá því að vera
mjög sætur i það að verða mjög þurr
og bitur. Þekktastur ristaðra bjóra
er líklega hinn írski Guinness með
sina hvítu og þykku froðu. Hann
er samt sem áður langt frá því að
vera eini ristaði bjórinn og margir
kannast líklega við tegundir eins og
Beamish og Murphy's. ■
ÞPH EÞ BOÐIÐ A...
CORONA FEST - Fimmtudagskvöldið 6. október
á GLAUMBAR.
Partýið hefst kl. 20:30 og verður fljótandi CORONA
í boði eins og birgðir endast...og það er nóg til.
X ( fi' ■
-rJjjjTj £5pjriaJiij5jr'jj^J J-JJL>YjnJJJJi UíjjJ bj/\ar irj/SJdtö
£J£j SUa jvílJiil JJJjJ£j 7J£:J^TJ ÍTJjr'Tjj'TJJÍ'
j-jj^jjjjjjjj a®
JJpp vr TTJJtJTJí=;-TTJ ttJJJTj Uj ATJ.KJJ JJiÍA •jjr'il ?}j\ JfjJJ
þajlzi ^Jittuttj þaa ílííttj JJijj' JryijJdiJ-
VVWWoTjlTJJJTTjlbÉJT^